Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2010, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 24. mars 2010 FRÉTTIR
Hópur starfsmanna samgöngu- og
sveitarstjórnaráðuneytisins og mak-
ar þeirra fóru í flotta skíðaferð til
Siglufjarðar á dögunum. Boðið var
upp á rútuferðir, gistingu, morgun-
mat, skíðakort og veislukvöldverð
sem samanlagt kostaði yfir hálfa
milljón króna eða hátt í 30 þúsund
á manninn.
Samkvæmt upplýsingum frá
samgöngu- og sveitarstjórnaráðu-
neytinu lagði ráðuneytið, líkt og
undanfarin ár, til helming kostn-
aðarins á móti starfsmannafélagi.
Mótframlag ráðuneytisins er iðu-
lega hálf milljón króna árlega eða
nærri þeirri upphæð sem ferð-
in í ár kostaði. Þó má gera ráð fyr-
ir að kostnaðurinn hafi verið yfir
hálfri milljón því ráðuneytið leggur
áherslu á að starfsmenn ferðist með
maka sína meðferðis og því var hluti
ferðakostnaðar makanna greiddur.
DV fékk þó ekki uppgefið hversu hár
sá hlutur var þetta árið.
Vel heppnað
Keyrt var með hópinn, þrjátíu ein-
staklinga samanlagt, norður síðla
föstudags og þegar komið var á
áfangastað var boðið upp á léttan
kvöldverð. Laugardeginum eyddu
ferðalangarnir í skíðabrekkunum
og um kvöldið var boðið upp á flott-
an kvöldverð. Aftur skíðuðu menn
á sunnudegi áður en lagt var af stað
síðdegis til höfuðborgarinnar.
Starfsmenn ráðuneytisins leggja
mánaðarlega til starfsmannafé-
lagsins ákveðna upphæð og þannig
safnast í skemmtanasjóð í kringum
hálf milljón króna. Ráðuneytið legg-
ur í sjóðinn annað eins og því hef-
ur félagið um það bil eina milljón
að spila úr árlega. Jóhannes Tóm-
asson, upplýsingafulltrúi ráðuneyt-
isins, staðfestir dagskrá ferðarinnar
sem hann segir hafa verið með svip-
uðu sniði og undanfarin ár. „Starfs-
mannafélagið stendur fyrir félagslífi
ráðuneytisins og hefur oft boðið upp
á svona ferðir. Ráðuneytið styrkir
svo félagið sem mest er notað í ferðir
og við reynum að fara árlega. Í fyrra
gistum við á Hótel Rangá og núna
var helgarferð á Siglufirði,“ segir Jó-
hannes.
Göngin skoðuð
Jóhannes leggur áherslu á að hag-
stætt verð hafi fengist á heildarpakk-
ann. Hann bendir á að í ferðinni
hafi verið komið við í Héðinsfjarð-
argöngunum og framkvæmdirn-
ar skoðaðar. „Auðvitað nýttum við
tækifærið og rákum nefið inn í göng-
in. Við reynum alltaf að hafa það
í huga að kíkja á eitthvað af okkar
verkefnum í leiðinni. Við reynum að
halda uppi góðu félagslífi og góðum
starfsanda á staðnum. Þess vegna
telur ráðuneytið það þarft og gott að
leggja í púkkið, segir Jóhannes.
„Það er stefna félagsins að mak-
ar ferðist með og því er kostnaður
þeirra greiddur að hluta. Það má
segja að framlag ráðuneytisins hafi
dekkað þessa ferð og þá er annað
eins eftir í sjóðnum fyrir aðra við-
burði á árinu. Ferðin var góð og fólk
er ánægt.“
Starfsfólk samgöngu- og sveitarstjórnaráðuneytisins fór í fína skíðaferð til Siglufjarð-
ar fyrir rúmri viku. Boðið var upp á rútuferðir, gistingu, skíðakort og veislukvöldverði
sem kostaði hátt í 30 þúsund á manninn. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu
lagði það fram helming kostnaðarins eða því sem nemur hálfri milljón króna á ári.
SKEMMTIFERÐ
Á SIGLUFIRÐI
TRAUSTI HAFSTEINSSON
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Í fyrra gistum við á Hótel Rangá og
núna var helgarferð á
Siglufirði
Flott ferð Í ár var farið á skíði til Siglufjarðar
þar sem gist var á gistiheimilinu Hvanneyri,
borðaður veislukvöldverður, kíkt í skíðabrekk-
urnar og Héðinsfjarðargöng skoðuð.
Gerir vel Kristján Möller ráðherra gerir
vel við sitt fólk og leggur ráðuneytið
árlega til um hálfa milljón króna sem
nýtt er í ferðir og aðra dagskrárliði.
Stelpan í auglýsingum olíufélagsins N1 varð sextán ára fyrr í í þessum mánuði:
16 ára stúlka auglýsir bensín
Sextán ára stúlka, Kolbrún Ýr
Sturludóttir, leikur í auglýsingum
frá olíufélaginu N1 þar sem textinn
er á þá leið að hún sé alltaf að spara
með því að eiga viðskiptakort frá
félaginu. Kortið færir viðskiptavin-
um N1 meðal annars 15 prósenta
afslátt af bílatengdum vörum og
hjólbarðaþjónustu auk þess sem
handhafar kortsins fá þrjár krónur
í afslátt af hverjum bensínlítra.
Athygli vekur að Kolbrún, sem
kynnir þessi kostaboð til viðskipta-
vina N1 í auglýsingunum, er ekki
orðin nægilega gömul til að geta
nýtt sér þau sjálf. Ástæðan er sú að
Kolbrún er ekki komin á bílprófs-
aldur. Hún er fædd þann 1. mars
1994 og er því nýorðin sextán ára.
Stúlkan, sem lék í auglýsingunum í
fyrra, var því einungis fimmtán ára
þegar hún sat fyrir í þeim.
Kolbrún þarf því að bíða í rúmt
ár að minnsta kosti eftir því að geta
notfært sér viðskiptakortið til að
spara. Hún hefur því ekki sparað
hjá N1 eins og segir í auglýsingum
fyrirtækisins en mun kannski gera
það síðar meir í lífinu, þegar hún-
fær bílpróf.
Guðný Gústavsdóttir, talskona
Femínistafélags Íslands og stunda-
kennari í kynjafræðum við Háskóla
Íslands, segir að sér finnist sorglegt
að svo ung stúlka sé látin auglýsa
bensín. „Mér finnst þetta svo sorg-
legt. Þetta er svo mikið 2007. Ég var
svona að gæla við það lengi að við
hefðum lært eitthvað en það virð-
ist bara alls ekki vera. Það er allt-
af farið bara beint í sama farið og
æskan er hagnýtt til að auglýsa
vörur á þennan hátt,“ segir Guðný.
„Það er náttúrlega bara fáránlegt
að svona ung stúlka auglýsi bens-
ín.“
Hún segir það jafnframt vera
siðleysi að svo ung stelpa sé fengin
til að auglýsa. „Fólk á þessum aldri
er hvorki lög- né fjárráða. Þetta er
augljóst siðleysi,“ segir Guðný í
samtali við DV.
ingi@dv.is
Sögð spara á bensíni Textinn í auglýs-
ingu N1 er á þá leið að stúlkan í henni sé
alltaf að spara á bílatengdum vörum og
eldsneyti. Fyrirsætan er hins vegar ekki
nógu gömul til að fá bílpróf.
46 myndaðir
Brot 46 ökumanna voru mynduð í
Dalsmára í Kópavogi á þriðjudag.
Fylgst var með ökutækjum sem var
ekið eftir Dalsmára í vesturátt, við
Lækjarsmára.
Á einni klukkustund, fyrir hádegi,
fóru 76 ökutæki þessa akstursleið
og því ók meirihluti ökumanna, eða
61 prósent, of hratt eða yfir afskipta-
hraða. Meðalhraði hinna brotlegu
var 44 km/klst en þarna er 30 kíló-
metra hámarkshraði. Átta óku á 50
kílómetra hraða eða meira en sá
sem hraðast ók mældist á 57. Mæl-
ingarnar í gær eru hluti af sérstöku
umferðar- og hraðaeftirliti í og við
íbúðargötur í umdæminu.
Sekt fyrir að
sulla kóki
Héraðsdómur Suðurlands
hefur dæmt konu til að
greiða hundrað þúsund
krónur í sekt fyrir tilraun
til eignaspjalla. Var kon-
an dæmd fyrir að hella
úr gosflösku í bílstjóra-
sæti bifreiðar og sparka
í vinstra frambetti í
þeim tilgangi að valda
skemmdum á henni.
Konan mætti ekki
við þingfestingu máls-
ins þrátt fyrir löglega
birtingu ákæru. Var talið
sannað að konan hefði
framið brotið. Hún á að
baki nokkurn sakaferil
frá árinu 2002.
Hanna vinsæl
Ný viðhorfskönnun Capacent Gallup
sem Sjálfstæðisflokkurinn lét gera í
Reykjavík leiðir í ljós að meirihluti
borgarbúa er ánægður með störf
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borg-
arstjóra. Um þrjár af hverjum fjór-
um konum eru ánægðar með störf
borgarstjóra en alls eru 65,5 prósent
í heildina ánægð með störf Hönnu
Birnu. 891 var í úrtakinu og var svar-
hlutfallið í könnuninni 60,6 prósent.
Nýr framkvæmda-
stjóri
Margrét Steinarsdóttir lögfræðingur
hefur verið ráðin framkvæmdastjóri
Mannréttindaskrifstofu Íslands.
Margrét tekur við af Guðrúnu Dögg
Guðmundsdóttur sem hefur verið
framkvæmdastjóri í sex ár. Margrét
starfaði áður sem framkvæmdastjóri
Alþjóðahúss frá 1. til 30. nóvember
í fyrra. Hún hefur einnig starfað hjá
Lögbirtingablaðinu og Stjórnartíð-
indum.