Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2008, Side 6
Miðvikudagur 24. SepteMber 20086 Fréttir
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Skipt um láS á
SkrifStofunni
Sigþór Ari Sigþórsson er hættur sem framkvæmdastjóri Klæðningar ehf. og hefur
verið læstur úti af skrifstofu sinni af stjórnarformanni fyrirtækisins. Stjórnarfor-
maðurinn var ósáttur við ákvörðun Sigþórs um að fresta fyrirtöku á víxilmáli JB
Byggingafélags og þar með fara gegn vilja meirihluta eigenda.
„Ég lít svo á að uppsögn minni frá
14. ágúst hafi verið tekið. Ég er ekki á
leiðinni þarna inn á næstunni,“ seg-
ir Sigþór Ari Sigþórsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Klæðningar ehf.
sem lét af störfum hjá fyrirtækinu á
föstudaginn. Samkvæmt heimildum
DV var það vegna ósættis við stjórn-
arformann og meirihlutaeigendur í
félaginu í tengslum við mál sem snýr
að JB Byggingafélagi.
Læstur úti
Heimildir DV herma að allt hafi
farið í háaloft á föstudaginn þegar
Guðmundur Ingi Karlsson, stjórn-
arformaður Klæðningar, fór á fund
Sigþórs Ara og lét þung orð falla.
Ástæðan ku vera sú að stjórnarfor-
maðurinn var lítt hrifinn af ákvörð-
un Sigþórs um að fresta fyrirtöku
víxilmáls JB Byggingafélags frá 19.
september til 29. eða um tíu daga.
Sigþór hafi hins vegar viljað meina
að hann hafi með því verið að verja
hagsmuni Klæðningar þar sem upp-
lýsingar hafi legið fyrir um að JB gæti
samið um greiðslu. Sigþór Ari vildi
að öðru leyti lítið tjá sig um starfslok
sín hjá fyrirtækinu. Herma heimildir
DV að stjórnarformaðurinn hafi lát-
ið þung orð falla og þar að auki skipt
um lás á skrifstofu Sigþórs og úhýst
honum þaðan. Guðmundur Ingi
Karlsson, stjórnarformaður Klæðn-
ingar, vildi ekkert tjá sig um starfs-
lok Sigþórs Ara þegar DV hafði sam-
band við hann, né heldur hvernig
þau starfslok bar að.
Mun eignast fyrirtækið
Sigþór Ari segir að hann hafi sagt
upp störfum þann 14. ágúst síðast-
liðinn í tölvupósti út af deilu á milli
hluthafa og að sinn síðasti vinnu-
dagur hefði að óbreyttu átt að vera í
lok nóvember. „Ég lít svo á að upp-
sögn minni frá 14. ágúst hafi verið
tekið, þó menn hafi mátt vera í betra
skapi þegar það var gert. Ég er ekki á
leiðinni þarna inn á næstunni,“ sagði
Sigþór þegar DV náði tali af honum.
Sigþór, sem sjálfur á tíu prósenta
hlut í Klæðningu, hafði skömmu
áður en stjórnarformaðurinn hélt á
hans fund handsalað samkomulag
um að kaupa fyrirtækið ásamt hópi
fjárfesta, en segir að það samkomu-
lag sé nú í uppnámi eftir atburð-
inn. „Þeirri vinnu var nánast lok-
ið þar til stjórnarformaðurinn kom
á minn fund, en núna er það á bið
enda skaðar þetta fyrirtækið. Ég skil
þetta svo að það séu ákveðnir hlut-
hafar sem vilji ekki selja,“ segir Sig-
þór. Aðspurður hver framtíð Klæðn-
ingar verði segist hann vonast til að
hann eignist fyrirtækið fyrr en síð-
ar. „Mín von og trú er sú að ég muni
eignast þetta fyrirtæki fyrr eða síðar.
Hvort það verði í næstu viku eða síð-
ar verður tíminn að leiða í ljós,“ segir
Sigþór.
Gegn vilja meirihluta
Byggingafélag Gylfa og Gunn-
ars (BYGG) á hlut í Klæðningu
og er með meirihluta í stjórn. JB
Byggingafélag átti þriðjungshluta
í fyrirtækinu fram til ársins 2007
þegar hlutur þess endaði hjá VBS
fjárfestingabanka, við yfirtöku í JB.
Í desember árið 2007 var skipt um
stjórn og stjórnarformann og kom
þá Guðmundur Ingi Karlsson inn
í stjórn Klæðningar sem stjórnar-
formaður í gegnum BYGG. Heim-
ildir herma að lætin snúist fyrst og
fremst um að Sigþór Ari hafi ákveð-
ið að fresta fyrirtöku víxilmálsins
um tíu daga, en því hafi stjórnar-
formaðurinn ekki unað fyrir hönd
BYGG og sakað hann um að fara
gegn vilja meirihluta eigenda sem
hafi viljað sjá JB Byggingafélag keyrt
í þrot. Sigþór Ari hafi hins vegar
metið það svo, þar sem hann taldi
sig vera orðinn óformlegan eiganda
Klæðningar, að það væri í Klæðn-
ingu í hag að fresta fyrirtökunni.
Annars fengist ekkert. „Ég vil ekki
gera mikið úr þessu eins og staðan
er í dag. Ég er allavega að leita mér
að vinnu,“ segir Sigþór Ari.
Talsverður uggur er innan
Klæðningar ehf. í kjölfar brottvikn-
ingar Sigþórs Ara enda er fyrirtækið
framkvæmdastjóralaust um þessar
mundir og óttast margir að uppþot
stjórnarformannsins gæti reynst
dýrkeypt.
SiGurður MikAeL jónSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
Í kuldanum Sigþór ari segir að hann eigi ekki afturkvæmt sem framkvæmdastjóri
klæðningar, en hyggst eignast félagið fyrr en seinna.
Auglýst
eftir vitnum
Rannsóknardeild lögregl-
unnar á Suðurnesjum óskar
eftir upplýsingum varðandi
líkamsárásarmál sem átti sér
stað á Ljósanótt, að morgni
sunnudagsins 7. september.
Lögreglumenn komu þá að
meðvitundarlausum manni
liggjandi á Hringbraut í
Keflavík, móts við Mávabraut.
Kona, sem var hjá mannin-
um, sagðist hafa séð menn
hraða sér í burtu á rauðri
Honda Accord bifreið. Lög-
reglan óskar eftir að ná tali af
konunni og biður jafnframt
önnur vitni sem hugsanlega
kunna að vera að þessu atviki
að hafa samband.
„Mín von og trú er sú að
ég muni eignast þetta
fyrirtæki fyrr eða síðar.
Hvort það verði í næstu
viku eða síðar verður
tíminn að leiða í ljós.“
Jóhann R. Benediktsson, löreglu-
stjóri á Suðurnesjum, mun sam-
kvæmt heimildum DV óska eftir því
við dómsmálaráðuneytið að fá að
hætta störfum hið fyrsta. Jóhann mun
líta þannig á að honum sé ekki vært í
embætti vegna þess eineltis sem hann
hafi sætt af hendi Björns Bjarnasonar
dómsmálaráðherra.
Sú ákvörðun ráðherrans að aug-
lýsa embætti Jóhanns laust til um-
sóknar var aðeins kornið sem fyllti
mælinn. Því mun Jóhann hafa talið að
það yrði embættinu til mikils skaða ef
hann yrði áfram. Í fyrramálið mun
lögreglustjórinn funda með starfsfólki
sínu og kynna því ákvörðun sína.
Jóhann hefur áður sagt að hann
hyggist ekki sækja um starfið, verði
það auglýst eins og Björn Bjarnason
hefur tilkynnt honum. Á nýja Face-
book-síðu, sem stofnuð hefur ver-
ið til stuðnings Jóhanni, hafa yfir 800
manns ritað nafn sitt.
Ólga er á meðal starfsmanna lög-
reglustjórans vegna framgöngu ráð-
herrans. Þá gætir undrunar og reiði
innan stjórnarflokkanna vegna þess
sem menn kalla aðför að lögreglu-
stjóranum sem er með flekklausan
feril.
Jóhann var í viðtali á Útvarpi Sögu
á laugardaginn og sagðist þar að-
spurður ekki kannast við að hann
væri óhlýðinn. Hann sagði þó að vel
mætti vera að einhverjum fyndist
svo. Jóhann sagðist hins vegar vera
svolítið þver en hann reyndi að vera
sanngjarn þótt hann væri harður.
Hann sagði ákveðið andrúmsloft hafa
myndast og í því hafi hann ekki verið
tilbúinn til að „vera hluti af já-hópi“.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra flæmdi lögreglustjórann úr starfi:
Hættir vegna eineltis ráðherra
jóhann r. Benediktsson
Fundar með starfsfólki sínu
á morgun.
ráðherra í réttum
Árni Mathiesen fjármálaráð-
herra fór í réttir með einkabíl-
stjóra sínum á föstudaginn. Jón
Hermannsson bóndi á Högna-
stöðum staðfestir þetta og
segir marga þingmenn Suður-
kjördæmis fara í réttir í sveit-
inni. Heimildamaður DV sagði
einkabílstjóra Árna hafa skutlast
eftir þremur V.S.O.P. koníaks-
flöskum þegar leið á daginn. Jón
segir það ekki vera rétt: „Ég get
nú alveg séð mönnum fyrir víni
þegar þeir koma til mín í réttir.“
Jón segir þingmenn þó vanalega
vera með pela þegar þeir koma
í réttir svo þeir geti gaukað að
kjósendum sínum.
miðborgarstjóri
hefur húmor
„Þetta er bara brandari, stór-
skemmtilegt grín,“ segir miðborg-
arstjórinn Jakob Frímann Magn-
ússon um falsað bréf í hans nafni
sem einhverjir borgarbúar hafa
fengið undanfarið. Í bréfinu seg-
ir meðal annars: „Orðatiltækið
heilbrigð sál í hraustum líkama
á vel við. Ber þá helst að huga að
þynd og daglegri umhirðu tanna,
hárs og húðar.“ Jakob segir uppá-
tækið varða við lög en hann ætli
ekki að elta ólar við prakkarann.
„Þetta er vel samið, allur stíllinn á
þessu er vandaður og trúverðug-
ur. Þetta er spaug af því tagi sem
ég hef verið staðinn að sjálfur.“
Krónan ekki
til sölu í Evrópu
Útibú Landsbankans í
Hollandi neitaði hollenskri
konu um að kaupa krónur
þegar hún kom í bankann
og vildi fjárfesta í gjaldmiðl-
inum. Konan er móðir Hol-
lendings sem býr á Íslandi
en honum var brugðið þegar
hann heyrði þetta. „Ég hafði
ráðlagt henni að kaupa krón-
ur vegna þess að gengið er
lágt núna, þannig að ég taldi
þetta vera góða fjárfestingu.
En ef enginn getur keypt
krónu þá er ekki furða að hún
lækki dag frá degi.“ Ástæð-
an er sú að Landsbankinn er
einungis með fyrirtækjaþjón-
ustu í Hollandi.