Húnavaka - 01.05.2014, Page 205
203H Ú N A V A K A
skólum og dvalar heim ilum aldraðra í
héraðinu.
Lúðrasveit Tónlistar skólans starfaði
eins og undanfarin ár og lék á
sameiginlegri aðventuhátíð kirknanna
í Þingeyra klausturspresta kalli, einnig
á Verkalýðs deginum 1. maí í Fél ags-
heimilinu á Blöndu ósi og 17. júní.
Skarphéðinn H. Einarsson, skólastjóri.
BÚNAÐARSAMBAND
HÚNAÞINGS OG STRANDA.
Talsverð svell lágu á túnum víða í
sýslunni síðasta vetur. Var því meira
kal á svæðinu en verið hefur mörg
undanfarin ár. Tíðarfar síðasta sumars
bætti þó úr fyrir bændum en nú skorti
ekki vætuna eins og svo mörg
undanfarin sumur. Hitastigið hefði
reyndar mátt vera heldur hærra og
bitnaði það nokkuð á kornþroska í
héraðinu.
Nautgriparækt.
Í Austur-Húnavatnssýslu skilaði
árskýrin 5.406 kg sem er nánast það
sama og árið áður. Alls skiluðu 28
bændur skýrslum á árinu og eru að
meðaltali 29,6 árskýr á hverju búi.
Mestar afurðir eftir árskúna, á
landinu öllu, og þar með vitaskuld í
sýslunni, voru hjá Gróu og Sigurði á
Brúsastöðum en þar skilaði árskýrin
7.693 kg mjólkur. Verður það að
teljast stórglæsilegur árangur. Sigurður
og Maríanna á Hnjúki verma annað
sætið með 7.057 kg mjólkur og í þriðja
sæti voru Kristján Steinar og Linda á
Steinnýjarstöðum með 6.680 kg eftir
árskúna.
Nythæsta kýr í héraðinu var Setta
frá Brúsastöðum með 11.078 kg
mjólkur. Í öðru sæti var Branda,
einnig frá Brúsastöðum með 10.157
kg og í því þriðja var Dögg frá Hnjúki
með 9.957 kg mjólkur.
Sauðfjárrækt.
Heildarafurðir í sauðfjárræktinni
eru ívið meiri en árið á undan eða
25,6 kg eftir hverja vetrarfóðraða á.
Verður það að teljast mjög ánægjulegt
þar sem afurðir á landsvísu lækkuðu á
milli ára.
Af búum í sýslunni, sem telja meira
en 100 skýrslufærðar ær, er Félagsbúið
í Víkum efst með 31,4 kg eftir hverja
á. Í öðru sæti koma Lúther og Sigríður
í Forsæludal með 31,3 kg eftir ána og
þriðja sætinu, með 31,2 kg
eftir ána, deila þau Ólafur og
Inga Sóley á Sveinsstöðum
með nágrönnum sín um,
Magn úsi og Líneyju í Stein-
nesi.
Svipuð þátttaka var í sauð-
fjár sæð ingum og árið á undan
og voru alls sæddar 2.564 ær.
Þátttaka í lamba dómum var
svipuð og undanfarin ár og
voru skoðuð 6.403 lömb. Af
ómmældum og stiguðum
lamb hrútum stóðu efstir þrír
hrútar á Akri, tveir undan
Einn af stigahæstu lambhrútum sýslunnar frá Akri.
Ljósm.: Anna Margrét.