Lögmannablaðið - 01.06.2013, Side 28

Lögmannablaðið - 01.06.2013, Side 28
28 lÖgmannaBlaÐiÐ tBl 02/13 Af VettVAnGi fÉlAGsins aÐalFundur Félags KVEnna í lögmennsku (FKl) 2013 fór fram föstudaginn 10. maí sl. nýkjörinn formaður félagsins er marta margrét Ö. rúnarsdóttir hdl. Frá stofnun FKl árið 2004 hefur starfsemi félagsins gengið út á mynda tengslanet kvenna sem stunda lögmennsku og efla samstarf þeirra. FKl starfar innan vébanda félagsdeildar lögmannafélags Íslands en með sjálfstæða stjórn. Aðalfundur fkL hófst á því að Þorbjörg Gunnlaugsdóttir lögfræðingur hélt skemmtilegt og líflegt erindi um nýlega dvöl sína við Columbia háskóla í New York þar sem hún sótti framhaldsmenntun í lögfræði. Þá staðfesti aðalfundur fkL tillögu stjórnar um að svala thorlacius hrl. yrði kjörin heiðursfélagi. í stuttu erindi sem svala hélt rifjaði hún upp skemmtileg atvik af löngum og farsælum ferli. erindi svölu var í léttum dúr og fundargestir hlógu oft dátt. fráfarandi formaður fkL, Auður Björg jónsdóttir hdl., flutti þá skýrslu stjórnar og fór yfir helstu viðburði nýliðins starfsárs. Ganga kvenlögmanna á helgafell í maí 2012 markaði upphaf starfsstjórnar félagsins. í júní stóð félagið þá fyrir árlegri jónsmessugöngu og í þetta sinn var haldið á Úlfarsfell. Á haustdögum stóð félagið fyrir námskeiðinu „Markviss framsögn“ í samstarfi við LMfí. Margrét pálsdóttir málfræðingur fór þar yfir gagnleg atriði sem hafa ber í huga við framsögn, bæði á fundum og í málflutningi. Þá tók lið fkL þátt í innanhúsmóti LMfí í knattspyrnu og stóð sig með mikilli prýði. fjölsóttustu viðburðir félagsins þetta starfsárið voru óformlegar samkomur „happy hour“ sem tvívegis var efnt var til haustið 2012, og jafnframt í mars 2013. hafa slíkar samkomur mælst vel fyrir og hafa konur í lögmennsku, með ólíkan bakgrunn, átt skemmtilegar stundir saman. Markmiðið með samkomum sem þessum hefur verið að styrkja tengslin innbyrðis og tengja saman konur í stéttinni á öllum aldri. Næst á dagskrá aðalfundar var kjör stjórnar fyrir næsta starfsár 2013­2014. Auk Mörtu Margrétar voru kjörnar í stjórn Guðrún sesselja Arnardóttir hrl., Linda fanney Valgeirsdóttir hdl., Guðmundína ragnarsdóttir hdl., Guðríður Lára Þrastardóttir hdl., erna heiðrún jónsdóttir hdl. og Guðrún Björg Birgisdóttir hrl. Að aðalfundarstörfum loknum var boðið upp á léttar veitingar í boði LOGOs lögmannsþjónustu. fundurinn var vel sóttur, sem er gleðiefni fyrir stjórn fkL, og er það merki um aukinn áhuga kvenlögmanna á félaginu. fkL er kjörinn vettvangur fyrir tengslamyndun meðal kvenna sem starfa í lögmennsku, fyrir umræður um málefni þeirra og til að kynna hvað kvenlögmenn gera samhliða störfum sínum, s.s. sækja framhaldsmenntun, vinna að nýjungum í starfi eða öðru því sem þær hafa áhuga á. tilgangur félagsins er að efla samstarf og styrkja stöðu kvenna í lögmannastéttinni og auka áhrif og þátttöku kvenna í lögmennsku. Markmið félagsins er jafnframt að gera konur í lögmennsku sýnilegri og halda uppi umræðu og standa vörð um málefni um hagsmuni kvenna í stéttinni. fráfarandi stjórn er þakkað fyrir vel unnin störf. eins er þeim fjölmörgu þakkað sem ljáð hafa félaginu lið á liðnu starfsári, ekki síst Lögmannafélagi íslands og þeim lögmannsstofum sem stutt hafa starf félagsins. Marta Margrét Ö. Rúnarsdóttir hdl. svala thorlacius hrl. heiðursfélagi FKl iðulega sóttar á grundvelli almennra reglna skaðabótaréttarins, þar sem oft er á brattann að sækja um sönnun á orsakatengslum milli ætlaðra læknamistaka og tjóns þess sjúklings sem í hlut á. dómur hæstaréttar 21. febrúar 2013 í máli nr. 388/2012 hefur að geyma áminningu um inntak laga nr. 111/2000, en vekur einnig upp spurningar um hvort lögmenn hér á landi hafi nýtt öll þau úrræði sem tiltæk eru að gildandi rétti fyrir umbjóðendur í skaðabótamálum vegna læknamistaka. Þegar lagður er grunnur að máli af áðurgreindum toga, kann iðulega að vera ástæða til að byggja kröfu um skaðabætur á lögum nr. 111/2000, ýmist einvörðungu eða með því að hafa samhliða uppi viðbótarkröfu sem reist yrði á almennum reglum skaðabótaréttar, allt eftir aðstæðum og umfangi tjóns hverju sinni.

x

Lögmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.