Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2008, Síða 22
mánudagur 6. október 200822 Fólkið
Íslenska reggísveitin Hjálmar hélt
tónleika á barnum Liverpool í Skt.
Pétursborg í Rússlandi í gær. Liver-
pool-barinn er í eigu Íslendingsins
Ásgeirs Halldórssonar en Ásgeir
festi kaup á barnum fyrir tæpum
tveimur árum. Áður hafði barinn
verið í tíu ár í eigu Rússa. Hjálm-
ar hafa eflaust skemmt Rússum í
kuldanum með sjóðheitri reggítón-
list sinni. Þess má geta að skemmti-
legt kynningarplakat var útbúið í
tilefni kvöldsins þar sem búið var
að teikna meðlimi Hjálma á skop-
legan hátt í öllu sínu veldi. Það er
greinilegt að Rússar skella sér fyrr
á tónleika á kvöldin en Íslendingar
þar sem tónleikarnir hófust klukk-
an sjö.
Ásdísi Rán Gunnarsdóttur var
tekið eins og Victoriu Beckham er
hún lenti á flugvellinum í Búlgaríu.
Eftir flutningana frá Svíþjóð hefur
Ásdís varla fengið frið frá fjölmiðl-
um. Þeir fjölluðu meðal annars
um veikindi hennar og reyna að ná
myndum af henni er hún fylgist með
eiginmanni sínum á fótboltaleikjum.
Nýjustu fréttirnir frá Sofiu herma að
Ásdís hafi fengið tilboð frá karla-
tímaritunum FHM og Maxims. Ásdís
ætlar sér að taka tilboðunum með
því skilyrði að hún verði á forsíðum
beggja blaðanna. Hún segir það þó
óvíst þar sem bæði tímaritin hafi þá
reglu að notast einungis við búlgar-
skar fyrirsætur á forsíðum.
Tilboð
frá fHM
Geir MæTTi,
ekki krisTján
Kristján Jóhannsson óperusöngvari ætlaði að syngja á hátíðar- og baráttufundi
SÁÁ í síðustu viku. Daginn sem samkoman fór fram hringdi annar tenór í SÁÁ-
menn og kvaðst mæta í stað Kristjáns. Forsætisráðherra flutti ávarp og fór að því
loknu á fund á Kaupþingsmanna.
„Það besta sem þeir hjá Skjá
einum gætu gert væri að leyfa
okkur sem ekki vorum valin að
taka þátt í sérstökum þætti og sjá
hvað við hefðum getað. Eða jafn-
vel að hafa bara sérþátt þar sem
fatlaðir myndu keppa innbyrð-
is,“ segir Magnús Paul Korntop
tónlistarmaður og starfsmaður í
Byko.
Í síðustu viku fjallaði DV um
mál Magnúsar sem var afar ósátt-
ur við að hafa ekki komist áfram í
áheyrnarprufum fyrir fjölskyldu-
þáttinn Singing Bee sem sýndur
er á Skjá einum. Magnús sem er
misþroska vill meina að ástæð-
ur þess að hann hafi ekki komist
áfram í þáttinn séu fötlun hans og
hugsanlega að hann sé of þungur.
Blaðamaður hafði samband
við Kristjönu Thors, dagskrár-
stjóra Skjás eins, og bar hugmynd
Magnúsar undir hana: „Ég get
ekki tekið áskoruninni eins og er
því við erum búin að taka upp alla
þættina og það er búið að taka
niður alla leikmyndina í Singing
Bee. Mér finnst þetta hins vegar
mjög skemmtileg áskorun og ég
skal alveg taka málið til athugun-
ar hjá okkur,“ segir Kristjana.
krista@dv.is
skorar á skjá einn
Magnús Korntop skorar á Skjá einn að gera aukaþátt af Singing Bee:
Magnús Korntop komst ekki
í gegnum áheyrnarprufur
fyrir Singing Bee Hann skorar
á Skjá einn að vera með
aukaþátt fyrir fatlaða.
Hátíðarfundur Sáá:
HiTaTónlisT
í kuldanuM
M
yn
d
a
rn
o
ld
„Ég hef ekkert spurt Kristj-
án hver var ástæðan. Hann tal-
aði um að hann væri hálfla-
sinn þegar ég talaði við hann á
þriðjudeginum. En hann sendi
alveg rosalega fínan og góðan
tenór í staðinn, hann Gissur Pál
Gissurarson,“ segir Ari Matthí-
asson, framkvæmdastjóri SÁÁ.
Samtökin héldu árlegan há-
tíðar- og baráttufund í Háskóla-
bíói síðastliðinn miðvikudag.
Tónlistaratriðin voru ekki af
verri endanum en meðal þeirra
sem tróðu upp voru Bubbi
Morthens og Páll Óskar. Auglýst
hafði verið að Kristján Jóhanns-
son óperusöngvari myndi einn-
ig hefja upp raust sína á sam-
komunni. En svo varð ekki.
„Gissur hringdi í mig á mið-
vikudeginum og sagðist mæta
í stað Kristjáns sem kæmist
því miður ekki. Og Gissur stóð
sig gríðarlega vel og var mikið
fagnað,“ segir Ari.
Aðspurður hvort einhverj-
ir sam-
komugestir hafi ekki verið
svekktir að fá ekki að heyra
Kristján syngja, eins og þeir
bjuggust við þegar þeir mættu í
Háskólabíó, segist Ari ekki hafa
orðið var við það. „Auðvitað er
Kristján frábær söngvari og á
sérstakan sess í hjörtum lands-
manna. En menn gleymdu því
um leið og Gissur byrjaði að
syngja. Hann var rosalega flott-
ur.“
Eins og margir eflaust muna
var Kristján gagnrýndur harð-
lega þegar hann fór fram á pen-
ingagreiðslu fyrir að koma fram
á tónleikum til styrktar krabba-
meinssjúkum börnum fyrir
nokkrum árum. Þóknun fyrir
sönginn á SÁÁ-fundinum var
aldrei í umræðunni að sögn Ara,
og sama var uppi á teningnum
með hina listamennina. „Kristj-
án sagði raunar strax já, og að
þetta yrði gert frítt.“ Ari bætir
við að hann erfi þetta alls ekki
við óperusöngvarann frækna
og vonar að félagsmenn SÁÁ og
aðstandur þeirra fái notið söngs
hans við annað tækifæri.
Geir Haarde forsætisráð-
herra hefur verið önnum kafinn
að glíma við fjármálakreppuna
undanfarna daga. Þrátt fyr-
ir það gaf hann sér tíma til að
flytja ávarp á fundinum sem
fékk góðar undirtektir.
„Hann talaði um allt
annað en pen-
inga
sem ég held að honum hafi
fundist sérstaklega
ánægjulegt. Ég hálf-
vorkenndi Geir eig-
inlega því hann
hafði bókað sig
með löngum fyr-
irvara, flutti ræð-
una og hljóp svo
niður í Stjórnarráð
að hitta Kaupþings-
menn,“ segir Ari.
Davíð Oddsson hefur
ekkert hringt og sagst
mæta fyrir Geir? „Nei, en
Davíð er alltaf velkominn
til okkar líka.“
Ekki náðist í Kristján Jó-
hannsson við vinnslu frétta-
rinnar.
kristjanh@dv.is
Geir Haarde Forsætisráðherra mætti
á samkomuna og flutti ávarp. að því
loknu brunaði hann niður í Stjórnarráð
á fund kaupþingsmanna.
Kristján Jóhannsson
Staðgengill kristjáns hringdi
og tilkynnti forföll hans.
ari Matthíasson erfir
þetta ekki við kristján.