Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2008, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2008, Qupperneq 3
sjónvarpsins og sagðist að minnsta kosti myndu hafa frumkvæði að því sjálfur. Geirsarmurinn státar af fleirum en ráðherrum. Þar er líka að finna Þor- stein Pálsson, fyrrverandi formann Sjálfstæðisflokksins og núverandi rit- stjóra Fréttablaðsins. Hann er mjög handgenginn Geir og jafnframt sá sem nú er að setja flokkinn í hreint uppnám með því að steyta hnefa sinn gegn Davíð í leiðara Fréttablaðsins. Umbótasinnarnir Þótt meginátakalínurnar í Sjálf- stæðisflokknum sé á milli Davíðs og Geirs er stór hópur þingmanna flokksins sem myndar þriðja kjarnann og fylgir hvorugum fylkinganna. Þar fara fremstir þeir Bjarni Benediktsson, Kristján Þór Júlíusson og Illugi Gunn- arsson sem haldið hafa uppi harðri gagnrýni á ábyrgðarleysi formanns- ins í efnahagsmálum. Meðal skoðana- bræðra þeirra eru Birgir Ármannsson alþingismaður. Þeirra skoðun er sú að stjórnvöld hafi flotið sofandi inn í bankakreppuna sem nú sligar íslenskt sam- félag. Í raun mætti kalla þennan hóp umbótasinna í flokknum. Þeir hafa ekki aðeins talað fyrir ábyrgri efnhagsstjórn heldur einnig verið á þeirri skoð- un að flokkur einstaklingsframtaksins sé kominn óralangt af leið með því að hlaða stöðugt undir ríkisbáknið. Þótt andstaða þeirra sé ekki nema að hluta uppi á yfirborðinu er ólga undir niðri og fjölmargir þingmenn og aðr- ir flokksmenn eru á sama máli. Krafan um kynslóðaskipti er hávær og margir eru á þeirri skoðun að nauðsynlegt sé að skipta út öllum í núverandi forystu. Bjarni Benediktsson er nefndur sem formannsefni í flokknum. Hann er Engeyingur auk þess að vera um- bótasinni og líklegt að stríðandi fylk- ingar gætu sameinast um hann. Það fer síðan eftir dýpt efnahagslægðar- innar hvenær Geir fer frá völdum og nýir menn taka við. Sjálfur ber forsæt- isráðherrann ýmis þau einkenni að hann sá að nálgast endastöð í stjórn- málum. Stjórnmálamaður í Seðlabanka Vandræði Geirs Haarde snúast fyrst og fremst um þá staðreynd að flokk- urinn er ekki óskiptur að baki hon- um á erfiðum tímum. Í Seðlabankan- um situr Davíð Oddsson, maðurinn sem þyngsta ábyrgð ber á stöðu efna- hagsmála og stjórnar peningamálun- um. Hann hegðar sér fremur eins og stjórnmálamaður en embættismaður. Þegar meirihluti Framsóknar- flokks og Sjálfstæðisflokks sprakk glitti í seðlabankastjórann sem vildi sam- starf Sjálfstæðisflokks og VG. Fram- sóknarflokkurinn sá við þessu og Björn Ingi Hrafnsson borgarfulltrúi sprengdi og gekk til liðs við Samfylk- ingu, VG og frjálsynda við mikið óyndi sjálfstæðismanna. Hermt er að Davíð hafi haft mik- il áhrif á tilurð tveggja meirihluta í Reykjavík. Fyrst með því að fá Ólaf F. Magnússon til samstarfs og gera hann að borgarstjóra og seinna með því að koma á koppinn meirihluta Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Lengi hefur verið gott á milli Guðna Ágústssonar og Davíðs og er því haldið fram að þeir hafi náð saman um að Óskar Bergsson gengi til liðs Sjálfstæðisflokkinn. Fáum dylst að Davíð grefur stöðugt undan Geir án þess að fullljóst sé hvern hann vill fá í staðinn. Frægt drottningarviðtal á Stöð 2 sýndi svo grímulausan Davíð sem talaði eins og stjórnmálamaður um lýðskrumara sem hann fyrirliti. Þar var um að ræða þá sem vildu evru fremur en krónu. Þetta varð til þess að Þorsteinn Pálsson fékk nóg og hann skrifaði leiðarann góða þar sem hann ræðst af hörku gegn embættismann- inum sem ekki þekkir sín takmörk. Leiðarinn markar þau tímamót að í fyrsta sinn ræðst þungavigtarmaður úr Sjálfstæðisflokknum gegn sjálfum Davíð. Hann hefur farið sínu fram í bankastjórn Seðlabankans og hermt er að samskipti milli bankastjóranna þriggja séu sáralítil sem engin. Þótt flokkurinn klofni ekki formlega séð er ljóst að límingarnar hafa gefið sig og brestirnir eru fyrir allra augum. Mistök Geirs Ríkisstjórn Geirs Haarde tók við í miklum meðbyr og með gríðarlega sterkan meirihluta. En reginmistök Geirs voru þau að ganga ekki milli bols og höfuðs á andstæðingum sínum. Til að ná styrkri stjórn á flokknum hefði hann þurft að setja Björn Bjarnason af sem ráðherra og semja við Davíð Oddsson um starfslok. Sjálfstæðismaður í innsta kjarna flokksins segir að fyrst Geir sýndi ekki klærnar í upphafi ráði hann ekki leng- ur ferðinni. Þótt hann vilji nú losna við Davíð er útilokað að reka hann vegna þess hve slæm skilaboð fælust í því út á hinn alþjóðlega markað að reka seðlabankastjóra í miðjum ólgu- sjó efnahagslægðarinnar. Í annan stað lægi fyrir sú staðreynd að forsætisráð- herrann yrði að biðja um leyfi til þess að láta hann fara: „Hann verður að spyrja Davíð hvort hann megi reka seðlabankastjórann.“ Og einmitt í þeim orðum kristallast innanmein Sjálfstæðisflokksins. Enn þarf að spyrja Davíð um smátt sem stórt. Flokkur a barmi Miðvikudagur 24. SepteMber 2008 3Fréttir kloFning Birgir Guðmundsson lektor: Skylmast opinberlega „Það er vitað að það hafa lengi verið gríðarleg átök í flokknum. Það nýja í þessu er að nú virðast menn farnir að skylmast opin- berlega,“ segir Birgir Guðmunds- son, lektor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri, um leið- ara Þorsteins Pálssonar, ritstjóra Fréttablaðsins. Birgir segir að lengi hafi legið fyrir að þetta mál myndi brjótast út og valda flokknum erfiðleikum. Það hafi verið að gerast í öðrum flokkum. „Armarnir sem takast á núna eru hins vegar sterkari en áður. Það er athyglivert að núna glíma menn sem alla jafna tala mjög var- lega. Þetta er efnisleg staðfesting á því sem menn hafa talað um og gefið til kynna mjög lengi: Innan- flokksátökin í Sjálfstæðisflokkn- um eru mikil,“ segir Birgir en vill þó ekki ganga svo langt að segja að þetta muni leiða til klofnings í flokknum. „Gárurnar í flokknum eru farn- ar að verða sýnilegar. Þær eru jafn- vel farnar að líkjast öldum, án þess ég vilji gera úr þeim stórsjó,“ segir Birgir léttur í bragði. Hann reikn- ar ekki með því að leiðarinn muni draga dilk á eftir sér núna. „Þorsteinn er hins vegar að verða skeleggur málsvari fyrir Evr- ópusambandssinna innan Sjálf- stæðisflokksins. Það kæmi mér á óvart ef þetta leiddi til stórra átaka nú, jafnvel þó leiðarinn komi á við- kæmum tímapunkti,“ segir Birgir og bendir á þá staðreynd að Evr- ópustefnunefndin er þessa dagana í Brussel að funda með forsvars- mönnum Evrópusambandsins. Aðspurður hvort hlutverk stærstu dagblaðanna sé að breyt- ast segir Birgir að tónninn í Morg- unblaðinu hafi verið að breytast. „Heimastjórnararmur Sjálfstæðis- flokksins er að missa Moggann frá sér. Morgunblaðið hefur hingað til verið hliðhollt mönnum sem hafa efasemdir um ESB en það er að breytast með nýjum ritstjóra. Mér virðist sem tvö af stærstu blöðun- um séu því að hallast að Evrópu- sambandinu,“ segir Birgir. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins geir H. Haarde mistókst að ná tökum á flokknum í fæðingu ríkisstjórnarinnar. Bjarni Benediktsson er leiðtogaefni umbótasinna. Geirsarmurinn Davíðsarmurinn umbótasinnar Geir H. Haarde Árni Mathiesen Guðlaugur Þór Þórðarson Einar K. Guðfinnsson Þorsteinn Pálsson Davíð Oddsson Björn Bjarnason Kjartan Gunnarsson Haraldur Johannes- sen Óli Björn Kárason Sigurður Kári Krist- jánsson Styrmir Gunnarsson Hannes Hólmsteinn Gissurarson Bjarni Benedikts- son Kristján Þór Júlíusson Illugi Gunnarsson Birgir Ármannsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.