Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2008, Qupperneq 8
mánudagur 6. október 20088 Fréttir
„Af hverju er ríkið að stuðla að auk-
inni tóbaksnotkun í landinu?“ spyr
Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæð-
isflokks og formaður heilbrigð-
isnefndar Alþingis. Henni finnst
skjóta skökku við að íslenska rík-
ið leyfi sölu á tóbaki á stórlækkuðu
verði í Fríhafnarversluninni á með-
an yfirvöld berjast fyrir því að fólk
hætti að nota tóbak. „Ríkið er að
vinna gegn heilbrigðismarkmiðum
sínum með þessu,“ segir hún.
Engir smáaurar
Hlynur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Fríhafnarinnar,
segir alla tapa á því fjárhags-
lega ef hætt yrði að selja þar tóbak.
„Það er með tóbak eins og allt ann-
að sem selt er í Flugstöðinni að það
lækkar álögur á farþega sem annars
væru greiddar í gegnum flugmiða-
verð og flugvallarskatta,“ segir hann
og bendir á að ágóði af sölunni fari
til uppbyggingar Flugstöðvarinn-
ar. „Ef tekinn er út svona stór tekju-
þáttur er það ekki Fríhöfnin heldur
Flugstöðin sjálf sem tapar mestu,“
segir hann.
Aðspurður segist Hlynur ekki
hafa á takteinum hversu stór hluti
tóbakssala er af heildarsölu Frí-
hafnarinnar. Hann tekur þó fram
að hann myndi þó varla gefa
það upp. „Við erum ekki að tala
um neina smáaura,“ segir hann og
bendir á að ef Fríhöfnin seldi ekki
tóbak myndi fólk einfaldlega kaupa
það erlendis. „Veltan myndi þá fara
út úr landinu. Það er fyrst og fremst
betra fyrir almenning og Ísland í
heild sinni að halda versluninni í
landinu.“
Hátt verð af heilsufarsástæðum
Ásta hefur lagt fram á Alþingi fyr-
irspurn til Árna Mathiesen fjármála-
ráðherra þar sem hún óskar meðal
annars eftir rökum fyrir tóbakssölu
í Fríhöfninni og tölum yfir hversu
mikið magn tóbaks er flutt tollfrjálst
inn í landið í gegnum Fríhafnar-
verslunina.
„Ég hugsa þetta út frá heilsufars-
ástæðum. Við sjáum að þarna er ver-
ið að flytja töluvert af sígarettum inn í
landið og selja á mun lægra verði en
gert er innanlands. Hátt verð á sígar-
ettum innanlands hefur einmitt með-
al annars verið rökststutt af heilsu-
farsástæðum,“ segir Ásta.
Hún rifjar upp að Læknafélag Ís-
lands hafi á aðalfundi sínum í sept-
embermánuði hvatt til þjóðarátaks
gegn tóbaksnotkun. Þá var lagt til að
verð á tóbaki yrði hækkað enn meira
og að innan tíu ára væri tóbak ekki fá-
anlegt nema gegn lyfseðli.
Árni Mathiesen hefur þrjár vikur til
að svara spurningum Ástu skriflega. Í
framhaldinu tekur hún málið upp í
umræðum á Alþingi og beinir þar til
Árna spurningunni: „Telur fjármála-
ráðherra koma til greina að hætta
sölu tóbaks í Fríhafnarverslun?“
Ásta Möller vill að sölu tóbaks í Fríhöfninni verði hætt og ber við heilsuverndarsjónar-
miðum. Framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar segir að ágóði af tóbakssölunni fari til upp-
byggingar flugstöðvarinnar. Ef þessi stóri tekjuþáttur væri tekinn út myndu flugvallar-
skattar og fargjöld hækka.
FLUGIÐ DÝRARA
ÁN TÓBAKSINS
Erla Hlynsdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
„Það er fyrst og fremst betra fyrir almenning og
Ísland í heild sinni að halda versluninni í landinu.“
Uppbyggingarstarf-
semi Framkvæmda-
stjóri Fríhafnarinnar í
Leifsstöð segir ágóðann
af tóbakssölu greiða
fyrir uppbyggingu
flugstöðvarinnar.
Mynd: sigtryggUr ari
Vinnur gegn heilbrigðismarkmiðum
ásta möller segir ríkið vinna gegn heilbrigðis-
markmiðum sínum með því að leyfa sölu
tóbaks á niðursettu verði í Fríhöfninni.
tóbak gegn lyfseðli
Læknafélag Íslands
hvetur til þjóðarátaks
gegn tóbaksnotkun.
Tvíhliða
munstur
Eykur grip-
öryggi og
stuðlar að
betri aksturs-
eiginleikum
við hemlun
og í beygjum
Bylgjótt mynstur
Til að tryggja betra
veggrip
Þrívíðir gripkubbar
Zik-Zak lóðrétt lögun kubbanna
tryggir minni hreyfingu á þeim
og aukna rásfestu
Tennt brún
Eykur
gripöryggi
Stærri snertiflötur - aukið öryggi
30 daga eða 800 km skilaréttur
Svo sannfærðir erum við um kosti TOYO harðskeljadekkjanna að við bjóðum 800 km
eða 30 daga skilarétt ef þið eruð ekki fullkomlega sátt. Andvirðið gengur þá að fullu til
kaupa á öðrum hefðbundnum vetrar- eða nagladekkjum hjá okkur, við umfelgum fyrir
þig hratt og örugglega.
Rændu og börðu
Tveir menn, hugsanlega af
erlendu bergi brotnir, rændu og
gengu gróflega í skrokk á manni
á sjötugsaldri aðfaranótt sunnu-
dagsins. Lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu segir mennina á aldr-
inum 25 til 30 ára en þeirra er nú
leitað. Mennirnir tveir eru taldir
hafa leitt fórnarlambið inn í
húsasund skammt frá gatnamót-
um Laugavegar og Frakkastígs
þar sem þeir síðan börðu hann
og rændu. Annar mannanna
var með ljósbláa húfu, í ljósum
leðurjakka með hvítum röndum
þvert yfir brjóstkassa en hinn
var í dökkum jakka, með dökka
prjónahúfu og hugsanlega í
ljósum gallabuxum. Lögreglan
á höfuðborgarsvæðinu biður
alla þá sem geta veitt einhverjar
upplýsingar að hafa samband.
InnlendarFréttIr
ritstjorn@dv.is
Hættuleg
gatnamót
Umferðaróhöppum þar sem
slys verða á fólki hefur fækkað
nokkuð á höfuðborgarsvæðinu,
eða um 15 prósent síðastliðna
sjö mánuði samanborið við
sama tíma á síðasta ári, sam-
kvæmt upplýsingum frá Umferð-
arstofu. Flest slysin hafa orðið
á gatnamótum Suðurlands-
brautar, Kringlumýrarbrautar og
Laugavegar, eða fjórtán talsins
síðastliðið eitt og hálft ár. Í öðru
sæti eru gatnamót Kringlumýr-
arbrautar og Bústaðarvegar en
þar hafa orðið tíu slys á fólki.
Lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu hefur haldið uppi sérstöku
eftirliti á þeim gatnamótum þar
sem slysin hafa verið flest og á
tímum þegar umferðarþunginn
er hvað mestur. Samkvæmt lög-
reglunni er markmiðið að hvetja
ökumenn til aukinnar aðgæslu.