Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2008, Blaðsíða 12
mánudagur 6. október 200812 Fréttir
Þýska ríkisstjórnin hefur ákveðið að
ábyrgjast allar bankainnistæður ein-
staklinga í þýskum bönkum. Angela
Merkel, kanslari Þýskalands, tilkynnti
um þetta í gær. Ábyrgðin er viðbrögð
stjórnvalda við erfiðleikum Hypo-fast-
eignabankans þýska. Bankinn er í veru-
legum vandræðum og óttast menn jafn-
vel að hann geti farið á hausinn.
„Við ætlum ekki að leyfa vanda einn-
ar fjármálastofnunar að verða að vanda
alls kerfisins. Þess vegna vinnum við nú
hörðum höndum að því að bjarga Hypo-
fasteignabankanum,“ sagði Merkel.
Viðbúið er að ríkisstjórnir í fleiri
aðildarríkjum Evrópusambandsins
fari sömu leið og veiti ríkisábyrgð fyr-
ir bankainnistæðum einstaklinga. Nic-
olas Sarkozy Frakklandsforseti kallaði
leiðtoga helstu ríkja Evrópu á sinn fund
á laugardag. Þar ákváðu Bretar, Frakk-
ar, Ítalir og Þjóðverjar að vinna sameig-
inlega að því að styrkja fjármálakerfið.
Niðurstaðan varð þó sú að grípa ekki til
jafn umfangsmikilla aðgerða og þeirra
sem bandarísk stjórnvöld hafa ráðist í til
að koma í veg fyrir enn frekari upplausn
í bankakerfinu.
Hypo er næststærsti lánveitandi til
fasteignakaupa. Eigendur og stjórn-
endur bankans róa nú lífróður til að
koma í veg fyrir að hann fari í þrot. Í síð-
ustu viku var tilkynnt að tekist hefði að
safna saman 35 milljörðum evra, and-
virði 5.450 milljarða króna, í sjóð til að
styrkja bankann í sessi. Þýska ríkið átti
að lána bankanum stærstan hluta þess
fjár en aðrir bankar hluta uppbæðarinn-
ar. Skömmu síðar gerðist það hins veg-
ar að bankarnir sem ætluðu að láta til
sín taka drógu sig í hlé. Eftir það komst
fjármögnun bankans og framtíð hans í
uppnám.
brynjolfur@dv.is
Þýsk stjórnvöld bregðast við bankakrísunni með ákveðnum hætti:
20 % afmælisafsláttur
af öllum hefðbundnum
myndatökum og stækkunum
í október.
Nú er um að gera að panta stax
Mynd - ljósmyndastofa í 25 ár.
MYND
Bæjarhrauni 26, Hafnarfirði
S: 565 4207 www.ljosmynd.is
Morðtól selt seM tískuvara
Hvaða breski unglingur sem er hef-
ur undanfarið getað keypt svissnesk-
an Strellson-tískujakka og undir eins
verið vopnaður fimm sentímetra
löngum hníf. Stórverslanakeðj-
an T.K. Maxx hefur verið með jakk-
ana umdeildu til sölu. Málið þykir
hið svívirðilegast í ljósi þess að fyr-
ir ári var afgreiðslustúlka verslana-
keðjunnar, hin 26 ára Rina Panchal,
stungin til bana í vinnunni.
Skandall
The Sun greindi frá málinu fyr-
ir helgi eftir að blaðinu hafði bor-
ist ábending frá viðskiptavini T.K.
Maxx. Viðskiptavinurinn, Steve
Gale, fann einn slíkan jakka í úti-
búi verslanakeðjunnar nærri heim-
ili sínu í Farnborough. „Þetta er al-
gjör skandall. Miðað við umræðuna
sem verið hefur í þjóðfélaginu um
hnífaárásir og morð er svívirðilegt
að stór keðja sé með jakka sem þessa
til sölu. Ég trúði því varla þegar ég sá
hvað mætti mér í vasa jakkans,“ segir
Steve Gale.
Var á útsölu
Strellson-jakkinn umdeildi kost-
aði yfirleitt um 200 pund en verðið á
honum hafði verið stórlækkað, niður
í 59 pund í T.K. Maxx. Jakkinn kemur
með áfastri keðju sem á hangir vasa-
hnífur. Keðjan liggur að brjóstvasa
innan á jakkanum þar sem vopnið
er falið. Þegar Steve Gale spurði af-
greiðslumann hvort það væri ásætt-
anlegt að jakkinn kæmi fullbúinn
hníf, fékk hann þau svör að líklega
væri þetta útilegujakki. Gale var
sjálfur á leið á fótboltaleik og hafði
stoppað í T.K. Maxx til að kaupa sér
jakka. „Ég hefði líklega verið hand-
tekinn ef ég hefði reynt að komast
inn í honum og hefði ekki áttað mig
á að ég væri vopnaður hníf,“ segir
Gale í samtali við The Sun.
Afgreiðslustúlka var drepin
Hin 26 ára Rina Panchal var myrt
á hrottafenginn hátt með hníf í jan-
úar í fyrra þegar hún var í vinnunni
hjá T.K. Maxx. Það var hinn 31 árs
William Alikori sem stakk hana 11
sinnum þar sem hún var við störf í
verslunni. Alikori hengdi sig í fang-
elsi eftir að hafa verið dæmdur fyrir
morðið.
Fjarlægðu alla jakkana
Eftir að The Sun hafði sam-
band við höfuðstöðvar T.K. Maxx,
sem er með 180 verslanir víðs veg-
ar um Bretland, tók verslanakeðj-
an Strellson-jakkana úr sölu. Í yf-
irlýsingu fyrirtækisins segir að það
styðji og framfylgi lögum og reglum
sem eru í gildi um sölu hnífa. Þeim
hafði orðið ljóst að jakkarnir væru
til sölu hjá keðjunni og samstundis
látið þær skipanir berast til útibúa
sinna að fjarlægja jakkana úr versl-
ununum. Lög í Bretlandi kveða á
um að ólöglegt sé að selja og mark-
aðssetja hnífa sem líklegt sé að not-
aðir verði til ofbeldisverka, sem og
að selja einstaklingum undir 18 ára
hnífa.
Hnífafaraldur geisar
Það sem af er ári hafa 27 ungling-
ar verið stungnir til bana í Lundún-
um einum saman og hefur víðtækum
aðgerðum verið hrint í framkvæmd
til að taka á vopnaburði ungmenna í
von um að takast á við morðölduna.
Mikill þrýstingur var á stjórnvöld að
taka á vandanum sem brugðu meðal
annars á það ráð að fá enska lands-
liðið í knattspyrnu í lið með sér til að
reyna að ná til unga fólksins.
Svo virðist sem átakið hafi skilað
einhverjum árangri þar sem minna
hefur borið á fregnum af hnífaglæp-
um á Bretlandi undanfarið. Sorg að-
standenda hinna myrtu og áhyggj-
ur almennings hafa hins vegar ekki
minnkað þó lægð sé á ástandinu og
viðbrögð fólks við „morðjakkanum“
sem seldur var á útsölu bera þess
merki.
Sigurður MikAel jónSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
Jakkinn kemur með
áfastri keðju sem
á hangir vasahníf-
ur. Keðjan liggur að
brjóstvasa innan á
jakkanum þar sem
vopnið er falið.
Vel falið vopn Það þykir furðu sæta að bresk
verslunarkeðja hafi verið með jakkann til sölu.
auðveldlega megi beita hnífnum til ódæðisverka.
Hnífafaraldur átak hefur verið gert í
bretlandi gegn vopnaburði unglinga eftir
morðöldu það sem af er ári.
Það sem af er ári hafa 27 ungmenni látist eftir hnífaárásir í Lundúnum einni saman og
á Bretlandi er talað um hnífafaraldur meðal ungmenna sem svífast einskis í tilefnis-
litlum átökum. Bretar eru hneykslaðir á þeim fregnum að stórverslanakeðjan T.K.
Maxx hafi selt jakka sem koma með áföstum vasahníf.
Ábyrgjast allar bankainnistæður
Merkel tilkynnir aðgerðirnar
evrópskir þjóðarleiðtogar ákváðu að
ráðast ekki í sambærilegar aðgerðir og
bandaríkjamenn.