Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2008, Síða 17
mánudagur 6. október 2008 17Sport
Mögnuð endurkoMa LiverpooL „Við höfum reynslu af því að
koma til baka í leikjum eins gegn aC milan í úrslitum meistaradeild-
innar. aðalatriðið fyrir mig er að leikmennirnir haldi áfram að trúa því
að allt sé hægt,“ sagði rafael benitez, stjóri Liverpool, eftir magnaða
endurkomu Liverpool gegn manchester City í gær. City-menn kom-
ust í 2-0 áður en Fernando torres minnkaði muninn í 2-1. City missti
þá Pablo Zabaleta út af með rautt spjald og bætti torres við öðru
marki og skoraði dirk kuyt sigurmarkið í uppbótartíma. Liverpool er
því áfram á toppnum ásamt Chelsea, taplaust með 17 stig.
GESTAHÚS 21 m²
45 mm bjálki
GARÐHÚS 4,7-9,7 m²
34 mm bjálki
VH ehf · Sími 864-2400
VINSÆLU
GESTA- OG
GARÐHÚSIN
ERU AÐ
SELJAST UPP
Því fer hver að verða
síðastur að eignast
hús frá okkur
á gamla genginu.
Næsta sending gæti
hækkað um 20%.
08
-0
14
3
H
en
na
r h
át
ig
n
Völundarhús.is hafa til
sölu glæsileg ný gesta- og
garðhús sem eru enn
sterkbyggðari en áður.
Nýju húsin eru bjálkahús frá
34 mm að þykkt og koma
með tvöfaldri vatnslæsingu.
Húsin eru tilvalin geymsla
fyrir grillið og
garðhúsgögnin.
GESTAHÚS 15 m²
45 mm bjálki
GESTAHÚS 25 m²
70 mm bjálki
frá Njarðvík fyrir tímabilið fór mik-
inn í fyrri hálfleik og skoraði 17 stig.
Landi hans, títt nefndur Jason Dour-
isseau, var einnig öflugur og raðaði
niður körfum af ýmsum stöðum vall-
arins. KR-ingar hafa greinilega feng-
ið feitan bita þarna því ekki getur Ja-
son einungis hoppað hæð sína og
skorað fallegar körfur, hann er líka
fjandanum fljótari og var drjúgur í
hraðaupphlaupum.
Hundrað stiga hálfleikur
KR sýndi mikinn styrk í fyrri hálf-
leiknum þar sem þeir mættu ýmsu
mótlæti. Þó sérstaklega villudómum
sem hölluðu virkilega á þá. Dómar-
ar leiksins höfðu ekki nægilega góð
tök á leiknum og voru margir dóm-
ar sem bæði lið settu stór spurning-
armerki við. Þegar stutt var eftir af
fyrri hálfleik var búið að dæma fjór-
tán villur á KR-inga en aðeins sex á
Grindvíkinga sem klúðruðu aðeins
einu vítaskoti í fyrri hálfleiknum.
En með Jón Arnór Stefánsson,
Jakob Örn Sigurðarson og Douriess-
au í fínu formi skoraði KR grimmt á
móti og þegar flautað var til hálfleiks
var staðan jöfn, 51-51. Ekki verður
skilið við fyrri hálfleikinn án þess að
minnast á innkomu Darra Hilmars-
sonar sem kom sterkur inn og skor-
aði alls 11 stig.
kr tók völdin
Hálfleiksræða Benedikts Guð-
mundssonar, þjálfara KR, hefur ver-
ið áhrifaríkari en ræða Friðriks Stef-
ánssonar kollega hans hjá Grindavík.
Vesturbæingar komu mun sterkari
til leiks í seinni hálfleik og léku við
hvern sinn fingur. Jón Arnór Stefáns-
son tók leikinn mikið til sín og áttu
Grindvíkingar í miklum vandræðum
með hraða hans og Douriessaus.
KR-ingar skoruðu fimmtán stig
gegn fimm á fyrstu tveimur mínút-
um seinni hálfleiks, breyttu stöð-
unni í 66-56 og virtust búnir að taka
öll völd á vellinum. Þeir komust svo
í 72-60 og ekkert benti til þess að
Grindavík ætlaði að koma sér aftur
inn í leikinn.
viðsnúningur gulra
Jóni Arnóri Stefánssyni og Da-
mon Baily lenti saman þegar sá síð-
arnefndi virtist gefa landsliðsmann-
inum olnbogaskot og hrinti honum
svo í gólfið. Jón Arnór brást illa við og
ætlaði að æða í Damon. Þeim var stí-
að í sundur og upp hófst mikill fund-
ur dómara um hvað ætti að dæma.
„Við náðum þarna kafla þar sem allt
gekk með okkur en eftir að leikur-
inn stöðvaðist í nokkrar mínútur var
eins og við misstum dampinn,“ sagði
Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR,
við DV eftir leikinn í gær.
Orð að sönnu hjá þjálfaranum því
Grindavík skoraði þrjá þrista í röð,
alls þrettán stig í röð, og kom sér yfir,
73-72, og varð þetta þá aftur alvöru
leikur.
Tek þetta á mig í bili
Í stöðunni 92-89 fyrir KR fékk
Grindavík 20 sekúndur til að jafna
leikinn. Það gerði Páll Axel Vilbergs-
son með þriggja stiga körfu en þurfti
svo að horfa upp á Jason Douriess-
eau skora sigurkörfuna um leið og
leiktíminn rann út. „Þetta eru svo-
lítið blendnar tilfinningar,“ sagði Páll
Axel. „Það er sárt að tapa en ég er líka
rosalega svekktur út í okkur, þetta var
algjör aulaskapur. Það á ekki að leyfa
manninum að fá svona fría körfu.
Þetta var einhver misskilningur í
vörninni sem við munum skoða. Ég
tek það á mig þangað til,“ sagði Páll
Axel sem er ánægður með liðið á
leiðinni inn í Íslandsmótið.
„Við vorum auðvitað að keppa við
frábært lið í dag en við erum nokkuð
flottir líka. Við ætlum ekki að senda
neinn heim og erum ekki í neinu
svoleiðis volæði. Við stefnum bara
á titilinn því við erum í þessu til að
vinna,“ sagði Páll Axel að lokum.
gerist svo hratt í körfunni
„Það þýðir ekkert að fagna of
snemma því það gerist allt svo hratt
í körfunni,“ sagði Benedikt Guð-
mundsson, þjálfari KR, kátur eftir
leikinn í gær. „Ég held að allir geti
verið sammála um að það hefði
ekki verið hægt að biðja um betri
körfuboltaleik. Bæði lið sýndu all-
ar skemmtilegu hliðar körfuboltans.
Það var kannski enginn haustbrag-
ur á leiknum sóknarlega en örlítið
kannski varnarlega. Bæði lið lögðu
sig fram í vörninni en það voru bara
svo margir heitir í þessum leik að það
var erfitt að stöðva þá,“ sagði Bene-
dikt að lokum.
tomas@dv.is
mynd / Sigtryggur ari
FLAUTUKARFA Í FYRSTA
ÚRSLITALEIK ÁRSINS
Heitt í hamsi
Stöðva þurfti leikinn í nokkra
stund eftir slagsmál Jón arnórs
Stefánssonar og damons bailey.
Hetjan
Jason dourisseau sem skoraði
sigurkörfuna setur niður tvö stig.
„Ég varð að skora
þessa flautukörfu því
áður hafði ég klúðr-
að fjórum sniðskotum
eða einhverju viðlíka
á lokakaflanum.“
Keflavík sterkari í lokin
Íslandsmeistarar Keflavíkur
báru sigurorð af KR í Powerade-
bikar kvenna í körfubolta í gær, 82-
71, í mjög svo sveiflukenndum leik.
Gamla brýnið Birna Valgarðsdóttir
fór fyrir sinni Keflavíkursveit og var
langstigahæst Íslandsmeistaranna.
Birna skoraði 25 stig og Pálína Gunn-
laugsdóttir 15. TeKesha Watson hafði
sig hæga hjá Keflavík í gær og skoraði
„aðeins“ 11 stig sem telst ekki mikið
á þeim bænum.
Keflavík var komið í góða
forystu, 33-21, á fyrstu mín-
útum annars leikhluta og
virtist vera að klára
leikinn strax. Þá
hófust sveiflurn-
ar og þegar þrjár
mínútur voru
eftir af fyrri hálf-
leik var KR komið í
forystu, 38-35. Íslandsmeistararnir
skoruðu þá síðustu ellefu stig hálf-
leiksins og leiddu 46-38 þegar geng-
ið var inn í hann.
Munurinn var aðeins tvö stig í lok
þriðja leikhluta, 62-60, en undir lok
leiksins skilaði reynsla Keflavíkur
sigrinum. Þær sigldu fram úr á loka-
sprettinum og unnu góðan sigur, 82-
71. Keflavík mætir grönnum sínum
í Grindavík í leik Íslands- og bikar-
meistara síðasta árs áður en leik-
tíðin fer svo á fullt.
tomas@dv.is
Úrslit í Powerade-bikar kvenna fóru fram í gær:
Tvö góð
tekesha Watson og Jón
Halldór eðvaldsson, þjálfari
keflavíkur, ræða málin.