Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2010, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2010, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 24. mars 2010 FRÉTTIR Lítinn bilbug er að finna á Binyamin Netanyahu forsætisráðherra í deil- unni við Bandaríkin vegna fyrirhug- aðrar landnemabyggðar í austurhluta Jerúsalem. Á fundi í Washington ítrekaði hann „byggingarétt“ Ísraela í Jerúsalem og sagði: „Jerúsalem er ekki landnemabyggð, Jerúsalem er höfuðborg okkar.“ Sagði Netanyahu að hverfi gyðinga í austurhluta borg- arinnar væru „óaðskiljanlegur hluti“ Jerúsalem nútímans. Reyndar minntist Netanyahu, sem hélt tölu fyrir Aipac, þrýstisam- tök hliðholl Ísraelum, ekki berum orðum á ákvörðun Ísraela um að stækka landnemabyggðir í austur- hluta borgarinnar. Áform Ísraela hafa farið fyrir brjóstið á bæði Palestínumönnum og stjórnvöldum í Bandaríkjunum og áður hafði Hillary Clinton, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, sagt við sömu samkundu að Ísrael yrði að taka „erfiðar“ ákvarðanir í þágu friðar. Clinton sagði aukinheldur að fyrirhuguð uppbygging landnema- byggðar á svæði sem heyrði und- ir Palestínumenn græfi undan hlut- verki Bandaríkjanna í friðarferlinu. Þrjú þúsund ára saga „Tengslum gyðinga og Jerúsalem verður ekki neitað. Gyðingar stóðu að byggð Jerúsalem fyrir 3.000 árum, og gyðingar eru að byggja Jerúsalem í dag,“ sagði Binyamin Netanyahu. Orð Netanyahus féllu á sama tíma og heimsókn Joes Biden, varafor- seta Bandaríkjanna, og hafa sett enn frekari spennu á samskipti Ísraela og Bandaríkjamanna sem hafa þrýst á um nýjar friðarviðræður sem gætu bundið enda á áratuga langa deilu Palestínumanna og Ísraela. Palestínsk yfirvöld eru æfareið vegna þrákelkni Ísraela um að koma upp landnemabyggð á svæði sem byggt er Palestínumönnum og líta þannig á að um sé að ræða hindrun á framhaldi friðarviðræðna, sem hafa legið niðri í meira en ár. Útilokar ekki tveggja ríkja lausn Binyamin Netanyahu lítur málið öðr- um augum og sagði að „allir – Banda- ríkjamenn, Evrópubúar, Ísraelar og að sjálfsögðu Palestínumenn – vissu að þessi svæði yrðu hluti af Ísra- el í hvaða friðarsamkomulagi“ sem hugsanlega yrði náð. „Af þeim sökum myndi byggðin að engu leyti útiloka möguleikann á tveggja ríkja lausn,“ sagði Netanyahu. Leiðtogar Palestínumanna hafa neitað að setjast aftur að samninga- borði fyrr en ísraelsk yfirvöld salta uppbyggingu landnemabyggða á Vesturbakkanum og í Austur-Jerús- alem og sagði Netanyahu að ísra- elsk stjórnvöld hefðu opnað eftirlits- stöðvar á Vesturbakkanum og frestað tímabundið framkvæmdum og hvatt Palestínumenn að samningaborðinu sem fyrst. Hefndarárásir Aðfaranótt þriðjudagsins gerðu Ís- raelar loftárásir á skotmörk austur af Gazaborg og særðust að minnsta kosti þrír í árásunum. Að sögn tals- manns ísraelska hersins var skot- mark árásanna vopnageymsla Palest- ínumanna og um var að ræða svar við flugskeytaárásum Palestínumanna frá því á fimmtudaginn sem urðu taí- lenskum verkamanni að bana. Ísraelskur hermaður féll fyrir kúlum eigin manna við landamæri Gaza eftir að einn hópur hermanna Tengslum gyð-inga og Jerúsal- em verður ekki neitað. Gyðingar stóðu að byggð Jerúsalem fyrir 3.000 árum, og gyðingar eru að byggja Jerúsalem í dag. BINYAMIN NETANYAHU Forsætisráðherra Ísraels vísar á bug allri gagnrýni á fyrirhugaðar landnemabyggðir í austurhluta Jerúsalem og segir að ekki sé um landnemabyggðir að ræða því svæðið hafi ávallt verið hluti af höfuðborg landsins. Áformin eru sögð grafa undan tilraun Bandaríkjanna til að binda enda á áratuga langar deilur. KOLBEINN ÞORSTEINSSON blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Rústaður brunnur í Al-Tofha Árásin var svar Ísraelsmanna við flugskeytaárásum Palestínumanna. MYND AFP „JERÚSALEM ER HÖFUÐBORG OKKAR“ Á öndverðum meiði Hillary Clinton og Binyamin Netanyahu eru ekki á eitt sátt. MYND AFP Sagt er að það teljist til undantekn- inga ef Elísabet II Englandsdrottning sé með reiðufé á sér, en í fyrri viku var liðin hálf öld síðan andlit henn- ar prýddi peningaseðil, en hún varð þess heiðurs aðnjótandi fyrst breskra þjóðhöfðingja. Andlitsmynd Elísabetar sem ungrar drottningar, teiknuð af lista- manninum Róbert Austin, birtist fyrst á eins punds seðli árið 1960. Elísabet hafði kórónu á höfði og var með eyrnalokka og hálsmen og tók myndin sess Brittanníu - kvenkyns táknmyndar Bretlands sem notuð hafði verið á gjaldmiðli landsins svo öldum skipti. Vissulega hefur mikið vatn runn- ið til sjávar síðan, en þrátt fyrir að staðfast augnaráð Elísabetar og dauft bros sé óbreytt hefur andlit hennar á peningaseðlum elst í gegnum tíðina, en reyndar á þokkafullan hátt. Árið 1963, þegar Elísabet varð 37 ára, var sett ný andlitsmynd af henni á pundseðlana, og enn og aftur árið 1970 og 1971, en útgáfan frá 1971 hélst óbreytt í hátt í tvo áratugi. Sú mynd, sem nú prýðir pundseðlana, og sýnir ívið eldri drottningu, er frá 1990 og enn sem fyrr skartar hún kórónu, eyrnalokkum og hálsmeni. Elísabet II er enn opinberlega þjóðhöfðingi margra ríkja breska samveldisins og fyrir þær sakir prýð- ir andlit hennar fjölda peningaseðla um víða veröld. Safn Englandsbanka opnaði sýn- ingu á peningaseðlum fyrr og nú, sem skarta andlitsmynd af Elísa- betu annarri, í tilefni þess að hálf öld er liðin síðan Elísabet birtist í fyrsta sinn á breskum pundseðli. Einnig eru til sýnis upprunalegu skissurnar og prentplöturnar sem voru notaðar við prentunina. kolbeinn@dv.is Elísabet Englandsdrottning hefur prýtt pundseðla í hálfa öld: Hefur elst á þokkafullan hátt Í gegnum tíðina Fimmtíu ár og fimm andlitsmyndir. MYND AFP Myndbirting rannsökuð Páfagarður hefur tilkynnt um sér- staka nefnd til að rannsaka full- yrðingar um að María mey birtist fólki daglega í bænum Medjugorje í Bosníu-Hersegóvínu. Fyrst var tilkynnt um myndbirt- ingu Maríu meyjar í bænum í júní árið 1981 af sex börnum, en mynd- birtingin hefur ekki enn verið viður- kennd af Páfagarði. Sagt er að María mey sé ýmist íklædd gráum fötum með slæðu eða í gylltum klæðum, stjörnum krýnd og svífi á skýi. Þrjú ljósleiftur eru sögð boða birtingu Maríu meyjar í bænum, en meðan á henni stendur er ekki hægt að heyra raddir þeirra sem á horfa. Jacob Zuma er dýr í rekstri Hart er deilt í Suður-Afríku í kjölfar upplýsinga um kostnað skattgreið- enda vegna Jacobs Zuma, forseta landsins, og fjölskyldu hans. Í ljós hefur komið að skattgreiðendur greiða meira en 15,5 milljónir randa, um 250 milljónir króna, til að halda uppi Zuma, þremur konum hans og um tuttugu börnum. Upphæðin hefur nánast tvöfald- ast síðan í fyrra. Helen Zille, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, sagði upp- hæðina óraunhæfa og að stærð fjöl- skyldu Jacobs Zuma gerði spillingu nánast óumflýjanlega. Farsímakostnaður eiginkvenn- anna og ritara þeirra er greiddur, fartölvur og prentarar, og einnig er kostnaður vegna daglegra óvæntra útgjalda greiddur. „Bandaríkin eru ill“ Fréttastofa CNN hefur fengið í hend- ur hljóðupptöku þar sem Anwar al- Awlaki, múslímskur klerkur fæddur í Bandaríkjunum, hvetur til heilags stríðs gegn Bandaríkjunum. „Banda- ríkin eru ill“, segir Anwar al-Awlaki á upptökunni. Hann segir ennfremur að vegna innrásar Bandaríkjamanna í Írak og Afganistan geti hann ekki sem mús- lími sæst á að búa í Bandaríkjunum og hann hafi komist að þeirri niður- stöðu að „hann væri skuldbundinn heilögu stríði gegn Bandaríkjunum líkt og allir aðrir múslímar“. Talið er að Anwar al-Awlaki fari huldu höfði í fjalllendi Suður-Jemen og njóti verndar valdamikils ættbálks.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.