Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2010, Page 3
FRÉTTIR 24. mars 2010 MIÐVIKUDAGUR 3
Séra Óskar Hafsteinn Óskarsson,
prestur á Selfossi, vill ekki gefa frá
sér skrifstofu Selfosskirkju til yfir-
manns síns, sóknarprestsins Krist-
ins Ágústs Friðfinnssonar. Hann
óskaði eftir lyklunum að skrifstof-
unni um síðustu mánaðamót en
hefur enn ekki fengið þar sem und-
irmaðurinn Óskar vill ekki víkja.
Séra Kristinn Ágúst tók við sem
sóknarprestur nýs samein-
aðs Selfossprestakalls sem
ákveðið var að sameina
á síðasta kirkjuþingi.
Hluti sóknarbarna Sel-
fosskirkju hefur barist
hart fyrir því að fá að
velja sér sóknarprest
yfir kirkjuna eftir að
séra Gunnar Björns-
son var settur af sem
sóknarprestur þar.
Nú hefur Kristinn Ág-
úst fengið lyklavöldin í
Selfosskirkju, allt nema
lyklana að skrifstof-
unni sem Óskar vill
ekki láta frá
sér.
Fékk leyfi til að stjórna
Síðustu tvo mánuði, í janúar og
febrúar, fékk Óskar sérstakt leyfi
frá stjórnendum Þjóðkirkjunnar og
séra Kristni Ágústi til þess að stýra
Selfosskirkju en nú er leyfið runn-
ið út og sóknarpresturinn hugðist
koma sér fyrir á skrifstofu Selfoss-
kirkju. Það hefur reynst honum
erfitt síðustu vikurnar því lyklana
fær hann ekki og sóknarnefndin
hefur þess í stað boðið honum aðra
skrifstofu síðar meir.
Kristinn Ágúst staðfestir að lykl-
ana að skrifstofunni fái hann ekki
þar sem Óskar vilji halda
henni. Hann skilur lít-
ið í framgangi und-
irmanns síns og sér
fram á að þurfa
fara vel yfir málin
á næstu dögum.
„Ég er búinn að fá
lykla að húsinu en
ekki skrifstofunni
þar sem afleys-
ingapresturinn
hefur verið. Sjálf-
ur hef ég stung-
ið upp á því að við
deilum skrifstof-
unni tímabundið
en hann hef-
ur ekki
verið sáttur með það. Ég er að
reyna að lempa hann til með góðu
en ef það tekst ekki er sóknar-
nefndin með hugmyndir að ann-
arri skrifstofu,“ segir Kristinn Ág-
úst.
Fær ekki að þjónusta
Það eru fleiri deilumál í gangi í Sel-
fosskirkju en samkvæmt heimild-
um DV vildu brúðhjón nýverið fá
séra Gunnar Björnsson, fráfarandi
sóknarprest Selfosskirkju, til að
gefa þau saman. Þeirri hugmynd
var fálega tekið hjá kirkjunni, svo
fálega að hjónin töldu ráðlegast að
hverfa frá þeirri hugmynd og leita
til annars prests.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
komið er í veg fyrir að séra Gunn-
ar þjónusti við kirkjuna því honum
var meinað að jarða gamlan vin
sinn í byrjun októbermánaðar.
Aðstandendur þess látna fóru
fram á það við séra Gunnar að
hann sæi um útförina og í kjölfar-
ið óskaði hann eftir því að fá afnot
af Selfosskirkju. Það gerði hann
með því að leita til starfandi sókn-
arprests, Óskars Hafsteins, með
erindið. Óskar taldi ekki rétt að
veita forvera sínum heimildina
og leitaði ráðgjafar hjá biskupi.
Biskup taldi heldur ekki rétt að
séra Gunnar fengi heimild til
að sjá um áðurnefnda útför og
þar við stóð. Ekkjan þurfti þá
að sætta sig við niðurstöðuna
og Óskar sá um útförina.
Séra Óskar Hafsteinn Óskarsson, prestur í Selfossprestakalli,
vill ekki gefa yfirmanni sínum eftir skrifstofu kirkjunnar.
Sóknarpresturinn, séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson, skilur
lítið í framgangi prestsins og reynir nú að fá Óskar til að sætta
sig við að hann hafi fengið yfir sig sóknarprest.
PRESTUR VILL
EKKI VÍKJA
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Ég er að reyna að lempa hann
til með góðu en ef það
tekst ekki er sóknar-
nefndin með hugmynd-
ir að annarri skrifstofu.
Mátti ekki gifta Í Selfosskirkju var nýverið
tekið fálega í hugmynd brúðhjóna um að
fá séra Gunnar til að gefa þau saman, svo
fálega að hjónin ákváðu að ráðlegast væri
að fá annan prest til verksins.
Fær ekki lyklana Kristinn Ágúst
sóknarprestur fær ekki lyklana að
skrifstofu Selfosskirkju og reynir nú
að koma undirmanni sínum í skilning
um að hann sé ekki sóknarprestur.
STJÓRNIN BANNAR
vegar lýtur þetta allt að því sama.
Ríkisstjórnin er aðgerðalaus og því
hafa þingmenn og ráðherrar tíma
og svigrúm til að koma með gælu-
verkefni til að draga athyglina frá
sínum eigin vandræðum, með fullri
virðingu fyrir þessum málum,“ seg-
ir Þorgerður. Að hennar mati eru
viðbrögð vinstrigrænna við hug-
myndum um atvinnuuppbyggingu
á Suðurnesjum sorgleg. Það sé sama
hvaða hugmyndir heimamenn komi
með. Alltaf leggist vinstrigræn-
ir gegn þeim. Hvort sem um sé að
ræða gagnaver, álver, sjúkrahús eða
flugvélaþjónustu. „Það er lok, lok og
læs á allt,“ segir hún.
Þorgerður segist vonast til þess
að ekki skapist ófremdarástand á
næstunni vegna aðgerðaleysis ríkis-
stjórnarinnar. „Ég held að við höfum
betra við krafta okkar að gera núna.
Ég mun styðja ríkisstjórnina í því
að skapa störf og koma með lausnir
sem fólk trúir á og koma í veg fyrir
að fleiri hópar fari í þrot. Við þurfum
að koma með lausnir fyrir almenn-
ing en ekki bara sértækar lausnir
sem þó hafa hjálpað ákveðnum hópi
fólks,“ segir Þorgerður.
Mál sem vinstrigrænir hafa verið
fylgjandi:
n Lög um bann við nektardansi
n Lög um bann við ljósabekkjanotk-
un 18 ára og yngri
n Frumvarp um bann við auglýs-
ingu óafengra drykkja sem bera
sama nafn og áfengir drykkir
n Bann við auglýsingum erlendra
aðila sem bjóða fjárhættuspil
Með
Mál sem vinstrigrænir eru á móti:
n Uppbygging gagnavers í
Reykjanesbæ
n Uppbygging álvers í Helguvík
n Uppbygging heilsusjúkrahúss í
Reykjanesbæ
n Upbbygging viðhalds- og
tækniþjónustu fyrir óvopnaðar
flugvélar á gamla varnarsvæðinu
í Reykjanesbæ
Á móti
Vill raunverulegar lausnir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
varaformaður Sjálfstæðisflokksins,
segir ríkisstjórnina draga athyglina
frá eigin vangetu með lagasetningu
um málefni sem megi bíða betri tíma.
MYND GUÐMUNDUR VIGFÚSSON
Bannað innan 18 ára Alþingi
samþykkti í gær lög sem banna
einstaklingum 18 ára og yngri að
nota ljósabekki.