Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2008, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2008, Qupperneq 2
Flokkur a barmi miðvikudagur 24. september 20082 Fréttir Sjálfstæðisflokkurinn stendur nú á þeim tímamótum að klofningur er um það bil að brjótast fram með afleiðing- um sem geta orðið afdrifaríkar. Staðan innan flokks er alvarleg. Framundan gætu verið þær landslagsbreytingar í íslenskum stjórnmálum að Sjálfstæð- isflokkurinn yrði ekki lengur stærstur. Innanflokksátök í flokknum hafa sjaldan náð að brjótast upp á yfirborð- ið en nú er öldin önnur. Þegar Þor- steinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins og fyrrverandi formaður Sjálfstæð- isflokksins, fer með afgerandi hætti gegn Davíð Oddssyni, einnig fyrrver- andi formanni Sjálfstæðisflokksins, í leiðara er ljóst að ágreiningurinn er kominn upp á yfirborðið. Innan- flokksátök sjálfstæðismanna standa á milli þriggja fylkinga. Alvarlegasti klofningurinn er milli heimastjórnar- arms Davíðs Oddssonar seðlabanka- stjóra og fylkingar Geirs H. Haarde, núverandi formanns. Davíð fór aldrei Sá skilningur er víða uppi að Dav- íð hafi í raun ekki getað sleppt tök- um af flokknum sem hann stýrði með járnaga alla sína formanns- tíð. Eftir að Davíð steig nauðugur til hliðar og lét Halldór Ásgríms- son, þáverandi forsætisráðherra, gera sig að seðlabankastjóra hef- ur hann samt sem áður hald- ið áfram í pólitík. Á skrifstofu sinni í Svörtuloftum hefur hann lagt á ráðin um fram- vindu pólitískra mála án þess að Geir fái rönd við reist. Þó hefur Davíð á stund- um þurft að lúta í gras. Hann var andvígur myndun nú- verandi rík- isstjórnar Sjálfstæðisflokks og Sam- fylkingar en barðist fyrir því ásamt helstu fylgismönnum að samstarf yrði tekið upp við vinstri-græna. Andstaða Davíðs er skiljanleg ef lit- ið er til þess að Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, formaður Samfylkingar, hefur alla tíð verið sá pólitíski andstæðing- ur sem Davíð hefur mesta óbeit á. Það var Þorgerður Katrín Gunnarsdótt- ir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sem stuðlaði að því að saman gekk með Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki. Fyrir vikið hefur hún verið kölluð ljós- móðir núverandi ríkisstjórnar. En jafnframt uppskar hún óbeit Davíðs sem hefur notað hvert tækifæri til að hnjóða í hana og grafa undan henni. Þorgerður er stjórnmálamaðurinn sem hóf versta óvin Davíðs til valda. „Náhirðin“ Í Davíðsarmi Sjálfstæðisflokksins eru fæstir lengur með raunveruleg völd. Þar er að finna Björn Bjarnason dómsmálaráðherra sem hefur alla tíð verið Davíð fylgispakur. Raunar er hermt að Davíð hafi aldrei haft neitt sérstakt álit á Birni en fallist á að styðja hann í prófkjöri á sín- um tíma vegna þess að hann er eins konar sonur flokks- ins. Bjarni Benedikts- son, faðir Björns, er í huga Davíðs eins og all- flestra sjálf- stæðis- manna goð- sögn. Af því naut Björn góðs og hefur alla tíð verið góður þjónn Davíðs. En Björn er á útleið úr stjórnmálum og er eins konar ráðherra á skilorði. Fullvíst er að samið var um það við myndun ríkisstjórnarinnar að hann myndi víkja á kjörtímabilinu og annar Engeyingur, Bjarni Benediktsson, tæki við. Aðrir í því sem sumir kalla „náhirð“ Davíðs eru Kjartan Gunnarsson, fyrr- verandi framkvæmdastjóri Sjálfstæð- isflokksins, sem Geirsarmurinn kom úr starfi. Kjartan hefur reyndar ekki yf- irgefið Valhöll ennþá því hermt er að hann sé þar með skrifstofu í grennd við framkvæmdastjórann, Andra Ótt- arsson, tryggan Geirsmann. Lektorinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson er í sama liði en hann er einnig í bankaráði Seðlabankans. Skoðanabróðir þessara manna er síð- an Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, sem lengi hefur verið Davíð hliðhollur þótt rof hafi orðið á vináttu þeirra um nokk- urra ára skeið. Loks verður að nefna Jón Steinar Gunnlaugsson, innmúrað- an og innvígðan hæstaréttardómara. Hann er spilafélagi seðlabankastjór- ans og vinur. Hann á Davíð og Birni að þakka að hafa fengið starf hæstarétt- ardómara eftir að hafa verið metinn aftarlega í röð umsækjenda. Þá er Sig- urður Kári Kristjánsson alþingismað- ur talinn tilheyra þessum armi. Ógnarstjórn Davíðs Þótt þessi hópur sé fornfræg- ur eru völd hans í orði sáralítil. En á borði hafa þeir náð fram flestu sem þeir vilja. Davíð Oddsson stjórn- aði alla tíð með ógninni. Ekki svo að skilja að hann hafi beitt menn líkam- legu ofbeldi, heldur hélt hann þjóð- inni í járngreipum andlegs ofbeldis. Þeir sem risu gegn stjórn hans gátu átt von á því að vera refsað með þeim tól- um sem ríkið hefur yfir að ráða. Þetta kristallaðist í nafninu „Bláu höndinni“ sem Hallgrímur Helgason rithöfund- ur kortlagði svo eftirminnilega eftir að forsætisráðherrann hafði kallað hann á teppið fyrir að hafa haft uppi óvarleg orð um ógnarstjórnina. Skytturnar fjórar Þeir sem mynda kjarna Geirs- armsins eru auk formannsins Árni Mathiesen fjármálaráðherra, Guð- laugur Þór Þórðarson heilbrigðisráð- herra og Einar K. Guðfinnsson sjáv- arútvegsráðherra. Fjórmenningarnir halda afskaplega vel saman og ganga í ákveðnum kreðsum undir samheit- inu skytturnar fjórar. Þeir eru ríkjandi valdakjarni flokksins en eiga það í raun sammerkt að vera fremur veikir stjórnmálamenn. Þegar Geir raðaði á ráðherrastóla sýndi þetta val hans jafnframt að hann skipaði til valda menn sem voru hon- um þóknanlegir fremur en að velja þá sterkustu. Geir sniðgekk menn á borð við Kristján Þór Júlíusson, sterk- an leiðtoga í Norðausturkjördæmi, og áðurnefndan Bjarna Benediktsson. Auk þess að velja ráðherra eftir vin- áttu fremur en hæfileikum gerði Geir þá reginskyssu að halda Birni Bjarna- syni dómsmálaráðherra inni í ríkis- stjórninni. Björn er Davíðsmaður og hafði far- ið halloka í prófkjöri. Þar var að hluta um kennt heilsíðuauglýsingum Jó- hannesar Jónssonar í Bón- us sem hvatti fólk til að kjósa Björn ekki. Ástæðan var sú að Jóhannesi fannst sem Björn hefði gengið hvað harð- ast fram í Baugs- málinu og beitt fyrir sig lögreglu og þá sérstaklega skjól- stæðingi sínum Har- aldi Johannessen ríkislögreglu- stjóra. Hvort sem Jóhannes átti þátt í falli Björns eða skortur á kjör- þokka þá lá fyrir að hann yrði Geir fjötur um fót. Þorgerður Katrín er hluti af þess- um armi og nýtur líklega trausts Geirs. En hún á líka andstæðinga. Guðlaugur Þór elur með sér þann draum að verða æðstráðandi í flokknum. Og hann veit sem er að Þorgerður Katrín er hindr- un sem þarf að ryðja úr vegi. Hermt er að Þorgerður Katrín stefni einnig til æðstu metorða innan flokks og hún hafi augastað á embætti fjármálaráð- herra. Sem hún telur vera næsta skref áður en lagt verður á sjálfan tindinn. Valtur Árni Undir venjulegum kringumstæð- um hefði það orðið torsótt en staða Árna Mathiesen er mjög veik. Honum er að miklu leyti kennt um þá djúpu efnahagslægð sem þjóðin þarf að ganga í gegnum. Hann tók ábyrgð á skipan Þor- steins Davíðssonar Oddssonar í emb- ætti héraðsdómara á Norðurlandi og Austurlandi. Hvert málið af öðru hef- ur sprungið í andlit Árna, nú síðast samningur hans við ljósmæður sem er um það bil að gera möguleika á þjóðarsátt að engu. Árna var þó nokk- ur vorkunn þar sem samfylkingarráð- herrarnir Ingibjörg Sólrún og Jóhanna Sigurðardóttir höfðu lýst stuðningi við kröfur ljósmæðra. Innan flokks er aftur á móti mikil óánægja með undanlátssemi Árna eins og fram kom í máli Illuga Gunnarssonar alþingismanns í DV þar sem hann taldi mikið glapræði að ganga til samninga við einn hóp og fá svo yfir sig holskeflu annarra hópa í leit að sama réttlæti. Sögusagnir hafa geisað um að Árni væri á útleið en sjálfur bar hann það til baka í Kast- ljósi Rík- is- Eldar brenna innan Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn er í raun þríklof- inn í Geirsarm, Davíðsarm og umbótasinna. Formaðurinn, Geir �aarde, er valdalítill en í Seðlabankanum situr Davíð Oddsson og heldur um valdataumana. Annar fyrrverandi formaður, Þorsteinn Pálsson, kast- aði sprengju inn í umræðuna með opinberri gagnrýni á Davíð. kloF ings reyNir trauStaSON ritstjóri skrifar: rt@dv.is Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Ljósmóðir ríkisstjórnarinnar uppskar óbeit davíðs og er eyland í flokknum. Björn Bjarnason er í davíðsarmi flokksins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.