Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2010, Blaðsíða 24
Önnur keppnishelgi Formúlu 1-tíma-
bilsins hefst á föstudaginn eftir viku
þar sem liðin takast á í Melbourne í
Ástralíu. Til að sporna við litlu áhorfi
undanfarinna ára var ákveðið að færa
keppnina aftar á klukkunni. Hefst
hún nú klukkan 17.00 að staðartíma
þannig að ekki sé niðdimm nótt hjá
öllum öðrum sem ætla sér að horfa.
Tveir ökumenn, annar þeirra ríkj-
andi heimsmeistari í Formúlu 1, Jen-
son Button, og Þjóðverjinn Nico Ros-
berg sem ekur fyrir Mercedes hafa
lýst yfir áhyggjum sínum af því að
keyra að kvöldlagi. Rosberg sagði við
fréttamenn að á síðasta ári hefði sól-
in verið mjög lágt á lofti þegar öku-
menn voru að klára keppnina og var
hún beint í augun á þeim.
Jenson Button, heimsmeistari
á Brawn, sem nú ekur fyrir McLar-
en, hefur einnig áhyggjur af sólinni.
„Þetta kannski hljómar eins og smá-
mál, en það er það svo sannarlega
ekki. Það getur verið hættulegt að aka
svona með sólina í augun þegar mað-
ur sér ekki einu sinni hvert maður er
að fara. Frekar vil ég keppa á daginn,
jafnvel í ljósaskiptum; allt annað en
að keyra á kvöldin,“ segir Button.
Hann segir að þeir sem verða
fyrstir þegar sólin tekur að lækka á
lofti ættu að vera í sem bestum mál-
um og stefnir hann að því að hanga
meðal þeirra fremstu. „Það verður
skást að vera fremstur þannig að ég
og Lewis stefnum að því að vera þar
og þurfa því ekki að hafa áhyggjur,“
segir hann.
tomas@dv.is
Jenson Button hefur áhyggjur af skyggninu í Ástralíu:
Kvöldsólin vond í Melbourne
ÍSLAND MÆTIR MEXÍKÓ Landsleikur Íslands og Mexíkó fer fram á mið-
nætti á miðvikudagskvöldið en hvorugt lið stillir upp sínum sterkustu leikmönnum. Mikil
eftirvænting ríkir í Charlotte þar sem leikurinn fer fram en búist er við á milli 60 og 70 þús-
und heimamönnum. Mikil dagskrá verður sett upp fyrir heimamenn þar sem hægt verður
að hitta gamlar stjörnur mexíkóska liðsins fyrir utan völlinn. Mexíkóska liðið ætti að vera
töluvert sterkara þar sem stór hluti liðsins spilar í deildinni heima en aðeins verða notaðir
menn sem leika þar, eins og hjá íslenska liðinu. Ísland fer með sama hóp og lagði Færeyjar
í landsleik í Kórnum á sunnudaginn.
UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON, tomas@dv.is
24 MIÐVIKUDAGUR 24. mars 2010 SPORT
SKEGGIÐ HULDI
SÝKINGU
n Myndarlegt skegg fyrirliða Ars-
enal, Cesc Fabregas, vakti athygli
um helgina
þegar liðið
lagði West
Ham, 2-0.
Fabregas fékk
sýkingu í and-
litið sem varð
til þess að
fékk kýli utan
á hálsinn.
„Ég fékk sýkingu í andlitið á sama
tíma og ég meiddist á læri. Þess
vegna lét ég skeggið vaxa því hefði
það ekki verið hefðu allir séð kýlið
sem myndaðist utan á hálsinum,“
segir Fabregas sem hefur farið á
kostum með Arsenal í ár.
TIGER BYRJAÐUR
AÐ ÆFA
n Besti kylfingur heims og ný-
krýndur framhjáhaldsdólgur,
Tiger Woods,
er byrjaður
að æfa á fullu
fyrir Mast-
ers-mótið. Það
verður fyrsta
mótið sem
hann mun
taka þátt í síð-
an í nóvember
á síðasta ári. Mótið fer fram á hin-
um sögufræga Augusta-golfvelli
og sagðist Tiger í viðtali við ESPN
í vikunni vonast eftir að einhverj-
ir myndu nú klappa fyrir honum.
Tiger er enn efstur á heimslistan-
um þrátt fyrir að hafa ekki spilað í
marga mánuði.
VILL SKILJA EFTIR
GOTT LIÐ
n Sir Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóri Manchester Unit-
ed, er fyrir
löngu farinn
að huga að
brottför sinni
frá félaginu
þótt hann
virðist hvergi
líklegur að
hætta. Hann
segist vilja
skilja eftir sig gott lið þegar hann
fer. „Ég vil að félagið haldi áfram
að vinna þegar ég hætti. Við höf-
um alltaf búið þannig um hnút-
ana að liðið sé tiltölulega ungt
með nokkrum reynsluboltum inn
á milli. Þannig ætti að vera nógu
mikið af ungum strákum sem
verða þarna þótt ég fari,“ segir
Ferguson.
PACQUIAO Á ÞING
n Besti hnefaleikakappi í heimi
pund fyrir pund, Taílendingur-
inn Manny Pacquiao, hefur ýjað
að því hann muni hætta hnefa-
leikum taki hann sæti á alþingi í
Taílandi eftir kosningarnar tíunda
maí. Hérað Pacquiao, Sarangani,
fær einn mann á þing og gæti það
orðið hnefaleikakappinn. Þetta er
haft eftir fólki nálægt honum en
mikið hefur verið beðið eftir bar-
daga hans við Floyd Mayweather
Jr. sem verður vonandi skipulagð-
ur í byrjun maí.
MOLAR
Ljóslaust? Heimsmeistarinn, Jenson
Button, hefur áhyggjur af kappakstrin-
um um aðra helgi. MYND AFP
INNANBÚÐARÁTÖK Á ENGLANDI
Síðastliðinn sunnudag tók Andy Carroll,
leikmaður Newcastle, sig til og kjálka-
braut fyrirliða sinn, Steven Taylor. Fyr-
irliðinn þurfti að gista tvær nætur á
sjúkrahúsi vegna atviksins. Slagsmálin
gætu haft alvarlegar afleiðingar fyrir
Carroll sem bíður dóms fyrir líkamsárás.
Þetta er ekki fyrsta né eina atvikið þar
sem enskir slást innbyrðis en DV tekur
saman nokkur dæmi af slagsmálum und-
anfarinna ára.
Fyrirliði Newcastle, Steven Taylor,
lá á sjúkrahúsi í byrjun vikunnar
með brotinn kjálka eftir slagsmál
við hinn unga framherja liðsins,
Andy Carroll. Er því leiktíð Taylors
væntanlega á enda en hann var ný-
skriðinn á lappir eftir hnémeiðsli
sem héldu honum lengi frá æfing-
um og keppni. Carroll gæti ver-
ið í vondum málum fyrir atvikið.
Hann var kærður fyrir líkamsárás
í desember og verður dómur kveð-
inn upp í því máli í næsta mánuði.
Þetta er heldur ekki í fyrsta skipt-
ið sem Carroll slæst við liðsfélaga
sinn á æfingu.
Nýr Joey Barton?
Andy Carroll hefur undanfarin ár
verið viðloðandi byrjunarliðið hjá
Newcastle en hann, eins og Stev-
en Taylor, er uppalinn Newcastle-
maður. Eftir að liðið féll í Champ-
ionship-deildina hefur hann
fengið að spila mun meira og átt
mjög gott tímabil með Newcastle
sem er á hraðri leið aftur upp í úr-
valsdeildina. Má samt búast við því
að stuðningsmenn Newcastle taki
þessum fregnum ekki vel þar sem
Steven Taylor er í álíka dýrlingatölu
og Steve Gerrard hjá Liverpool.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem
Carroll kemur sér í vandræði. Í jan-
úar í fyrra slóst hann við franska
vængmanninn Charles N’Zogbia,
rétt áður en hann var seldur til
Wigan. Carroll lét svo hnefana aft-
ur tala fyrir sig á næturklúbbnum
Blue Bamboo í Newcastle í desem-
ber á síðasta ári. Hann var þá
handtekinn, sakaður um að hafa
ráðist á mann og komið honum á
sjúkrahús. Carroll, sem er tvítugur
að aldri, var sleppt gegn tryggingu
en dæmt verður í málinu í næsta
mánuði.
Ekki er víst hvort Taylor muni
kæra atvikið en Carroll mun í það
minnsta sæta innanbúðarrann-
sókn hjá Newcastle fyrir atvikið.
Þetta er ekki nokkuð sem New-
castle má við en nóg hafa vand-
ræðin verið með annan vand-
ræðagemling þar á bæ, sjálfan Joey
Barton. Nú er Barton að koma aftur
eftir sex mánaða meiðsli þannig ef
Carroll hverfur á braut í smá tíma,
annaðhvort vegna fangelsisvistar
eða agabanns frá félaginu, má allt-
af treysta á Barton að hrista upp í
hlutunum.
Nóg af slagsmálum
Það virðist ekkert lát á slagsmál-
um innan herbúða liðanna á Eng-
landi en þar er enska úrvalsdeild-
in alveg á pari við neðri deildirnar.
Nú þegar á árinu hefur Albert Ri-
era, leikmaður Liverpool, slegist
við varaliðsmann hjá Liverpool
og sómamaðurinn Jimmy Bull-
ard slóst við reynsluboltann Nick
Barmby þegar leikmenn Hull voru
að skokka sig niður í almennings-
garði þar í borg.
Skemmst er minnast þess þeg-
ar sir Alex Ferguson sparkaði skó í
andlitið á David Beckham þannig
hann hlaut skurð og á endanum
yfirgaf sitt æskufélag, Manchester
United. Frægasta atvikið er þó lík-
lega þegar Lee Bowyer og Kieron
Dyer tókust hressilega á í leik New-
castle og West Ham árið 2005. Þeg-
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is