Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2008, Blaðsíða 4
mánudagur 6. október 20084 Fréttir
„Þeir yrðu fegnastir ef það myndi
slokkna á mér,“ fullyrðir Þór Óliver
Gunnlaugsson, fangi á Litla-Hrauni.
Hann segist nú í hungur- og lyfja-
verkfalli vegna óánægju með það
sem sem hann kallar „linnulaust
áreiti starfsmanna fangelsisins“.
Eins og DV sagði frá fór Þór Óli-
ver í hjartaþræðingu 19. september.
Hann er afar ósáttur við að fá ekki
að jafna sig annars staðar. Hann seg-
ir loftræstingu á Litla-Hrauni ábóta-
vant og ber því við að hann sé áreitt-
ur oftar en gengur og gerist. „Ég var
varla sofnaður nóttina eftir að ég
kom aftur hingað þegar ég var rif-
inn upp. Þá var leitað á mér og í klef-
anum. Ég hef auk þess tvisvar verið
kallaður í þvagprufu. Þetta eru bara
ofsóknir á hendur mér. Ég treysti
ekki fólkinu sem hér vinnur. Ég hef
því ákveðið að neyta hvorki matar né
þeirra lyfja sem þeir skammta mér,“
segir Þór Óliver sem situr inni vegna
manndráps.
Erlendur Baldursson hjá Fang-
elsismálastofnun segir að heilbrigð-
isstarfsfólk fangelsisins meti hverju
sinni hvort fangar þurfi heilsu sinn-
ar vegna að skipta um umhverfi.
Menn geti ekki stjórnað því hvar þeir
eru. Hann segir að fangar gefi oft alls
kyns ástæður fyrir því að fá að af-
plána annars staðar. Aðeins 20 pláss
séu á Kvíabryggju en þar vilji allir 140
fangarnir vera.
Þór Óliver segir, máli sínu til
stuðnings, að loftræsting á Litla-
Hrauni sé slæm og að það fari illa í þá
sem eru nýkomnir úr hjartaaðgerð.
Margrét Frímannsdóttir, forstöðu-
maður á Litla-Hrauni, segir að vissu-
lega sé loftið ekki eins og
best gerist en bendir á
að verið sé að setja
upp nýjar viftur og
loftræstikerfi. Það
horfi því til betri
vegar. Hún seg-
ist ekki hafa fengið
neina tilkynningu
um hungurverkfall.
baldur@dv.is
Þór Óliver Gunnlaugsson fangi segist ósáttur við áreiti:
Hjartasjúklingur í hungurverkfalli
Unnið er að endurbót-
um á loftræstikerfi á
Litla-Hrauni Fangi
segist verða fyrir miklu
áreiti í fangelsinu og vill
afplána annars staðar.
Börðust í mat-
vörubúð
Til áfloga kom á milli tveggja
viðskiptavina 10-11 í Reykjanes-
bæ um klukkan sex á sunnudags-
morgun. Starfsmenn verslunar-
innar kölluðu til lögreglu en þó
nokkur hópur fólks hafði þá safn-
ast saman inni í versluninni og
var sumum frekar heitt í hamsi.
Flestir viðskiptavinanna voru að
koma af skemmtistöðum bæjar-
ins. Því var töluverð ölvun á með-
al viðskiptavinanna sem virtust
margir hverjir ekki vita af hverju
allt fór í háaloft í versluninni.
Fjórir lögreglumenn úr Kefla-
vík stilltu til friðar og ræddu
málin við nokkra æsta viðskipta-
vini sem þó róuðust á endanum.
Fjöldi fólks var saman kominn í
miðbæ Reykjanesbæjar á laugar-
dagskvöldið en skemmtanahald
fór þó vel fram.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Engin kreppa
á Korputorgi
Ekki var að sjá að fólk sæi
ástæðu til að spara pening-
ana sína þegar litið var inn
á Korputorg og bílastæðin
við þessa nýjustu verslun-
armiðstöð landsins. Fjöldi
fólks lagði leið sína á Korpu-
torg við Vesturlandsveg á
laugardag og sunnudag. Þar
höfðu verið auglýst marg-
vísleg tilboð til að draga fólk
að við opnun búðanna sem
þar verða til húsa. Fór svo að
nokkrir ákváðu að hverfa frá
þegar þeir sáu mannfjöldann.
Slógust við
lögreglu
Lögreglan í Keflavík lenti
í slagsmálum við þrjá menn
og eina konu í fjölbýlishúsi í
Reykjanesbæ á laugardags-
kvöldið. Forsaga málsins er sú
að lögreglan hugðist handtaka
einn mannanna í fjölbýlishús-
inu en sú aðgerð lögreglu fór illa
í félaga og vinkonu mannsins.
Þau tóku sig því til og reyndu að
„frelsa“ hann úr haldi lögregl-
unnar en björgunaraðgerð-
in skilaði engum árangri. Til
snarpra átaka kom á milli fólks-
ins og lögreglu en tveir lögreglu-
menn slösuðust lítillega eftir
hnefahögg og spörk.
Öll voru þau handtekin á
endanum og fengu að gista
fangageymslur lögreglunn-
ar í Keflavík yfir nóttina en var
sleppt að lokinni skýrslutöku.
Verzlingar
unnu MR
Verzlunarskóli Íslands
bar sigur úr bítum í árlegri
viðureign við Menntaskólann
í Reykjavík í ræðukeppni í
gærkvöldi. Keppnin fór fram
í Bláa salnum í Verzló og var
húsið fullt út úr dyrum. Mun-
urinn á liðunum var 94 stig
og var ræðumaður kvöldsins,
Hafsteinn Gunnar Hauksson
stuðningsmaður Verzló, með
630 stig.
Þetta er í fyrsta skiptið
sem Verzló vinnur keppnina í
þrjú ár og var því til mikils að
vinna fyrir skólann.
KRÍSUFUNDIR
ALLA HELGINA
Ráðherrar, bankamenn og fulltrúar launþega og atvinnurekenda sátu hvern fund-
inn á fætur öðrum í lífróðri íslensku þjóðarinnar. Í miðri bankakreppu kepptust
menn við að fá fjármuni inn í landið svo hægt væri að koma landinu í gang aftur.
Krísufundirnir voru margir og lang-
ir um helgina þegar áhrifamenn í
stjórnmálum og viðskiptum reyndu
að finna leið út úr þeim þrenging-
um sem íslenskt þjóðarbú er komið
í. Stöðug fundahöld í Ráðherrabú-
staðnum við Tjarnargötu og víðar í
höfuðborginni settu mark sitt á alla
þjóðmálaumræðu á sama tíma og
þjóðin virtist kaupa matvæli og aðr-
ar vörur í gríð og erg.
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra, sem fyrir rúmri viku neitaði
því að um krísufundi væri að ræða
eftir fund með bankastjórum Seðla-
bankans um málefni Glitnis, sat nú
hvern krísufundinn á fætur öðrum.
Hann kallaði menn til fundar við sig
í Ráðherrabústaðinn þar sem þeir
streymdu inn hver á fætur öðrum;
ráðherrar ríkisstjórnarinnar, stjórn-
endur fjármálafyrirtækja, hagfræð-
ingar, fulltrúar þings og Seðlabanka
að ógleymdum fulltrúum launþega
og atvinnurekenda. Sumir komu
einu sinni. Aðrir komu, fóru og
komu aftur, jafnvel trekk í trekk.
Vantar hundruð milljarða
Ríkið biðlaði til lífeyrissjóðanna
um að flytja hluta eigna þeirra inn
í landið til að bæta stöðuna. Þar var
talað um að ná inn 200 milljörðum
króna í erlendum gjaldeyri. Allt í allt
var talað um að Ísland þyrfti að fá á
annað þúsund milljarða króna inn
í landið til að komast út úr þeirri
lausafjárkreppu sem íslenskt þjóð-
félag hafði lent í.
„Í mínum huga vantar skýr svör
frá fjármálakerfinu í landinu um
hvað bankar og fjármálastofnanir
ætla að gera til að lífeyrissjóðirn-
ir geti gert upp hug sinn,“ sagði Ei-
ríkur Jónsson, formaður Kennara-
sambands Íslands, eftir fund með
ráðherrum ríkisstjórnarinnar í Ráð-
herrabústaðnum í gærkvöld. Hann
var einn margra fulltrúa launþega
sem héldu á fund ráðamanna.
Gríðarleg kreppa
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra virtist ekki í nokkrum vafa
um hversu mikill vandinn væri.
„Það eru vissulega erfiðir tím-
ar, eins og ég var að segja. Það er
mesta kreppa á alþjóðlegum fjár-
málamörkuðum sennilega síðan
1914,“ svaraði Geir spurningu um
hvort nú væri að renna upp ögur-
stund fyrir íslensku bankana.
Og í miðri þessari kreppu þeytt-
ust stjórnmálamenn og auðmenn
fram og til baka um borgina. Fund-
ir voru haldnir í húsakynnum
Seðlabankans og fjármálastofn-
ana auk fleiri húsa. Allir kepptu að
því að ná saman um aðgerðir til að
vinna bug á vandanum.
Mikil óvissa alla helgina
Um kvöldmatarleytið í gær, rétt
um það leyti sem fyrstu ljósvakaf-
réttirnar fóru í loftið, kom Geir H.
Haarde forsætisráðherra fram og
svaraði spurningum fjölmiðla.
Svörin voru þó flest á eina leið.
Óvissan var mikil, ekkert í hendi og
margt sem ætti eftir að koma í ljós.
Enda streymdu menn á fund
Geirs og annarra ráðherra þegar
leið á kvöldið. Ingimundur Frið-
riksson seðlabankastjóri kom og
fór án þess að segja orð við fjöl-
miðla. Fulltrúar atvinnurekenda
og launþega sögðu fleira en virtust
vita fátt. Sigurjón Árnason læddist
inn í Ráðherrabústaðinn án þess
að nokkur tæki eftir honum. Á ell-
efta tímanum voru nær allir ráð-
herrar ríkisstjórnarinnar komnir
í hús til fundar. Þaðan fóru allir á
þingflokksfundi undir miðnætti.
Framtíð bankanna óviss
Mikið var rætt um fram-
tíð bankanna um helgina. Eink-
um veltu menn fyrir sér framtíð
Landsbanka, hvers staða mun
orðin ansi slæm. Jafnvel var rætt
um að hann kynni að sameinast
eða verða keyptur af Kaupþingi.
Það báru talsmenn Landsbanka
þó til baka.
BrynjÓLFUr ÞÓr GUÐMUnDSSOn
OG erLa HLynSDÓttir
blaðamenn skrifa: brynjolfur@dv.is og erla@dv.is
Gríðarleg kreppa geir vildi fátt
upplýsa um aðgerðir í gærkvöldi en
sagði kreppuna mjög harða. MynD rÓBert