Lögmannablaðið - 01.06.2013, Qupperneq 16
16 lÖgmannaBlaÐiÐ tBl 02/13
lAGADAGUr 2013
EFtir aÐ HaFa fjallað um lög allan daginn brugðu
lögfræðingar sér heim til að skipta út vinnugalla fyrir
dansgalla og lakkskóm fyrir dansskó. Hófst svo skemmtun
mikil þar sem Helgi Jóhannesson veislustjóri klæddist
silfurslegnum pallíettujakka, stórhljómsveit lögfræðinga
undir stjórn trommarans Heimis arnar Herbertssonar tók
lagið og ari Eldjárn fór með gamanmál. danshljómsveit hélt
svo uppi stuðinu fram á rauða nótt. Vel heppnaður dagur
að kvöldi, gylltir vökvar í glösum og gleði við völd.
ljósmyndir: Þorkell Þorkelsson.
dag skal að kveldi lofa
Áður en sest var að veisluborði var móttaka þar sem
kunningjar stungu saman nefjum og vinir heilsuðust
með virktum. F.v. Fanney Hrund Hilmarsdóttir og Sigríður
Rut Júlíusdóttir.
Þátttakendur pallborðsumræðna fyrr um daginn ásamt
mökum skemmtu sér konunglega enda búið að ræða
um verðtryggingu og útskurðarnefndir. F.v. Eyvindur G.
Gunnarsson, Elfa Ýr Gylfadóttir, Arnar Guðjónsson, Áslaug
Árnadóttir, Ragnheiður Snorradóttir, Stefán Már Stefánsson
og Helga Melkorka Óttarsdóttir.
Dýrindis forréttir voru á boðstólnum í móttökunni. F.v.
Sigríður Dagmar Jóhannsdóttir, Elva Dögg Ásudóttir
Kristinsdóttir og Helga Vala Helgadóttir gæddu sér á íslenskri
bleikju að hætti VOX, Ceviche, grafinni gæs með brenndum
fíkjum og lambatörtum með jurtum.
Starfsmenn umboðsmanns Alþingis léku við hvern sinn fingur.
F.v. Róbert R. Spanó, Særún María Gunnarsdóttir, Berglind
Bára Sigurjónsdóttir og Ingibjörg Þóra Sigurjónsdóttir.