Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2008, Blaðsíða 30
miðvikudagur 16. júlí 200830
Edda Björgvins skipuleggur 90 ára afmæli Bifrastar:
„Þetta er dagur að mínu skapi,
enda skipulagði ég hann,“ seg-
ir leikkonan Edda Björgvinsdóttir
sem á veg og vanda af fjölskyldu-
dagskrá á Bifröst á föstudaginn, en
skólinn fagnar 90 ára afmæli sínu
um þessar mundir. „Ég ráðlegg öll-
um að skella sér út úr bænum og
njóta dagsins með fjölskyldunni,“
segir Edda sem er meistaranemi
í mennta- og menningarstjórnun
við háskólann.
Hátíðarhöldin eru opin öllum
og hefjast klukkan 11.00 og standa
til 16.00. Gamlir Bifrestingar eru
þó sérstaklega hvattir til að heim-
sækja gamlar slóðir. „Hér verður
ýmislegt í gangi fyrir alla fjölskyld-
una. Til að mynda útimarkaður
sem selur varning frá svæðinu hér
í kring, ratleikur, gönguferðir og
happdrætti. Auk þess fáum við til
okkar leikhópa og leyfum börnun-
um að fá útrás í listasmiðjum,“ seg-
ir Edda.
Tónlist skipar veigamikinn sess
á dagskránni en óperusöngkonan
Sigríður Aðalsteinsdóttir og Anna
Kristín Einarsdóttir flautuleikari
eru meðal þeirra sem koma fram.
Sérstakt Bifrastarlag verður frum-
flutt en það er Jóhann G. Jóhanns-
son sem á heiðurinn af laginu og
Jónas Friðrik Guðnason semur
textann. „Lagið verður flutt klukk-
an 15.00 af átta stæðilegum karl-
mönnum sem kalla sig Voces Mas-
culorum, þetta verður örugglega
einn af hápunktum dagsins,“ seg-
ir Edda og hlær en lagið fjallar um
þá náttúruparadís sem skólinn er
hluti af.
Öll dagskráin er flutt og skipu-
lögð af núverandi og fyrrver-
andi nemendum skólans sem
eru 3.300 í heildina. Núverandi
nemendur bregða sér í hlutverk
fyrstu nemenda skólans og stíga á
svið og rifja upp baráttumál þess
tíma.
„Þetta er dagur að mínu skapi“
Síðast en ekki síst
Sandkorn
n Reyðarfjarðarklíkan, eins og
hún er kölluð, með sjónvarps-
manninn Helga Seljan í far-
arbroddi,
heldur
áfram að
stækka. Á
Facebook
er síða til-
einkuð 730
Reyðar-
firði. Bald-
ur Beck
íþróttafréttamaður sem og
Einar Ágúst Víðisson eru
meðlimir klíkunnar ásamt
Helga Seljan og öðru góðu
fólki að austan. Sá eini sem
vantaði var Andri Freyr Við-
arsson útvarpsmaður en
kappinn var ekki kominn með
Facebook-síðu. Í dag er Andri
kominn á Facebook. Ætli stór-
vinur hans Helgi Seljan hafi
ekki sannfært vin sinn um að
gerast meðlimur og er Andri
nú orðinn stoltur meðlimur í
Reyðarfjarðarklíkunni.
n Rokkstjarnan Ragnar Zol-
berg og forsprakki sveitar-
innar Sign er nú staddur í fríi
ásamt unnustu sinni Sóleyju
Ástudóttur. Sóley rekur EMM
School of Make up og er einn
eftirsóttasti förðunameist-
ari landsins. Sóley og Ragnar
skelltu sér í sumarfrí til Sví-
þjóðar ásamt börnum hennar
tveimur. Hljómsveitin Sign
hefur verið á heljarinnar tón-
leikarferðalagi um Bretland að
kynna nýjustu breiðskífu sína
sem kom út þar í landi ekki
alls fyrir löngu. Hvíldin er þar
af leiðandi vel þegin.
n Curver komst í hann krapp-
an þegar hann var að spila á
listahátíðinni LungA á Seyð-
isfirði á mánudag. Curver var
að spila í
félagsheim-
ilinu Herðu-
breið þegar
snúra sem
var tengd
í hljóðfæri
hans flækt-
ist í tjaldi
nokkru
sem var verið að draga upp.
Snúran flæktist þá líka um
fót hans. Það reyndi á snögg
viðbrögð Curvers sem náði
að koma í veg fyrir slys þegar
hann brást við eins og köttur.
Hver er konan?
„Hera Hjartardóttir, 25 ára og er
fædd 1. apríl og er tónlistarmaður.“
Hvað drífur þig áfram í
hversdeginum?
„Að vera til. Það er æðislegt að vera
að gera það sem ég elska mest í líf-
inu og að vera í kringum fólk sem
mér þykir vænt um.“
Hver er helstu áhugamálin?
„Fyrir utan tónlistina prjóna ég
voða mikið og hekla. Ég er smá
tölvu- og tækjanörd. Ég er líka smá
bókanörd, safna bókum og les rosa-
lega mikið.“
Átt þú fyrirmynd í lífinu?
„Þær eru svo margar en fyrirmynd-
in mín er þó aðallega amma mín,
hún Bára Björnsdóttir. Hún kenndi
mér allt sem ég kann í hannyrðum.
Hún var með ofboðslega gott lífs-
viðhorf og alltaf góð við alla.“
Hver er þinn helsti hæfileiki?
„Söngurinn og hannyrðirnar. Ég
teikna og mála. Mér finnst allt
skemmtilegt sem ég get gert í
höndunum og finnst voða gaman
að búa eitthvað til.“
Hvað ætlar þú að gera í
sumarfríinu?
„Ég er að spila í öllu sumarfríinu
mínu. Ég verð að spila um hverja
einustu helgi á meðan ég er á Ís-
landi. Ég ætla að framlengja ferð-
ina og vera eina aukaviku og vera
í Reykjavík. Ég ætla að reyna að
halda eina tónleika í Reykjavík
líka.“
Hvernig er að eiga heima í
tveimur löndum?
„Það er gott en samt mjög erfitt.
Þetta eru þrjátíu tímar í lofti á milli
staðanna. Það er frekar erfitt að
stoppa stutt. Þetta er stysta stopp
sem ég hef tekið undanfarin sex ár
og lengsta fjarveran frá Íslandi.“
Hvað er líkt með Íslandi og
Nýja-Sjálandi?
„Það er rosalega mikil virkni í land-
inu og ofboðslega gott tært vatn úr
krananum. Í Nýja-Sjálandi er mikið
um lambakjöt, þeir segja að það sé
eins og það íslenska. Ég veit það nú
ekki alveg en hvort tveggja er rosa-
lega gott. Það er líka margt sem er
akkúrat öfugt. Það sem ég tel sér-
stakast er að svanirnir eru svartir.
Þegar ég var lítil var ég viss um að
fuglarnir flygju á hvolfi því þetta er
hinum megin á hnettinum.“
Hvað tekur langan tíma að
mála á þér andlitið?
„Það tekur um fjórar til fimm mín-
útur í mesta lagi. Ég er búin að gera
þetta svo lengi.“
Hvenær byrjaðir þú að mála
þig?
„Ég hef alltaf málað mig frá því ég
man eftir mér með líkamsmálningu
með alls konar skrauti. Ég byrjaði
að mála mig löngu áður ég fór að
mála mig í tengslum við tónlistina.
Þetta er innblásið af Maori Moko
sem er hefðbundin stríðsmálning
og keltneskri stríðsmálningu. Því er
þetta fyrir mig Ísland og Nýja-Sjá-
land. Þetta er svona blanda sem ég
geri fyrir sjálfa mig. Þetta er hvorki
hefðbundið á Nýja-Sjálandi né Ís-
landi. Þetta er aldrei eins, þetta fer
eftir því hvernig mér líður.“
Hvenær er von á næstu plötu
frá þér?
„Ég tók upp plötu 16. maí á tónleik-
um. Ég er að kynna hana á túrnum
núna um landið. Svo fer hún í ein-
hverja dreifingu eftir það.“
Hvað er fram undan hjá þér?
„Það er túrinn um Ísland. Ég verð
með þrettán tónleika úti á landi og
svo verða tónleikar í Reykjavík áður
en ég fer. Svo fer ég að spila á hátíð á
Nýja-Sjálandi í lok september. Sú há-
tíð er haldin til að halda upp á að það
sé komið vor, blóm á öllum trjánum
og rosagóð lykt. Ég slepp eiginlega
við allan veturinn á Nýja-Sjálandi og
því fæ ég mitt sumar hér og úti.“
MAÐUR
DAGSINS
Myndarleg
í höndunuM
Hera Hjartardóttir
söngkona hefur verið búsett á
Nýja-Sjálandi í þrettán ár. Nú
um helgina hefur hún
tónleikaferð um ísland en hún
er að kynna nýju plötuna sína,
live at al’s. Hún mun halda
þrettán tónleika úti á landi og
síðan í reykjavík áður en hún
fer aftur út.
BókStAfleGA
„Ég hef ekki heyrt í nein-
um úr flokkn-
um, ég
heyrði sein-
ast í þeim
í mars. Þá
reyndi ég að
ná tali af ein-
hverjum sem væri inni í
utanríkismálunum.“
n Paul ramses um félaga sína í
Framsóknarflokknum. - dv
„Þegar ég var á sjöundu
og var að stilla mér upp
við boltann kom eitt-
hvað fljúgandi í áttina til
mín og það fór alveg við
kylfuna. Þegar
ég tók það
upp sá ég
að það var
fjögurra
sentímetra
grásleppuseiði.“
n Halldór Bragason tónlistarmaður
um fiskinn sem hann fékk á
meistaramóti Nesklúbbsins í golfi um
helgina. - dv
„Það er alltaf eitthvað
félag sem ríður á vaðið
og hækkar verðið. Yfir-
leitt hefur það verið N1
en núna upp á síðkastið
hafa Shell og Olís tekið
frumkvæðið. Ef sá sem
ríður á vaðið fer
of hátt, mið-
að við það
sem önnur
olíufélög
telja nauð-
synlegt, hrekk-
ur það alltaf til baka hjá
þeim sem stimplaði inn
of hátt verð upphaflega.“
n jóhannes gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, um bensín-
hækkunina í fyrradag. - dv
„Þetta er mjög hresst lag
og mikið sumar í því. Við
ætlum að taka
við af
Bahama.“
n Haukur Heiðars,
söngvari
hljómsveitarinnar
diktu, sem ætlar að
gefa út nýtt lag á
næstunni. lagið Bahama hefur setið
á toppi íslenska vinsældalistans í allt
sumar. - 24 stundir
„Við erum alltaf að fara að
gera þetta eftir
tvo mán-
uði. Hann
er alltaf
„alveg að
verða bú-
inn að klippa
hana“.“
n mugison um myndina On the road
í leikstjórn Walters Salles. Tvö ár eru
síðan tilkynnt var að mugison myndi
semja tónlist fyrir myndina en
klippivinnan hjá Salles hefur dregist
á langinn. - Fréttablaðið
„Ég byrjaði
á föstu og
þá fór mér
að ganga
svona vel.
Ég sé eftir því
að hafa ekki fundið þessa
stelpu þegar ég var 18
ára.“
n Elías ingi Árnason, útvarpsmaður á
Fm957 og leikmaður ír í 2. deild, um
ástæðu þess að hann skorar og
skorar með liðinu.
Skipuleggur hátíðarhöldin
Edda Björgvinsdóttir er nemi í
Háskólanum á Bifröst.