Fréttablaðið - 22.12.2015, Qupperneq 2
SAMFÉLAG Fjörutíu prósent norskra
barna á aldrinum 9-16 ára leika
tölvuleiki sem framleiðendur leikj-
anna mæla með að séu ekki fyrir
yngri en 18 ára. Þetta kemur fram
í skýrslu norsku netöryggismið-
stöðvarinnar fyrir árið 2014.
Á vef norska ríkisútvarpsins er
greint frá því að margir foreldrar
kaupi þessa leiki handa börnunum
sínum, til dæmis í jólagjöf. Bent er á
að ekki sé bannað að kaupa tölvu-
leikina fyrir yngri börn en 18 ára.
Aldurstakmarkið sé hins vegar leið-
beinandi.
Thomas Nordahl, prófessor í upp-
eldi við Háskólann í Hedmark, segir
foreldra verða að gera sér ljóst að
það skapist þrýstingur meðal ann-
arra barna láti þeir undan óskum
um kaup á ofbeldisfullum tölvu-
leikjum. Það séu skilaboð til ann-
arra foreldra um að þetta skipti ekki
svo miklu máli.
Á Íslandi var gerð könnun árið
2005 á vegum vakningarátaks-
ins SAFT – Samfélag, fjölskylda
og tækni, á notkun tölvuleikja
meðal 9-16 ára barna. Fjórðungur
barnanna sagði að foreldrar þeirra
þekktu frekar lítið eða mjög lítið
til þeirra leikja sem þau spiluðu í
leikjatölvum. Um 40 prósent sögðu
að foreldrar þeirra þekktu lítið eða
mjög lítið til netleikja. Jafnframt
kom fram að um þriðjungur barna
keypti leiki sem ekki voru ætlaðir
þeirra aldurshópi.
Hrefna Sigurjónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Heimilis og skóla,
segir fyrirspurnum frá foreldrum
um tölvuleiki hafa fækkað enda hafi
verið unnin mikil forvarnavinna á
vegum SAFT og Heimilis og skóla.
„Það er helst að við fáum fyrir-
spurnir um notkun bannaðra leikja
þegar út koma nýir leikir eins og
Grand Theft Auto og þess háttar.
Þá skapast alltaf umræða um fyrir
hvaða aldur slíkir leikir eru og hvað
þeir innihalda. Það er þá helst þegar
foreldrar vilja sameinast um upp-
eldisleg viðmið, eins og til dæmis
þegar þeir vilja koma í veg fyrir að
barnið þeirra spili bannaða leiki í
heimsókn hjá vinum.“
Það er mat Hrefnu að líklega megi
greina minni áhyggjur þar sem for-
eldrar séu nú almennt betur upp-
lýstir. „Ef til vill eru yngri foreldrar
betur upplýstir um tölvuleikjanotk-
un þar sem þeir spila jafnvel tölvu-
leiki sjálfir. En það er með þetta
eins og allt forvarnastarf. Það þarf
að halda málaflokknum vakandi
og ekki slaka á kröfunum.“
ibs@frettabladid.is
Ef til vill eru yngri
foreldrar betur
upplýstir um tölvuleikja
notkun þar sem þeir spila
jafnvel tölvuleiki sjálfir. En
það er með þetta eins og allt
forvarnastarf. Það þarf að
halda mála
flokknum
vakandi og
ekki slaka á
kröfunum.
Hrefna Sigurjónsdóttir,
framkvæmdastjóri Heimilis og skóla
Veður
Norðlæg átt og nokkuð bjart norðanlands
fyrri hluta dags, en snjókoma eða él fyrir
sunnan og austan. Stöku snjókorn gætu
fallið suðvestan- og vestanlands og því er
ekki útilokað að allir landsmenn verði varir
við einhvern snjó. Hiti um frostmark.
Sjá Síðu 36
Jólasveinar einn og átta
Fyrirspurnum foreldra
um tölvuleiki fækkar
Í Noregi leika 40 prósent 9-16 ára barna tölvuleiki sem ætlaðir eru 18 ára og
eldri. Halda þarf málaflokknum vakandi, segir Hrefna Sigurjónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Heimilis og skóla. Hún telur foreldra almennt betur upplýsta.
Samtökin Heimili og skóli hafa fengið fyrirspurnir vegna tölvuleiksins Grand Theft Auto.
LöGreGLuMáL Maður á sextugs-
aldri sem varð fyrir bíl í Ártúns-
brekkunni í gærmorgun er látinn.
Ekið var á manninn sem var á
hjóli rétt hjá bensínstöð N1 um
hálf sjö í gær og var veginum til
austurs lokað í einn og hálfan tíma
á meðan lögreglan var að störfum.
Lögreglan leitar nú vitna að slysinu
og biður þá sem kunna að hafa
orðið vitni að hafa samband við
sig. – ngy
Banaslys í
Ártúnsbrekku
Þráðlaus kjöthitamælir
FULLT VERÐ
7.990
4.990
Stilltu á
tegund og steikingu
Mælirinn lætur þig vita
þegar maturinn er tilbúinn
Fyrir grill og ofna
Er frá Þýskalandi
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
www.grillbudin.iswww.grillbudin.is
Opið alla daga til jóla
DóMSMáL Lárus Welding, fyrr-
verandi forstjóri Glitnis, var í gær
dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir
umboðssvik í Stím-málinu svokall-
aða í Héraðsdómi Reykjavíkur
Þá fékk Jóhannes Baldursson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
markaðsviðskipta Glitnis, tveggja
ára fangelsisdóm og Þorvaldur Lúð-
vík Sigurjónsson, fyrrverandi for-
stjóri Sögu Capital, átján mánaða
dóm.
Í málinu var Lárus ákærður ásamt
þeim Jóhannesi og Þorvaldi fyrir
lánveitingar Glitnis til hlutabréfa-
kaupa í Glitni og FL Group. Neit-
uðu þeir allir sök. – ngy
Lárus Welding
dæmdur í fimm
ára fangelsi
Lárus var dæmdur fyrir umboðssvik í
Stím-málinu. FréTTAbLAðið/GVA
ViðSkipti Íslandsbanki hefur sett
hlut sinn í Frumherja í söluferli.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins verður fyrirtækið auglýst á
næstu dögum.
Áttatíu prósenta hlutur í fyrirtæk-
inu er í eigu bankans en 20 prósent í
eigu Orra Hlöðverssonar og Ásgeirs
Baldurs. Fyrirtækið er það stærsta á
markaðnum sem sinnir bílaskoðun,
en það gegnir jafnframt fjölbreyttari
starfsemi.
Vísir greindi frá því 12. nóvember
að fyrirtækið yrði sett í sölu á allra
næstu dögum og er það nú orðið að
veruleika.
Finnur Ingólfsson, fyrrverandi
ráðherra, og fleiri fjárfestar keyptu
Frumherja árið 2007 af Óskari Eyj-
ólfssyni. Eftir bankahrunið var fjár-
hagur fyrirtækisins endurskipu-
lagður og eignaðist Íslandsbanki
hlut í fyrirtækinu þegar því ferli
lauk í janúar 2014. – jhh
Frumherji loks
komið í söluferli
Nú fer hver að verða síðastur að kaupa jólagjöf fyrir sína nánustu. Á Íslandi þykir það góð hefð að gefa góða bók en fjölmargir hafa eflaust lagt leið
sína í bókabúðir borgarinnar til að vaða jólabókaflóðið fyrir aðfangadag. FréTTAbLAðið/AnTon brink
2 2 . D e S e M b e r 2 0 1 5 Þ r i ð j u D A G u r2 F r É t t i r ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
1
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
C
6
-1
8
7
8
1
7
C
6
-1
7
3
C
1
7
C
6
-1
6
0
0
1
7
C
6
-1
4
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
2
1
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K