Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2008, Side 19
mánudagur 6. október 2008 19Sviðsljós
Tilboð í október
Litun og plokkun
Tilboðsverð = 2.800.-
Verð áður = 3.700.-
Allar GOSH snyrtivörur með 10% afsl.
Allar aðrar meðferðir með 12% afsl.
! Alla fimmtudaga og föstudaga fram í nóvember verða nemar
! Alla fimmtudaga og föstudaga fram í nóvember verða nemar
hjá okkur á stofuni. Þegar að pantaðir eru tímar hjá
snyrtifræðingum á stofuni er hægt að fá aðra meðferð
samtímis með 30% afsl hjá nemanum.
„Verið velkomin í hlýlegt og róandi umhverfi
og látið streituna líða úr ykkur í amstri
dagsins“
Við erum staðsett í Glæsibæ!
Sími: 517-9291
Allar nánari upplýsingar er hægt að finna á www.vilji.is
Einnig er hægt að senda okkur póst á vilji@vilji.is
Heitustu hönkar
Hollywood
Kósí með A-Rod
Þegar allir voru búnir að gleyma
orðróminum um um meint ástarsam-
band madonnu og hafnaboltakapp-
ans alex rodrig-
uez, sást til
parsins á veit-
ingastað í new
York. allt fór í
háaloft í sumar
er sögusagnir
um samband
söngkonunnar
og rodriguez
sveimuðu um
new York-borg. Cynthina rodriguez,
eiginkona alex, sótti um skilnað við
kappann í kjölfar fréttanna og hefur
sjaldan verið jafn mikið fár í kringum
tvær manneskjur. madonna mætti við
hlið eiginmanns síns guy ritchie á
frumsýningu nýjustu myndar hans,
rocknrolla.
að sögn gesta á veitingastaðnum
dos Caminos í new York fór vel á með
madonnu og Yankees-leikmanninum
og virtust þau mjög náin.
Hættir að leika
breski grínistinn ricky gervais sem
þekktastur er fyrir hlutverk sitt í
gamanþáttunum the office og
extras stefnir á að hætta að leika á
næstunni. Þess í stað ætlar hann að
einbeita sér að handritaskrifum og
leikstjórn þar sem hann telur sig ekki
nógu góðan leikara. „Ég ætla ekki að
gera það að lífsstarfi mínu að vera
leikari. Ég hef aldrei litið á sjálfan mig
sem slíkan. Ég vildi aldrei verða
leikari, viðurkennum það bara. Ég er
ekkert stórkostlegur leikari en mér
finnst gaman að gera það. Ég ætla
samt að halda áfram að skrifa handrit
og leikstýra,“ segir ricky.
70 lög fyrir
nýju plötunA
Beyonce í miklum ham:
Söngkonan Beyonce tók upp hvorki meira né
minna en 70 lög til þess að finna rétta hljóminn á nýj-
ustu plötu sína. Platan heitir TBA og er væntanleg í
næsta mánuði. Beyonce segir á heimasíðu sinni að
hún hafi lagt allt í verkið og að hún líti á plötuna sem
barn sitt.
„Ég hef unnið að plötunni í að verða ár. Ég vildi
gefa mér tíma til að finna rétta hljóminn sem lýsir því
hvar ég er í lífi mínu. Þetta er barnið
mitt. Ég hef lagt allt í gerð
þessarar plötu og ég hef ekki eytt svona miklum tíma
í neitt sem ég hef gert síðan ég gaf út fyrstu plötuna
með Destiny‘s Child þegar ég var 15 ára,“ segir söng-
konan einlæg.
„Ég hef tekið upp 70 lög og skapað hljóm sem
opinberar hver ég er. Ég hef tekið áhættu en ég er
óhrædd. Tónlistin mun útskýra allt.“ Beyonce tekur
það einnig fram að ekkert plötufyrirtæki eða merki sé
á tónlist hennar heldur sé þetta allt frá henni komið.
Platan kemur út 18. nóvember í Bandaríkjunum.
Beyonce Knowles Segist hafa
lagt allt í nýju plötuna sína.
Sætar systur beyonce og Solange
skemmta sér saman.
Angelina Jolie komin til new York:
Fyrstu myndir eftir fæðingu