Fréttablaðið - 22.12.2015, Blaðsíða 36
Fólk| heilsa
Samtökin Ljónshjarta fengu ný-
verið styrk frá Creditinfo sem
stendur til að nota til að efla fag-
lega ráðgjöf til þeirra sem missa
maka skyndilega en hana hefur
töluvert skort.
Samtökin voru stofnuð árið
2013 en þau eru hugsuð fyrir
yngra fólk sem missir maka í
blóma lífsins. „Við miðum við
fólk á aldrinum 20 til 50 ára en
þeir sem eru yngri eða eldri með
ung börn eru líka velkomnir,“
segir Karen Björk Guðjónsdóttir,
varaformaður samtakanna. Hún
missti manninn sinn úr krabba-
meini og segir það svolítið ólíkt
því að missa maka skyndilega.
„Hann dó á líknardeild og þar
er ágætis stuðningur við maka
og aðstandendur fyrir hendi. Ég
fékk afhenta upplýsingamöppu
um það helsta sem stendur að-
standendum til boða. Það sama
á ekki endilega við um þá sem
missa maka af slysförum eða
öðrum skyndilegum orsökum. Í
samtökunum hefur verið talað
um að þeir standi svolítið ráð-
þrota og er vilji til þess að reyna
að bæta úr því. Endanleg ákvörð-
un um framkvæmdina verður þó
ekki tekin fyrr en á stjórnarfundi
í byrjun næsta árs,“ útskýrir
Karen.
Samtökin eru ung að árum og
segir Karen styrkinn hafa komið
ánægjulega á óvart. „Það var líka
svo skemmtilegt hvernig Credit-
info stóð að þessu. Í gegnum tíð-
ina hefur fyrirtækið sent jólagjaf-
ir til viðskiptavina en í fyrra var
ákveðið að láta féð heldur renna
til góðgerðarmála og það ár fékk
Mæðrastyrksnefnd um fjögur-
hundruð þúsund krónur. Í ár var
ákveðið að ganga skrefinu lengra
og fá starfsmenn til að taka
virkari þátt. Efnt var til keppni
á milli deilda og stóð hvert svið
fyrir fjáröflun innanhúss. Það var
haldið bingó, útbúinn dögurður
sem selt var inn á, haldin boot-
camp-keppni og hjólaáskorun.
Sú deild sem safnaði mestu fékk
að velja líknarfélag til að styrkja
og varð Ljónshjarta fyrir valinu.
Við fengum samanlagða upphæð
allra deilda sem hljóðaði upp
á 650 þúsund krónur og bætti
fyrirtækið sömu upphæð við,“
upplýsir Karen.
Hún fór ásamt Söru Óskars-
dóttur, vefstjóra Ljónshjarta, og
tók við styrknum.
„Þegar við spurðum af hverju
okkar samtök urðu fyrir valinu
fengum við þau svör að meðal-
aldur starfsmanna væri lágur
og þó enginn vilji lenda í okkar
sporum þykir þeim gott að starf-
semi sem þessi sé fyrir hendi,“
segir Karen. Hún segir samtökin
fyrst og fremst ganga út á jafn-
ingjafræðslu og jafningjastuðning
enda finnst flestum hjálplegt að
komast í kynni við fólk með svip-
aða reynslu.
„Markmið okkar er að styðja
við bakið á yngra fólki eftir maka-
missi og vera vettvangur þar
sem fólk getur hjálpað hvert
öðru í sorg. Starfið felst meðal
annars í því að halda úti heima-
síðu með ýmiss konar fræðslu-
efni. Þar getur fólk meðal annars
nálgast upplýsingar um réttindi
sín í kerfinu og sorgarferli barna
og fullorðinna. Þar bendum við
sömuleiðis á fagfólk sem hefur
reynst vel. Þá efnum við til fyrir-
lestra og samverustunda þar
sem fullorðnir, unglingar og yngri
börn hittast og eiga góða stund.“
Karen bendir á að hægt er
að sækja um aðgang að LJÓNS-
HJARTA á Facebook. Það er
lokaður hópur fyrir þá sem hafa
misst maka en auk þess er opin
síða undir heitinu Ljónshjarta
sem hægt er að líka við. Karen
segir fólk ekki endilega þurfa að
leggja eitthvað til málanna í lok-
aða hópnum. „Sumum þykir nóg
fylgjast með og upplifa stuðning
og styrk í frásögnum annarra og
er það í góðu lagi.“
n vera@365.is
Vilja efla faglega ráðgjöf
skyndilegur makamissir Ljónshjarta, samtök til stuðnings yngra fólki sem hefur misst maka og börnum þeirra, fengu nýverið
myndarlegan styrk sem stendur til að nota til að efla faglega ráðgjöf til þeirra sem missa maka skyndilega.
Vaxandi samtök „Í ljónshjarta hefur verið talað um að þeir sem missa maka sinn
skyndilega standi svolítið ráðþrota. Við viljum reyna að bæta úr því,“ segir karen.
Fljótleg og holl grænmetissúpa
1 kg tómatar
500 g gúrka
300 g rauð paprika
1-2 hvítlauksrif
50 ml hvítvínsedik
150-200 ml jómfrúarolía
100-150 g dagsgamalt brauð
án skorpu
sjávarsalt og hvítur pipar
Skrælið gúrkurnar og fræ-
hreinsið paprikurnar. Skerið
allt grænmetið í bita og setjið
í skál með brauðinu. Hluta af
ediki og olíu bætt út í ásamt salti og pipar. Látið standa við stofuhita í 30 mín-
útur. Maukið þá með töfrasprota og bætið restinni af olíunni og edikinu út í.
Smakkið til með salti og pipar. Kælt áður en borið er fram.
Uppskriftin er fengin af www.islenskt.is. Höfundur er Sigurveig Káradóttir.
Fljótleg og holl
Köld grænmetissúpa sem gott er að eiga í
ísskápnum og grípa til á milli jólakræsinganna.
Tímalaus hönnun | Lífstílsvörur | winstonliving.is
Nýbýlavegi 8 í Portinu | 200 Kópavogur
2
1
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
C
6
-3
1
2
8
1
7
C
6
-2
F
E
C
1
7
C
6
-2
E
B
0
1
7
C
6
-2
D
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
7
2
s
_
2
1
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K