Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 01.01.1901, Blaðsíða 179
429
Þegar póstgufuskipin eða önnur vöruflutningaskip koma á fleiri hafnir eai eina í
sömu ferðinni, eru þau að eins a fyrsta verzlunarstaðnum talin með skipum frá útlöndum.
en úr því með skipum frá öðrum höfnum á Islandi. Þess skal þó getið, að póstgufuskipin
eru, þegar þau eigi hafa farið kringum landið á leiðinni frá útlöndum, eins og að nndanförnu,
talin í Reykjavík meðal skipa frá útlöndum, en eigi í Vestmannaeyjum, þótt þau kunni að
hafa komið þar þar snöggvast við, til að skila af sjer pósti o. s. frv.
Skip þau, sem skýrslur lögreglustjóra telja fiskiskip, eða komin af fiskiveiðum, eru
ekki talin með og ekki heldur herskip nje lystiskip.
Fastar verzlanir.
Innlendar eru þœr verzlanir taldar, sem eru eign þeirra manna, sem búsettir eru
hjer á landi, en hinar útlendar.
Skýrslurnar um aðfluttar og útfluttar vörur eru, eins og að undanförnu, samdarept-
ir skýrslum kaupmanna og verzlunarstjóra eða annara vörumóttakanda, sem gefnar hafa verið
samkvœmt því, er fyrir er mælt um í lögum um hagfræðisskýrslur frá 8. nóvbr. 1895, og í
því formi, sem fyrirskipað er með brjefi landshöfðingjans yfir íslandi, dags. 2. oktbr. 1895,
(Stj.tíð. 1895, B. bls. 233).
Eins og fyr, er hjer á eptir sett, yfirlit yfir allar tollskyldar vörur, er flutzt hafa
til landsins 1899 og útfluttar liafa verið það ár, bæði eptir tollreikningunum og verzlunar-
8kyrslunum.