Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 02.01.1913, Blaðsíða 19
Verslun Reykjavíkur verður ............................. 33.3 %
— Hafnarfjarðar — 2.6 —
— ísafjarðar — 8.8 —
— Akureyrar — 10.4 —
Seyðisfjarðar — 3.6 —
Kaupstaðirnir tóku 1911 af allri verslun landsins ... 58.7 °/o
Verslunin dregst þar mesl saman, sem fólkið er flest fyrir, fólksfjöldinn
eykur alt verðmæti. Það er auðsjeð, að Akureyri og -ísafjörður og jafnvel Hafnar-
fjörður eru miklar útflutningshafnir, því útflutla varan er á þessum stöðum lielm-
ingi meira verð en aðflutta varan. Frá Akureyri er tlult úl mjög mikið af síld,
þegar hún veiðist, frá Ísaíirði cr ílutt úl mikið af fiskinum frá Vestfjörðum, og frá
Hafnarfirði ganga ávalt mörg útlend fiskiskip á sumrin, sem að jafnaði auka út-
flutninginn þaðan, svo hann verður hærri en aðflutta varan, sem þar kemur á land.
Aðflultar og útfluttar vörur í þessum kaupstöðum, eru reiknaðar á sama hátt, sem
allsstaðar annarsstaðar á landinu. Allir hafa kaupslaðirnir til samans s/s hlula af
verslun landsins.
Verslunarskuldir. Skýrslum um þær og innieign viðskiftamanna í verslun-
um var safnað fj'rsla sinni árið 1910. I’egar skýrslum er safnað í fyrsta sinni eru
þær vanalegast fremur ófullkomnar, þegar þær koma, en eftir reynslunni að dæma,
verða þær rjettari, þegar þeim er safnað oftar. Skýrslan um verslunarskuldir er
lafla F. hjer að aftan.
Útistandandi skuldir voru laldar 1910 á öllu landinu ......... 5.267 þús. kr.
og öll innieign........................................................ 1.017 — —
Skuldir um fram innieign.................. ......................... 4.250 þús. kr.
Árið 1911 voru útistandandi verslunarskuldir á öllu landinu.. 5.630 þús. kr.
og öll innieign........................................................ 1.084 — —
Skuldir um fram innieign............................................ 4.546 þús. kr.
sem er 290 þús. kr. hærra en 1910, og sýnist benda á, að skýrslurnar 1910 hafi
ekki verið eins ófullkomnar, og þá var álitið. Af öllum verslunarskuldum landsins
um fram innieign koma á Reykjavík........................................... 19.5 °/o
á kaupstaðina fjóra ........................... .......................... 29.7 —
allar aðrar verslanir á landinu ............................................ 50.8 —
Alls ... 100.0 °<o
Innieign í verslunum hefur víða minkað á landinu vegna sparisjóðanna, sem
nú eru víða komnir á fól, en skuldirnar við verslanirnar vaxa af tvennum ástæðum:
af fátækt viðskiftavinanna og fyrir framtakssemi þeirra. Viðast mun það vera svo
enn, að menn geta ekki eignasl mótorbát eða bát, eða jafnvel veiðarfæri eða við í
kofann sinn, nema það fáist lil láns í versluninni, og hún lánar þetta i voninni um
viðskifti við skuldunautinn. Kaupmaður, sem t. d. lánar sjáfannanninum að mestu
leyti heilan mótorbát, verður lika að lána honum svo margt, sem þarf til að halda
bátnum úti, annars er lánsfjeð að likindum tapað og viðskiflin, sem ’af því áltu að
leiða, verða engin. Verslunarskuldir verða þannig ekki nú á dögum beinlínis votlur
um fátækt landsmanna, lieldur geta þær jafnframt verið voltur um framtakssemi
þeirra, og nytsemi kaupmanna, sem lánin veita. Kaupmenn, sem það geta, eru
jafnframt bankar viðskiftavina sinna.
Það verður að taka fram, að verslunarskuldirnar eru teknar allra síðast á
árinu, eða á þeim tíma, sem menn eru skuldugastir í verslununum. Væru verslunar-