Lögmannablaðið - 01.06.2009, Page 25
LÖGMANNABLAÐIÐ – 2 / 2009 > 25
Umfjöllun
Gönguferð að hliði Helvítis
Laugardagsmorguninn 13. júní lagði 51
manns hópur af stað á jeppum frá
Álftamýri 9. Ekið var í Skjólkvíar við
Heklurætur og þaðan lagt af stað í
blíðviðri upp á Heklu. Fyrir gönguna
hafði Ari Trausti Guðmundsson
jarðfræðingur komið á fund og frætt
ferðalanga um jarðsögu fjallsins. Þar
kom meðal annars fram að búist er við
gosi á næstu tveimur árum en mælar á
fjallinu gefa vísindamönnum vísbend-
ingu um hvað er í vændum með eins til
tveggja klukkustunda fyrirvara.
Hekla var lengi talin vera hlið Helvítis
og er ekki að undra því þegar upp er
komið þá rýkur úr toppnum. Göngu-
menn urðu þó einskis varir en sagður
var brandari um verkfræðinginn sem
var sendur niður til Helvítis fyrir mistök.
Innan skamms var þar komin fínasta
loftræst ing og Guð var ekki sáttur.
Hann vildi fá verkfræðinginn upp til sín
og hótaði málaferlum ef Fjandinn sendi
verk fræðinginn ekki eins og skot upp.
Þá glotti Fjandinn og sagði „Þú í mál?
Með hvaða lögfræðinga?“
Þegar hópurinn hafði áð um stund á
toppi Heklu breyttist veðrið og á niður-
leið hreppti hann rigningu og haglél.
Ekki þótti ferðalöngum það verra eða
eins og einn orðaði það: „Mikið var
þetta vellukkað allt saman, veðrið
dásam legt, haglélið og allt.“
Að lokinni göngu var farið í Heklusetrið
á Leirubakka en þar er merkileg sögu-
sýning um fjallið. Svo var farið í heita
potta og víkingalaug og að lokum
borðaður kvöldverður.
„Lofa skal mey á toppi“ sagði einn
göngumanna spekingslega við Guðrúnu
Sesselju Arnardóttur (t.v.) í byrjun
göngu en hún hafði lokið hrl. prófraun
daginn áður og fagnað með viðeigandi
hætti. Hér er hún ásamt Evu Bryndísi
Helgadóttur á toppnum. Þar rauk úr
hrauninu og ekki laust við að ónota-
tilfinning blandaðist ánægjunni við að
vera komin upp.
Hekla er 1491 metri að hæð en gönguhækkun frá Skjólkvíum er 1040 metrar.
Náttúrufræðingarnir bjarni Pálsson og Eggert ólafsson gengu fyrstir manna á fjallið árið 1750 og var gangan talin tákn rænn
viðburður sem markaði þáttaskil, bæði sem könnunarleiðangur og upp reisn gegn gömlum hindurvitnum. Síðan þá hafa margir
gengið upp á fjallið og haft gaman af.