Lögmannablaðið - 01.06.2013, Page 23
lÖgmannaBlaÐiÐ tBl 02/13 23
Af VettVAnGi fÉlAGsins
Hádegisverðarfundaröð lmFÍ
í MArs og apríl s.l. stóð Lögmannafélag
íslands fyrir fundaröð um meðferð
sakamála hér á landi eftir hrun. Á
fyrsta fundi var viðfangsefnið vernd
og þýðing trúnaðarsambands lögmanna
og skjólstæðinga þeirra við rannsókn
sakamála, þar sem framsögumenn
voru reimar pétursson hrl. og ragnar
Aðalsteinsson hrl. Á fundi tvö var
málsmeðferð opinberra mála og jafnræði
aðila tekin fyrir, en frummælendur voru
Guðrún sesselja Arnardóttir hrl. og
karl Axelsson hrl. Á þriðja og síðasta
fundinum var umfjöllunarefnið svo
umboðssvik í lánastarfsemi og hvernig
dómstólar hafa beitt ákvæði 249. gr.
almennra hegningarlaga í nýlegum
dómum sínum. ræðumenn voru
óttar pálsson hrl. og Gestur jónsson
hrl. fundirnir voru allir vel sóttir og
miklar umræður spunnust í framhaldi
af framsögum, enda hafa þessi málefni
mikið verið í deiglunni undanfarin
misseri og ár.
Fimmtudaginn 14. mars ræddu Ragnar Aðalsteinsson hrl.
og Reimar Pétursson hrl. um trúnaðarsamband lögmanna
og skjólstæðinga þeirra og vernd þess að lögum.
Þriðjudaginn 9. apríl ræddu Gestur Jónsson hrl. og
Óttar Pálsson hrl. um meðferð sakamála - umboðssvik í
lánastarfsemi.
Fimmtudaginn 21. mars ræddu Karl Axelsson hrl. og
Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl. um meðferð sakamála -
málsmeðferðina og jafnræði málsaðila.
Á fundinn þriðjudaginn 9. apríl mættu á annað hundrað
manns til að hlusta á Óttar Pálsson hrl. og Gest Jónsson hrl.