Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2008, Page 20
miðvikudagur 24. september 200820 Fókus
Metsölubókin Glerkastalinn eftir
Jeanette Walls kom út hjá JPV fyrr á
þessu ári og hefur vakið gríðarlega
athygli hvarvetna í heiminum. Hún
kom fyrst út árið 2005 í Bandaríkj-
unum undir nafninu The Glass
Castle en hefur nú verið þýdd á
mörg tungumáll. Í bókinni segir
Jeanette sjálf frá erfiðum uppvaxt-
arárum víðs vegar um Bandaríkin
en foreldrar hennar festu hvergi
rætur og hröktust milli staða. Hún
og systkini hennar þurftu að þola
fátækt og vanrækslu og lærðu
snemma að standa á eigin fótum.
Bókin er afar auðlesin. Höfundi
tekst að segja listilega vel frá þeim
erfiðu aðstæðum sem systkinin
þurftu að þola á uppvaxtarárum
sínum. Fyrstu minningar sínar á
hún úr eyðimörk villta vestursins,
því næst Phoenix og að lokum frá
fjöllunum í austri. Foreldrar henn-
ar, Rose Mary og Rex Walls, voru
sérvitur hjón sem náðu aldrei að
byggja neitt upp af viti. Hún var
listamaður og hann var stórkarla-
legur athafnamaður sem tolldi
illa í vinnu auk þess sem hann var
drykkjumaður. Þau voru villtar sál-
ir sem létu hvatvísi stjórna ofar
skynseminni. Þau drógu börn sín
á milli staða undir því yfirskini að
þau væru að leggja af stað í nýtt
ævintýri. Ævintýri sem systkinin
uppgötuvuðu á unglingsárum að
voru fegruð orð yfir flótta.
Hver sá sem les um slíka fátækt
og hörmungar sem börnin þurftu
að þola verður þunglyndur. Bókin
tekur á andlegu hliðina á slæman
og góðan hátt. Jeanette tekst með
hispurslausum skrifum og jákvæð-
um huga að gera frásögn sína listi-
lega og í raun einblína á jákvæðar
hliðar lífsins. Ljóst er að hún elsk-
aði föður sinn ávallt þrátt fyrir að
hann hafi brugðist henni á köflum.
Lesandanum verður ljóst að Jea-
nette er sterk kona sem náði fót-
festu í lífinu þrátt fyrir æskuna. Sú
vitneskja gerir bókina og lesturinn
enn merkilegri og verðmeiri.
Undirrituð mælir hiklaust með
þessari bók fyrir alla. Hún er í senn
fróðleg, sorgleg og skemmtileg.
Hún grípur mann á fyrstu blaðsíðu
og heldur manni við efnið. þetta
er bók sem maður vill klára strax
og fá svo meira. Hún sýnir manni
döpur samfélög, fátækt og niður-
níslu, eitthvað sem maður getur
ekki ímyndað sér að lenda í. Vekur
mann til umhugsunar og skilur eft-
ir sig þakklæti í hjartanu. Fróðleik-
ur fyrir lífið. Ásdís Björg Jóhannesdóttir
á m i ð v i k u d e g i
EngisprEttur aftur á svið
Þeim sem misstu af EngisprEttum í Þjóðleikhúsinu á liðnu leikári gefst nú tækifæri
til að sjá þessa rómuðu leiksýningu. efnt verður til fimm aukasýninga á verkinu á
næstunni og hefjast sýningar um helgina. Nánari upplýsingar um verkið og
miðasölu á lEikhusid.is.
Sönn og
ótrúleg Sagatolli í Kaup-mannahöfn
Myndlistarmaðurinn Tolli opn-
ar sýningu í Kaupmannahöfn í
þarnæstu viku, nánar tiltekið þann
10. október. Sýningin, sem verð-
ur í Kong Hans Salen í Magasin du
Nord, er byggð á sýningu sem Tolli
var með í Reykjavík Art Gallery hér
á landi fyrr á árinu að viðbættum
nokkrum verkum. Myndirnar hefur
hann mestmegnis málað á síðustu
tveimur árum. Sýningin, sem ber yf-
irskriftina Abstract Buddha Abstract,
er sett upp í samvinnu við íslenska
sendiráðið í Kaupmannahöfn og
stendur til 25. október.
forsala á tý
Miðasala á míní-tónleikaferðalag
færeysku rokkaranna í Tý fyrstu
helgina í október hefst í dag. Hægt
er að kaupa miða í Smekkleysu í
Reykjavík, Paddy’s og Hljómvali í
Keflavík og Pennanum á Akureyri.
Þetta verður í fimmta skiptið sem
sveitin kemur til Íslands en eins og
margir muna væntanlega sló hún
í gegn fyrir nokkrum árum með
laginu Ormurin langi. Einum tón-
leikum hefur verið bætt við frá því
tilkynnt var um konu Týs og mun
sveitin því spila á fernum tónleik-
um: á Paddy´s í Keflavík 2. októ-
ber, á Græna hattinum á Akureyri 3.
október, á NASA daginn eftir og loks
5. október á tónleikum fyrir alla ald-
urshópa í Hellinum við Hólmaslóð.
Miðasalan á
riff hafin
Miðasala hófst í gær á RIFF, Al-
þjóðlegu kvikmyndahátíðina í
Reykjavík, sem byrjar á morgun
og stend-
ur í ellefu
daga. Stakur
miði kostar
900 krón-
ur en hægt
er að kaupa
átta mynda
klippikort á
5000 krónur
og hátíðarpassa á 7000 krónur.
Hátíðarpassinn veitir rétt til þess
að fá útgefinn einn miða á hverja
sýningu. Miðasala fer fram í upp-
lýsingamiðstöð hátíðarinnar í Iðu
við Lækjargötu og í sjálfboðaliða-
miðstöð að Laugavegi 35. Staka
miða og miða á sérviðburði er
einnig hægt að kaupa á riff.is og
midi.is og stakir miðar og afslátt-
arkort eru seld í bíóhúsum.
Nýjasta hefti Tímarits Máls og
menningar, það þriðja á þessu ári,
er í djarfari kantinum. Alla vega ef
horft er til forsíðu blaðsins þar sem
eru fjórar nektarmyndir af mynd-
listarmanninum Gylfa Gíslasyni.
Myndirnar voru bannaðar á Tví-
æringnum í Rostock árið 1975. Í
heftinu er líka bréf sem Gylfi, sem
lést sviplega árið 2006, skrifaði
föður sínum frá Amsterdam eftir
að myndirnar voru bannaðar.
Er hinn vinsæli sjónvarpsþáttur
Næturvaktin allur þar sem hann
er séður? Andri Fannar Ottósson
og Steinar Örn Atlason sýna fram
á í skemmtilegri grein að í raun
og veru er serían nokkuð nákvæm
myndskreyting við sálgreiningu
Freuds. Þar stemmir allt, íd-ið,
sjálfið og yfirsjálfið. Áhugasamir
geta líka athugað eftir lestur grein-
arinnar hvort greiningin passi líka
við Dagvaktina, framhald Nætur-
vaktarinnar, sem hófst á Stöð 2 um
síðustu helgi.
Hápunktunum í tónleikaferða-
lagi Bjarkar um heiminn í kjölfar
útkomu plötunnar Volta er lýst í
grein sem ber yfirskriftina Ferðin
á heimsenda. Höfundur er Jónas
Sen tónlistarmaður en hann er
einn þeirra sem tóku þátt í þessu
eins og hálfs árs langa ævintýri.
Jón Karl Helgason rifjar upp bók-
menntaleg ferðalög tveggja 19.
aldar rithöfunda (og sögupersóna
þeirra) í grein sem ber það dular-
fulla heiti Grasaferðalok. Flagg-
skip heftisins er svo Linda Vil-
hjálmsdóttir með ljóðasyrpuna
„frelsi“.
Þá er ónefnt „raunveruleika-
kvæði“ þar sem samtal tveggja
manna í íslenskum sjónvarpsþætti
er skrifað upp orð fyrir orð. Um er
að ræða frægt viðtal sem Arnar
Gauti, einn umsjónarmanna Inn-
lits/útlits á Skjá einum, tók við Ás-
geir Kolbeinsson fjölmiðlamann í
tengslum við íbúð sem hann hafði
nýlega keypt.
Þá eru að venju nokkrir rit-
dómar í heftinu, þar á meðal um
Himnaríki og helvíti eftir Jón
Kalman Stefánsson, Kalt er ann-
ars blóð eftir Þórunni Erlu-Valdi-
marsdóttur og Rimla hugans sem
Einar Már Guðmundsson sendi
frá sér á síðasta ári.
NektarmyNdir og NæturvaktarsálgreiNiNg
bækur
Glerkastalinn
Höfundur: Jeannette Walls
Þýðandi: anna maría Hilmarsdóttir
Útgefandi: Jpv útgáfa
Jeannette Walls bókin er
byggð á ævi höfundarins.
Næturvaktin er íslenska þjóðin
sálgreind í Næturvaktinni?