Húnavaka - 01.05.2014, Page 178
H Ú N A V A K A 176
Útför Ingibjargar fór fram frá Þingeyrakirkju 12. ágúst 2013. Jarðsett var í
kirkjugarðinum þar.
Sr. Hjálmar Jónsson.
Ásdís Friðgeirsdóttir,
Blöndudalshólum
Fædd 26. nóvember 1937 – Dáin 6. ágúst 2013
Ásdís Hlíf Friðgeirsdóttir fæddist að Sviðningi á Skaga. Foreldrar hennar voru
Friðgeir Ágúst Eiríksson (1904-1985) frá Sviðningi og Fanney Halldórsdóttir
(1924-2005) frá Tjarnarlandi á Skaga. Systkini
hennar eru Alda Dagbjört, f. 1936 og Ágúst
Fann berg, f. 1941.
Hún ólst upp á Sviðningi í skjóli ástríkra
foreldra þar sem þjóðleg menning var í hávegum
höfð, hvort heldur voru bókmenntir, þjóðhagir
eða tónlist.
Eftir hefðbundna skólagöngu þess tíma lá leið
Ásdísar í Kvennaskólann á Blönduósi. Því næst
hélt hún á vit nýrra ævintýra suður með sjó. Þar
vann hún hin ýmsu störf, m.a. á saumastofu í
Reykjavík og við fiskvinnslu í Garði. Ekki ílengdist
Ásdís þó fyrir sunnan heldur flutti aftur norður og
heim í foreldrahús. Árið 1967 giftist Ásdís
eftirlifandi eiginmanni sínum, Jónasi Bjarnasyni, Blöndu dalshólum. Hann
Systkinabrúðkaup þrefalt þótti
þónokkur viðburður hér í sveit.
Héðan varð enginn atgervisflótti
elskaði hver sinn heimareit.
Bændafólk duglegt djarft fram sótti
dafnar enn byggðin, það ég veit.
Hamingjan jókst er barnið brosti,
Bogeyju fögnuðu Axlarhjón.
Henni var tekið kynjum og kosti,
kærleika vafin í reynd og sjón.
Í varma sumars og vetrarfrosti
veittu og uppfylltu hverja bón.
Gleðin hún bjó undir þínu þaki,
þar varstu drottning, hrein og klár.
Tígulleg kona, teinrétt í baki,
traustið og mildin lýsti brár.
Er sem mér finnist andinn vaki
enn, þó að hyljist moldu nár.
Ég kveð þig að lokum við kistuna þína
með kæru þakklæti, frænka mín.
Minningin fagra mun ei dvína
mér varstu góð, af þeim perlum skín.
Af hjarta er sérhver ljóðalína
letruð af hreinni ást til þín.
Hvíldu í friði, frænka mín kæra
farðu nú vel í himins rann.
Þér tókst svo vel af lífinu læra
löngum ræktir þinn innri mann.
Síðan mun röddin þín silfurtæra
syngja lofgjörð um frelsarann.