Lögmannablaðið - 01.06.2013, Page 10

Lögmannablaðið - 01.06.2013, Page 10
10 lÖgmannaBlaÐiÐ tBl 01/13 LöGMeNN ÞurfA að skýra miklu betur fyrir almenningi hver tilgangur starfa þeirra er og gera sér grein fyrir því að þeir standa höllum fæti sem stétt. Almenningur upplifir lögmenn þannig að þeir séu ávallt að gæta hagsmuna og minna er leitað til þeirra sem sérfræðinga hér á landi en víða annars staðar. Þetta kom m.a. fram í máli tryggva Gunnarssonar umboðsmanns Alþingis, í framsöguræðu sinni á aðalmálstofu Lagadagsins 2013 um stöðu lögfræðinnar. óhætt er að segja að tryggvi hafi verið gagnrýninn í ræðu sinni sem hefði allt eins getað verið hálfleiksræða frá þjálfara sem er ekki alls kostar sáttur við frammistöðu leikmanna sinna. í máli hans kom fram að honum hefði að undanförnu gefist tækifæri til þess að yfirfara vinnubrögð, skjalagerð og lögfræðivinnu í fjármálakerfinu. „Mig setti hljóðan,“ sagði tryggvi og spurði hvar lögfræðilega aðkoman hefði verið varðandi skjalagerð í tengslum við gengistryggð lán, veð og ábyrgðir. lögmenn þurfa að líta í eigin barm tryggvi sagði að í þessu samhengi hlytum við að velta fyrir okkur þeirri ábyrgð sem lögmenn bæru og stéttin þyrfti að líta í eigin barm. hann tók þó fram að algeng skýring, sem hann hefði heyrt, væri sú að vegna sparnaðar vantaði víða lögfræðinga og lögmenn en þeir væru svo kallaðir til á síðari stigum og væru þá í hlutverki slökkviliðsins. Mikilvægt væri hins vegar fyrir lögmenn að spyrna við fótum í slíkum aðstæðum. hann sagði miklu skipta fyrir þjóðfélagið að til væri óháð lögmannastétt sem beiti þekkingu sinni og getu í þágu almannahagsmuna. hann tók fram að hann hefði verulegar áhyggjur af menntun og fræðibókanotkun lögmanna, menn þyrftu að gera miklu meira af því að leita í fræðin og ekki síður að sækja sér endurmenntun. Þjóðarsátt um breytta umræðuhefð ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og fv. dóms­ og mannréttindaráðherra, hélt síðari framsögu málstofunnar og gerði skoðanakannanir um traust á stofnunum í þjóðfélaginu að umfjöllunarefni sínu. Þar hefði ítrekað komið í ljós að traust á t.d. Alþingi mældist afar lágt. Þetta væri áhyggjuefni og taldi ragna að þjóðarsátt þyrfti að nást um að breytta umræðuhefð á þingi. Þetta þyrftu lögmenn einnig að taka til skoðunar og taka því verkefni fagnandi að auka veg lögfræðinnar í samfélaginu. ragna sagði að lögmenn yrðu að tjá sig af auðmýkt um mál og vera minnugir þess að almenningi er ekki tamt að nota lögfræðileg hugtök í sínu tungumáli. ragna velti því einnig upp hvort lögfræðitexti væri oft á tíðum ekki óþarflega flókinn og stundum væri ekki ljóst fyrir hvern textinn væri skrifaður. staða lögfræðinnar í samfélaginu: „stöndum höllum fæti sem stétt“ F.v. ragna Árnadóttir, guðmundur sigurðsson, Kristín Edwald, Hjörtur O. aðalsteinsson og Jónas Þór guðmundsson. lAGADAGUr 2013 tryggvi gunnarsson vill að lögfræðingar líti í eigin barm lj ós m yn d: Þ or ke ll Þo rk el ss on . lj ós m yn d: Þ or ke ll Þo rk el ss on .

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.