Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2008, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2008, Page 2
mánudagur 6. október 20082 Fréttir Bankastjórn Seðlabankans hefur sætt vaxandi gagnrýni að undanförnu. Hún þykir hafa gert sig seka um alvar- leg mistök á undanförnum misser- um. Fyrir viku kastaði tólfunum þegar Glitnir var þjóðnýttur fyrir milligöngu Seðlabankans og tiltrú innanlands og erlendis á íslenska fjármálakerfinu hrundi í kjölfarið. Sérfræðingar er- lendis og innanlands eru agndofa og hrista höfuðið. Hagfræðingarnir Þorvaldur Gylfa- son og Jón Daníelsson lýstu því báðir yfir í gær að bankastjórar Seðlabank- ans ættu að víkja úr starfi. Þorvaldur sagði við DV að gerræðisleg aðferð við að þjóðnýta Glitni væri alvarleg brottrekstrarsök. Jón sagði í viðtali við enskt dagblað að það yki trú á Íslandi ef skipt yrði um bankastjórn. Dýrt að segja upp bankastjórum Fari ríkisstjórnin þá leið að skipta út bankastjórunum fyrir nýja getur það reynst dýrt. Seðlabankastjórar eru skipaðir til sjö ára í senn og hafa frá 1,5 milljónum upp í 1,8 milljónir í mánaðarlaun. Ingimundur Friðriksson var skipaður síðastur bankastjóranna þriggja, árið 2006, og á því tæp fimm ár eftir af skipunartíma sín- um. Davíð Oddsson var skipaður tæpu ári áður og á fjögur ár eftir af skipunartíma sínum. Hann er auk þess formaður bankastjórn- ar og á hæstum launum þre- menninganna. Eiríkur Guðna- son hefur verið bankastjóri lengst þeirra allra, eða frá 1994. Hann átti þrjú ár eftir af seinni fimm ára skipunartíma sínum þegar ný lög um Seðlabankann tóku gildi. Skip- unartími hans miðast því við það skipti þegar hann var næst skipað- ur seðlabankastjóri, árið 2004. Sam- kvæmt því á hann þrjú ár eftir af skipunartíma sínum. Fyrir þessi tólf ár sem seðlabankastjórarnir eiga samanlagt eftir af skip- unartíma sínum gæti ríkissjóður þurft að greiða þeim allt að 230 millj- ónir króna í laun. Pólitískari en forverarnir Davíð Oddsson varð seðlabanka- stjóri í október 2005. Á blaðamanna- fundi í Valhöll 27. september, um mánuði fyrr, hafði hann tilkynnt al- þjóð um þá ákvörðun sína að hætta í stjórnmálum og gefa ekki kost á sér áfram sem formaður Sjálfstæðis- flokksins. Þennan sama morgun hafði Hall- dór Ásgrímsson forsætisráðherra undirritað skipunarbréf um að Dav- íð tæki við embætti seðlabankastjóra og yrði formaður bankastjórnarinnar. Fyrir á fleti var Birgir Ísleifur Gunnars- son seðlabankastjóri og flokksbróðir Davíðs. Hann vék hljóðlega fyrir for- manninum. Kaup seðlabankastjór- anna var fljótlega hækkað; mánað- arlaun Davíðs hækkuðu um á þriðja hundr- að þúsund krónur. Í stöðu seðlabankastjóra hefur Davíð þótt ganga lengra en forverar hans í pólitískum yfirlýsingum. Skemmst er að minnast ummæla hans um að gengisfall krónunnar væri hermdar- verk erlendra vogunarsjóða og nú nýverið um skömm hans og fyrir- litningu á þeim sem taka stöðu gegn krónunni. Agavald og ráðríki Agavald Davíðs er vel þekkt frá því hann varð borgarstjóri í Reykjavík 1982. Hann er talinn ráðríkur, krefst skilyrðislausrar hlýðni. Hann á það til að einangra menn og tyfta með ýms- um hætti sem fara gegn honum. Jafn tryggur er hann þeim sem sýna hon- um skilyrðislausa hollustu. Þessum aðferðum virðist hann einnig hafa beitt í Seðlabankanum. Til þess er tekið að hann tali vart við fjölda yf- irmanna í bankanum, þeirra á með- al Arnór Sighvatsson, yfir- hagfræðing Seðlabankans, og Sturlu Pálsson, fram- kvæmdastjóra alþjóða- og markaðssviðs bank- ans. Athygli vakti einnig að Davíð hafði ekki kallað hagfræð- inga eða lögfræð- inga Seðlabank- ans til ráðgjafar áður en ákveð- ið var að þjóð- nýta Glitni fyrir rúmri viku. Hinir tveir Seðla- banka- stjórnin er skipuð tveimur bankastjórum auk Davíðs; Eiríki Guðnasyni og Ingi- mundi Friðrikssyni. Eiríkur hefur verið seðlabanka- stjóri frá 1994 en hefur starfað við bankann allar götur frá 1969, fyrst sem fulltrúi og hagfræðingur, aðstoð- arbankastjóri frá 1987 og bankastjóri frá 1994. Ingimundur Friðriksson hagfræð- ingur varð bankastjóri tímabundið þegar Jón Sigurðsson tók sér leyfi frá störfum sumarið 2006. Hann kom fyrst í bankann 1973 og hefur starfað samfellt við bankann frá 1975. Ingi- mundur gegndi einnig bankastjóra- stöðu tímabundið árin 2002 og 2003. Eiríkur og Ingimundur hafa geng- ið í takt með Davíð og þannig hefur stjórn Seðlabankans komið fyrir sem samhent heild. Þó má geta þess að Davíð virtist hafa takmarkað og í það minnsta mjög óformlegt samráð við Eirík og Ingimund þegar hann lagði til atlögu við Glitni og taldi ríkisstjórnina á að þjóðnýta hann fyrir 84 milljarða króna. Hvíldarheimili stjórnmála- foringja Hávaxta- stefna Seðla- bankans hefur sætt vaxandi gagnrýni mörg und- anfarin misseri. Hún hef- ur með- al ann- ars orðið til þess að halda uppi gengi krónunnar og lokk- að erlenda fjárfesta til kaupa á krónu- bréfum í þeim tilgangi að hagnast á háum vöxtum hér á landi. Hávaxta- stefnan hefur heldur ekki fært bank- ann nær því markmiði sínum að koma verðbólgunni niður fyrir 4 pró- sent eins og lögboðið hefur verið frá árinu 2001. Verðbólgan er nú nálægt 15 prósent og stefnir í 20 prósent eftir 27 prósenta gengisfall krónunnar að undanförnu. „Seðlabankinn er afsprengi þeirra innviða sem menn hafa kom- ið sér upp hér á landi. Seðlabankinn er notaður sem lúxushvíldarheimili fyrir afdankaða stjórnmálamenn,“ segir Þorvaldur Gylfason hagfræði- prófessor. „Hluti lausnar vandans er að bankastjórn Seðlabankans víki.“ Af þessu leiðir að líkur á mistökum verða að sama skapi meiri en ef ópólitískir fagmenn væru Kröfur um brottrekstur seðlabankastjóranna hafa aukist eftir því sem íslenskt efnahagslíf hefur sokkið dýpra í öldudal fjármálakreppunnar. Hagfræðingarnir Jón Daníelsson og Þorvaldur Gylfason segja báðir að það myndi styrkja íslenskt efnahagslíf ef skipt yrði um bankastjórn Seðlabankans. Hávaxtastefnan og lækkun bindiskyldu bankanna þykja hafa verið misráðin og þjóðnýting Glitnis án samráðs við helstu hagfræðinga bankans leiddi til hruns íslensku krónunnar. JóHAnn HAuksson blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Þei éðu ferðinni „Hluti lausnar vand- ans er að bankastjórn Seðlabankans víki.“ Tæp 40 ár í bankanum eiríkur guðnason hefur verið seðlabanka- stjóri frá 1994 en hefur starfað við bankann allar götur frá 1969. bankastjórarnir hafa gengið í takt og þannig hefur stjórn Seðlabankans komið fyrir sem samhent heild. Aldarþriðjung í bankanum Ingimundur Friðriksson hagfræðingur varð bankastjóri tímabundið þegar Jón Sigurðsson tók sér leyfi frá störfum sumarið 2006. Hann hefur starfað samfellt við bankann frá 1975.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.