Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2008, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2008, Síða 17
„Við verðum glaðir fram á vor en erum strax farnir að undirbúa okk- ur undir næsta ár,“ segir Sigursveinn hjá ÍBV. Hann segir árangur seinni umferðarinnar í fyrra hafa gefið tón- inn fyrir þetta nýafstaðna tímabil og stefnan hafi verið tekin upp um deild. „Við vorum með næstum óbreytt lið frá því árinu áður og vissum hvað við höfðum í höndunum. Við stefnum að því að halda þeim flestum á næsta ári og bæta við sterkum leikmönnum. Við erum að skoða ýmsa möguleika í þeim málum og erum þegar búnir að framlengja samninga við nokkra leik- menn. Þó svo að við höfum unnið í 1. deildinni nokkuð örugglega er tölu- verður munur á þeirri deild og úvals- deildinni og við verðum að styrkja okkur.“ Plummum okkur í efstu Sigursveinn fer varlega í að spá fyr- ir um næsta tímabil. „Það fer eftir því hvernig liðið verður, hverjir koma og hvernig peyjarnir verða stemmdir en fyrsta markmið verður auðvitað að halda okkur í deildinni. Það verður gaman að bera okkur saman við lið- in í efstu deild. Ég tel að liðið okkar hefði jafnvel plummað sig ágætlega í Landsbankadeildinni í ár. Við erum með unga peyja og auðvitað á það eft- ir að koma í ljós hvernig þeir höndla pressuna þegar á hólminn er komið. En við erum komnir til að vera.“ Dýr útgerð Rekstur íþróttafélaga á lands- byggðinni hefur oft reynst erfiður og vegur mikill ferðakostnaður þar þungt. „Við höfum fundið fyrir efna- hagsástandinu eins og aðrir en við eigum góða bakhjarla og stuðnings- menn í Eyjum. En eins og staðan er núna er ódýrara að vera í efstu deild en í þeirri fyrstu. Við flugum fjór- ar ferðir norður og austur í sumar á meðan liðin í úrvalsdeildinni eru öll á suðvesturhorninu. Skaginn fer út og við komum í staðinn,“ segir Sig- ursveinn sposkur og bætir við: „Svo koma einhverjir sjónvarpspeningar inn í þetta líka þannig að ef menn fara ekki á allsherjar fyllerí á leikmanna- markaðnum á að vera auðveldara að reka félagið í efstu deild.“ Vallarmálin óleyst „Varðandi heimavöllinn, Hásteins- völl, þá er staðan í því máli óbreytt og vandamálið þar með óleyst. KSÍ er með sínar kröfur um stúkubyggingu, Vestmannaeyjabær á völlinn og ég bara trúi ekki öðru en menn setjist niður og leysi þetta. Við skiljum vel þá afstöðu KSÍ að fylgja þurfi ákveðn- um stöðlum en nú er verið að tala um tímamót í boltanum þegar grasið vík- ur og gervigras verður liðið í Garða- bænum. Það yrðu heldur betur tíma- mót einnig ef liði í efstu deild yrði bannað að spila á heimavelli sínum,“ segir Sigursveinn að lokum Þjálfarinn áfram? Heimir Hallgrímsson þjálfari ÍBV hefur lýst því yfir að hann vilji halda áfram með liðið. Í samtali við DV í gær sagði hann enn óvíst hvort af því yrði. Heimir er að vonum ánægður með tímabilið. „Við byrjuðum mót- ið mjög vel og það lagði grunninn að árangri okkar í sumar. Liðsheildin var mjög góð og okkar helsti styrkur fólst í því að við vorum ekki með fáa ómiss- andi leikmenn sem allt snérist um, heldur frábæra heild þar sem maður kom í manns stað. Það er lykillinn að þessu öllu saman. Enda kemur það á daginn að við erum með sex leik- menn í liði ársins í uppgjöri Fótbolta. net á 1. deildinni,“ segir Heimir sem einnig var kosinn þjálfari deildarinn- ar við sama tækifæri. Miðvikudagur 24. SepteMber 2008 17Sport Sport KeflaVíK meistari fyrir framan sjónVarPið? keflavík getur orðið Íslandsmeistari í knattspyrnu karla í kvöld sitjandi heima með öl í annarri og snakk í hinni. FH tekur á móti breiðabliki á þeim athyglisverða tíma, 16.30, og takist Hafnfirðingum ekki að sigra er keflavík orðið meistari án þess að snerta fótbolta. Þetta er ekki algengt að gerist á Íslandi enda tvær síðustu umferðirnar alltaf leiknar á sama tíma. vegna evrópuþátt-töku FH í ár eiga þeir hins vegar þennan leik gegn breiðabliki eftir. FH þarf líka að hugsa um markatöluna en vinni þeir næstu tvo leiki sína og Fram nær jafntefli við keflavík í lokaumferðinni ræðst Íslandsmótið á markatölu. FH hefur 15 mörk í plús en keflavík 18 mörk. Eyjamenn eru enn að fagna sigri sínum í 1. deild. Leikmenn ÍBV uppskáru toppsætið eftir frábæra spilamennsku í sumar og segir þjálfarinn Heimir Hallgrímsson jafna og góða liðsheild lykilinn að árangri liðsins. sigursveinn Þórðarson, formaður knatt- spyrnuráðs ÍBV, segir liðið eiga heima meðal þeirra bestu. Á hverju ári síðan 2004 hefur vef- síðan Fótbolti.net staðið fyrir upp- gjöri á liði ársins í 1. og 2. deild í knattspyrnu. Það eru þjálfarar og fyrirliðar liðanna í deildunum sem kjósa. ÍBV var eðlilega sigursælt í fyrstu deildinni sem þeir unnu með yfirburðum. Þeir áttu sex af ellefu í iði ársins og þá var þjálfarinn, Heimir Hallgrímsson, valinn sá besti og Atli Heimisson besti leikmaður deildar- innar. Sá efnilegasti var valinn Viðar Örn Kjartansson úr Selfossi. Í 2. deildinni áttu liðin tvö sem komust upp, ÍR og Afturelding, níu af ellefu í liðinu. Guðlaugur Baldursson úr ÍR var valinn besti þjálfari deildar- innar og Árni Freyr Guðnason einnig úr ÍR besti leikmaðurinn. Efnilegasti var valinn Elfar Árni Aðalsteinsson úr Völsungi sem er bróðir Valsarans Baldurs Aðalsteinssonar. Lokahófið í ár fór fram á veitinga- staðnum Silfri við Austurvöll og sá hinn landskunni íþróttafréttamaður Guðjón Guðmundsson um veislu- stjórnun annað árið í röð. Magnús Már Einarsson, ritstjóri vefsíðunnar, segir hófið stækka ár frá ári. „Menn eru stoltir af verðlaununum held ég. Verðlaunahafar eru að koma frá Vestmannaeyjum, Akureyri, Sauð- árkróki, Húsavík og fleiri stöðum til að taka á móti verðlaununum. Það segir okkur ýmislegt um hversu vel þeir kunna að meta þetta og við erum þeim mjög þakklátir þeim fyr- ir að koma,“ segir Magnús. tomas@dv.is Verðlaun fyrir 1. og 2. deild gerð upp af Fótbolta.net í gær: STÆRRA MEÐ HVERJU ÁRINU ronalDo á sKotsKónum ronaldo byrjaði sinn fyrsta leik fyrir Manchester united eftir meiðslin í gær þegar englandsmeistararnir tóku á móti Middlesbrough í bikarnum. ronaldo lék sextíu mínútur og skoraði fyrsta mark leiksins með skalla eftir hornspyrnu. boro-menn jöfnuðu þvert gegn gangi leiksins í seinni hálfleik en mistök í vörn gestanna gáfu giggs og Nani auðveld mörk fyrir united sem tryggðu 3-1 sigur heimamanna. brasilíumaðurinn ungi og efnilegi rodrigo possebon fór af velli líklegast fótbrotinn eftir ruddalega tæklingu austurríkismannsins emmanuels pogatetz. pogatetz fékk réttilega rautt spjald fyrir vikið enda átti tæklingin ekkert skylt við knatt- spyrnu og verður hann heppinn að sleppa með þriggja leikja bann tomas@dv.is ENSkI dEIldAbIkARINN Arsenal - Sheffield United 6–0 1-0 Nicklas Bendtner (31.), 2-0 Nicklas Bendtner (42.), 3-0 Carlos Vela (44.), 4-0 Carlos Vela (50.), 5-0 Jack Wilshere (57.), 6-0 Carlos Vela (87.). Man. United - Middlesbrough 3–1 1-0 Cristiano Ronaldo (25.), 2-0 Ryan Giggs (79), 3-0 Nani (90.+3) Liverpool - Crewe 2–1 1-0 Daniel Agger (15.), 1-1 Michael O’Connor (25.), 2-1 Lucas Leiva (58.). Stoke - Reading 2–2 Brynjar Björn lék sinn fyrsta leik síðan í janúar. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði í vítakeppni sem Reading tapaði 6-5. Watford - West Ham 1–0 1-0 Hayden Mullins (70, sjálfsmark.). Burnley - Fulham 1–0 1-0 Jay Rodriguez (88.). Sunderland - Northampton 2–2 Sunderland vann 6-5 eftir vítakeppni. Leeds - Hartlepool 3–2 Rotherham - Southampton 3–1 Swansea - Cardiff 1–0 Leikirnir á morgun: Aston Villa - QPR Ipswich - Wigan Newcastle - Tottenham Portsmouth - Chelsea Blackburn - Everton fylgist með þessum atli Heimisson leikur loks í Landsbankadeildinni á næsta ári. mynD fótbolti.net lið ársins í 1. DeilD albert Sævarsson (Íbv); daníel Laxdal (Stjarnan), andrew Mwesigwa (Íbv), dusan ivkovic (Selfoss), Matt garner (Íbv); dean Martin (ka), andri Ólafsson (Íbv), Henning eyþór Jónason (Selfoss), augustine Nsumba (Íbv); Sævar Þór gíslason (Selfoss), atli Heimisson (Íbv). besti þjálfarinn: Heimir Hallgrímsson (Íbv) besti leikmaðurinn: atli Heimisson (Íbv) efnilegasti leikmaðurinn: viðar Örn kjartansson (Selfoss) lið ársins í 2. DeilD atli Már rúnarsson (Magni); bjarki Már Árnason(tindastóll), baldvin Jón Hallgrímsson (Ír), John andrews (afturelding), rannver Sigurjónsson (afturelding); guðfinnur Þórir Ómarsson (Ír), knútur rúnar Jónsson (víðir garði), Árni Freyr guðnason (Ír), tómas Joð Þorsteinsson (afturelding); paul Clapson (afturelding) elías ingi Árnason (Ír). besti þjálfarinn: guðlaugur baldursson (Íbv) besti leikmaðurinn: Árni Freyr guðnason (Ír) efnilegasti leikmaðurinn: elfar Árni aðalsteinsson (völsungur) sVeinn waage blaðamaður skrifar: swaage@dv.is eyjamenn komnir til að vera fögnuður dyggir stuðningsmenn á Selfossi. mynD guðný ósKarsDóttir sigur í 1. deild Leikmenn Íbv fagna áfanganum. mynD guðný ósKarsDóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.