Fréttablaðið - 15.12.2014, Blaðsíða 2
15. desember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SVEITARSTJÓRNIR „Þetta er eigin-
lega sjálfheldumál,“ segir Magn-
ús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði,
um erfiða stöðu sveitarfélags-
ins gagnvart íbúðarhúsi sem er í
niður níðslu í plássinu.
Eins og fram kom í Frétta-
blaðinu á föstudag stendur
nágrönnum íbúðarhússins Víkur
í Garði verulegur stuggur af
bágu ástandi hússins. Þakið er
að hruni komið og fiskineti hefur
verið brugðið yfir húsið til þess
að freista þess að hindra að laus-
ar þakplötur fjúki og slasi fólk og
skemmi eigur þess.
Húsið er í eigu sextugs karls og
fimmtugrar konu sem áður voru í
sambúð. Konan er flutt úr húsinu
en maðurinn býr þar enn og mun
hafast við í einu kjallaraherberg-
inu þar sem skjólið er mest fyrir
veðri og vindum. Hann hefur ekki
sinnt því að hindra skemmdirnar
á húsinu eða koma því í betra horf.
Magnús segir viðræður við eig-
anda hússins hafa staðið yfir að
undanförnu. „Við höfum lagt að
honum að gera úrbætur á hús-
inu. Eins og sést þá hefur það ekki
borið mikinn árangur,“ segir hann.
Bæjarstjórinn segir að það eina
sem sveitarfélagið geti gert sé að
fara í formlegt ferli með málið þar
sem eigandanum er gefinn frest-
ur til úrbóta. „Að öðrum kosti láti
sveitarfélagið gera það á hans
kostnað og við erum að vinna í því
að koma þessu ferli af stað,“ segir
hann.
Fyrir meira en tveimur og hálfu
ári, í mars 2012, sögðu Víkurfrétt-
ir frá því að Garður hefði boðað
húseigandanum að lagðar yrðu á
hann 30 þúsund króna dagsektir
frá 1. júní það ár ef hann kæmi
ekki skikki á húsið. Þeim var
ekki beitt og Magnús kveðst ekki
þekkja þá sögu því þetta hafi verið
fyrir hans tíð sem bæjarstjóri.
„Við höfum þetta dagsekta-
úrræði en mér skilst að við getum
gefið honum frest og síðan gripið
inn í málið með einhverjum hætti
á hans kostnað,“ segir Magnús
sem kveður nú skoðað hjá bænum
hvernig betur megi tryggja húsið
þar til framtíðarlausn finnst.
Magnús undirstrikar að málið sé
ekki einfalt því réttur eigandans
sé mikill og huga þurfi að kostn-
aðarhliðinni. Bæjarstarfsmenn
séu sendir reglulega að húsinu til
að fylgjast með. „Maður fær eigin-
lega kvíðakast í hvert sinn sem
hreyfir vind. Það þarf að afstýra
þeirri hættu sem stafar af þessu
og við erum að vinna að ákveðinni
lausn sem við vonumst til að ná í
samvinnu við eigandann,“ segir
bæjarstjórinn.
gar@frettabladid.is
Maður
fær eiginlega
kvíðakast í
hvert sinn
sem hreyfir
vind.
Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði.
SPURNING DAGSINS
Úrval af gæða buxum frá
STJÓRNMÁL Formenn stjórnarand-
stöðunnar sendu í gær frá sér sam-
eiginlega yfirlýsingu þar sem þeir
kalla eftir sáttanefnd vegna lækna-
deilunnar.
Í yfirlýsingunni segir meðal ann-
ars að ríkisstjórnin virðist ráðalaus
í deilunni.
„Brúa verður það bil sem er á
milli afstöðu lækna og ríkisins.
Landsmenn eiga heimtingu á því
að stjórnvöld geri allt sem mögu-
legt er að til að greiða fyrir lausn
deilunnar.“
Formennirnir vísa í lög um
stéttar félög og vinnudeilur þar sem
segir að ríkisstjórnin geti, ef sýnt
þyki að vinnudeila hafi mjög alvar-
legar afleiðingar, skipað sérstaka
sáttanefnd til að vinna að lausn
deilunnar.
„Við formenn Samfylkingar,
Vinstri grænna, Bjartrar framtíðar
og Pírata hvetjum ríkisstjórnina til
að hugleiða beitingu þessa úrræðis
og ræða við ríkissáttasemjara um
hvort þessi leið geti auðveldað það
verkefni að brúa bil milli aðila. Það
er ekki hægt að sitja með hendur í
skauti við þessar aðstæður,“ segir
að lokum í yfirlýsingunni. - fbj
Formenn stjórnarandstöðunnar senda frá sér sameiginlega yfirlýsingu:
Vilja sáttanefnd í læknadeiluna
STJÓRNARANDSTAÐAN Árni Páll Árnason, Katrín Jakobsdóttir, Guðmundur Stein-
grímsson og Birgitta Jónsdóttir, formenn stjórnarandstöðuflokkanna, sendu frá sér
sameiginlega yfirlýsingu vegna læknadeilunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Boða nýjar dagsektir
og bráðabirgðalausn
Bæjarstjórinn í Garði segir sveitarfélagið í erfiðri stöðu gagnvart húsi sem íbúum
stafar ógn af vegna fjúkandi þakplatna. Viðræður við eigandann standi yfir og
dagsektum verði ef til vill beitt. Dagsektum var einnig hótað árið 2012 án árangurs.
VÍK Ástand hússins er vægast sagt skelfilegt og versnar stöðugt.
Eru einhverjir einmana vett-
lingar eftir?
„Já, það eru eiginlega fleiri einmana
vettlingar hjá okkur núna.“
Segir Karen Bergljót Knútsdóttir sem stóð
fyrir söfnun á týndum vettlingum. Söfnunin
gekk vonum framar og söfnuðust meðal
annars einmana sturtuhanski og barnalúffa.
Karen geymir vettlingana svo til næstu
söfnunar.
MENNTAMÁL Heimsókn Lang-
holtsskóla í Langholtskirkju þann
18. desem ber hefur orðið tilefni
deilna vegna reglna Reykjavík-
urborgar um trúboð á skólatíma.
Nemendur skólans munu eiga
hátíðlega stund saman, syngja
jólalög og horfa á helgileik. Í
auglýsingu skólans á viðburðin-
um var sagt frá því að þeir nem-
endur sem færu ekki til kirkju
fengju að gera eitthvað skemmti-
legt. Nú er komið í ljós hver
skemmtunin verður, þeir munu
fara í kyndlagöngu og á bóka-
safnið. - kbg
Deilt um helgileikinn:
Á bókasafnið í
stað kirkju
VIÐSKIPTI Lýsi hf. var rekið með
952 milljóna króna hagnaði í
fyrra og afkoman batnaði þá um
621 milljón milli ára.
Samkvæmt nýbirtum ársreikn-
ingi fyrirtækisins námu eignir
þess rúmum tíu milljörðum króna
við árslok 2013. Lýsi skuldaði þá
tæpa níu milljarða en rekstrar-
tekjur námu 9,4 milljörðum
króna. Lýsisbirgðir fyrirtækis-
ins eru metnar á þrjá milljarða
en félagið hefur veðsett birgð-
ir vegna skammtímaskulda við
lánastofnanir að fjárhæð 3,2
milljarðar króna. - hg
Veltan nam 9,4 milljörðum:
Hagnaður Lýsis
nær þrefaldast
STJÓRNMÁL Að öllu óbreyttu er
framundan mesti niðurskurður í
sögu RÚV vegna fyrirhugaðrar
lækkunar á útvarpsgjaldi. Magnús
Geir Þórðarson útvarpsstjóri segir
að hjá stjórn RÚV og framkvæmda-
stjórn sé ekki hafin nein vinna við
að teikna upp hvernig slíkur nið-
urskurður myndi eiga sér stað ef
fram fer sem horfir með lækkun
útvarpsgjalds. „Stjórn RÚV og
framkvæmdastjórn hafa teiknað
upp sviðsmyndir af rekstrinum
til næstu fjögurra ára miðað við
núverandi starf-
semi sem grund-
vallast á laga-
legum skyldum
í útvarpslög-
um. Þar kemur
fram að ef fyrir-
huguð lækkun
á útvarpsgjaldi
gengur í gegn
þarf að skerða
þjónustu RÚV verulega í náinni
framtíð og um leið yrði eðlisbreyt-
ing á hlutverki Ríkisútvarpsins.
Ef útvarpsgjaldið helst óbreytt, þá
er hægt að halda áfram starfsemi
Ríkisútvarpsins á sama grunni
og hingað til. Það er ekki búið að
teikna upp nein niðurskurðaráform
og er ekki í undirbúningi.“
Magnús segir niðurskurðinn
sem þurfi til að mæta lækkun á
útvarpsgjaldi af þeirri stærðar-
gráðu að það þyrfti að velja í burt
stóra þætti starfseminnar; blaða-
maður spyr hvort megi jafna því
við jafn stóra þætti og fréttastofu
RÚV eða alla innlenda dagskrár-
gerð. „Þetta væri veruleg breyt-
ing á starfsemi og þeirri þjónustu
sem þjóðin hefur notið. Ef þetta
gengur í gegn, þá þarf að velja í
burtu stóra þætti starfseminnar.
Magnús Geir segist aðspurður ekki
hafa íhugað uppsögn sjálfur þurfi
hann að takast á hendur svo mikinn
niður skurð. „Við höfum verið alger-
lega samstiga, tíu manna stjórn
félagsins og ný framkvæmdastjórn,
að draga upp heildstæða mynd af
stöðu mála og berjast fyrir því að
staðinn sé vörður um RÚV.“ - kbg
Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri RÚV, jafnar niðurskurði við það að skera niður alla dagskrárgerð:
Þarf að velja burt stóra þætti í starfi RÚV
MAGNÚS GEIR
ÞÓRÐARSON
LONDON Hin 22 ára gamla Rolene Strauss, ungfrú Suður-Afríka, var í
gær valin Ungfrú heimur. Keppnin var haldin í London en alls tók 121
kona frá jafnmörgum löndum þátt að þessu sinni.
Strauss er læknanemi á fjórða ári en hún tók sér frí frá náminu til
að einbeita sér að lokakeppninni. Edina Kulcsar, ungfrú Ungverja-
land, hafnaði í öðru sæti og það þriðja fór til Elizabeth Safrit, ung-
frúar Bandaríkjanna. Tanja Ýr Ástþórsdóttir, fulltrúi Íslands í keppn-
inni, var ekki í hópi 25 efstu keppenda. - hg
Fulltrúi Íslands ekki í hópi 25 efstu keppenda í London:
Ungfrú heimur frá Suður-Afríku
FEGURST FLJÓÐA Rolene Strauss var fagnað af öðrum keppendum þegar úrslitin
lágu fyrir í gær. NORDICPHOTOS/AFP