Lögmannablaðið - 01.03.1998, Qupperneq 4
aðalfundi. Nú er það auðvitað svo
að félagsstörf af þessum toga eru
tímafrek og það hlýtur að reyna á
þolrif þeirra sem með þeim vinna
er taka að sér félagslega vinnu. Allt
hefur þetta þó gengið ágætlega og
raunar verður að viðurkenna að
eftirsjá verður að því að hætta, því
í raun og sann er bæði skemmti-
legt og lærdómsríkt að starfa í
stjórn Lögmannafélags Íslands.
Um leið og ég þakka þeim fjöl-
mörgu lögmönnum sem hafa verið
boðnir og búnir til starfa fyrir félag-
ið þegar eftir því var leitað, vil ég
þakka það traust og þann heiður
sem mér var sýndur með að velja
mig sem formann á sínum tíma og
óska nýjum formanni og stjórn vel-
farnaðar í mikilvægum störfum.
4 Lögmannablaðið
Handsal - filma
Mál fyrir Hæstarétti Íslands árið 1997
Nýlega bárust upplýsingar frá Hæstarétti Íslands um mál fyrir réttinum á síð-
asta ári, fjölda þeirra, flokkun eftir niðurstöðum o.fl.
Fjöldi mála.
Á árinu 1997 bárust alls 524 mál, sem er nokkur fjölgun frá árinu áður, en þá
voru málin 475 talsins.
Áfrýjuð mál voru 329 (254 einkamál og 75 opinber mál) og kærumál 195 (104
einkamál og 91 opinbert mál).
Í lok síðasta árs var ólokið alls 192 áfrýjunarmálum (162 einkamálum og 30
opinberum málum) og 8 kærumálum (7 einkamálum og 1 opinberu máli).
Niðurstöður.
Skipting dæmdra mála á árinu 1997 eftir málsúrslitum var með eftirgreindum
hætti (tölur innan sviga eru vegna niðurstaðna mála á árinu 1996).
Áfrýjuð mál.
Alls féllu 260 (360) dómar í áfrýjuðum málum, 200 í einkamálum (260) og 60
í opinberum málum (75).
Í einkamálunum var í 93 (126) tilvikum staðfest niðurstaða héraðsdóms, í 32
(55) málum var niðurstöðu breytt að einhverju leyti og í 53 (67) málum var nið-
urstöðunni breytt að verulegu leyti eða snúið við. Fimm mál (7) voru ómerkt, 16
(5) málum var vísað frá Hæstarétti og héraðsdómi og eitt mál var fellt niður.
Í opinberum málum voru héraðsdómarnir staðfestir í 27 (24) tilvikum, breytt
að einhverju leyti í 26 (27) tilvikum og breytt verulega eða snúið við í 5 (12) til-
vikum. Tvö (8) mál voru ómerkt en engu opinberu máli (4) var vísað frá réttin-
um á árinu 1997.
Kærumál.
Af 181 (168) kærumáli, sem úrskurðað var á árinu 1997, var niðurstaða hér-
aðsdóms staðfest að mestu í 117 (110) tilvikum, breytt að verulegu leyti eða snú-
ið við í 43 (42) tilvikum. Í 4 (1) tilvikum var um ómerkingu að ræða, 3 kærumál
voru felld niður og 14 (15) mál sættu frávísun.