Fréttablaðið - 15.12.2014, Qupperneq 4
15. desember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 4
VIÐSKIPTI „Ég tel þessa ákvörðun
óskiljanlega og er satt að segja
orðlaus,“ segir Örn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
smábátaeigenda (LS), um ákvörð-
un Gildis lífeyrissjóðs um að
hækka vexti á sjóðfélagalánum úr
3,1 prósenti í 3,35 prósent á næsta
gjalddaga.
„Nú er Seðlabankinn búinn að
lækka stýrivexti í tvígang og
bankarnir hafa fylgt á eftir og því
er þessi ákvörðun illskiljanleg,“
segir Örn.
Hann segir félagsmenn LS
ósátta við ákvörðun stjórnenda
lífeyrissjóðsins og að einn þeirra
hafi krafist þess að ákvörðunin
yrði „tafarlaust dregin til baka og
sjóðfélagar sem hlut ættu að máli
beðnir afsökunar á áreitinu“.
„Í prósentuhækkun er þetta átta
prósent. Það eru fulltrúar frá laun-
þegum og Samtökum atvinnulífs-
ins í stjórn sjóðsins og þessir aðil-
ar standa að þessari hækkun stuttu
eftir að þing ASÍ kvartaði yfir of
háum vöxtum í þjóðfélaginu.“
Harpa Ólafsdóttir, stjórnar-
formaður Gildis, gefur lítið fyrir
gagnrýni Arnar.
„Vextirnir eru með því allra
lægsta sem gerist á markaðin-
um en við þurfum náttúrulega að
huga að því að það sé verið að gæta
hámarksávöxtunar sjóðfélaga.
Þetta eru hins vegar breytilegir
vextir og þessi ákvörðun var tekin
áður en stýrivextir voru lækkaðir
en framkvæmd hennar tók lengri
tíma en við höfðum áætlað.“
- hg
Framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda segir félagsmenn ósátta við ákvörðun Gildis:
Orðlaus yfir vaxtahækkun Gildis lífeyrissjóðs
ÓSÁTTUR Örn Pálsson, framkvæmda-
stjóri LS, gerir ráð fyrir að vaxtahækk-
un Gildis verði rædd á næsta stjórnar-
fundi sambandsins síðar í vikunni.
JAPAN Frjálslyndi demókrata-
flokkur Shinzo Abe, forsætisráð-
herra Japans, hélt meirihluta í
fulltrúadeild þingsins en kosning-
ar fóru fram í gær. Flokkurinn
hlaut tvo þriðju þingsæta.
Kosningarnar voru taldar próf-
steinn efnahagsstefnu forsætis-
ráðherrans. Síðan Abe tók við
hefur hann reynt að koma hag-
kerfi landsins á skrið með því að
auka fjármagn í umferð og auka
ríkisútgjöld.
Þessu hafa fylgt skattahækk-
anir og á áætlun eru meiri hækk-
anir sem voru eitt stærsta kosn-
ingamálið. - jóe
Skattahækkanir yfirvofandi:
Ríkisstjórnin
hélt meirihluta
SIGURVEGARI Abe hefur verið for-
sætisráðherra síðan 2012. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
í tankinum og í slöngunni og ég hef
orðið að þíða það með blásara. Þetta
eru tóm vandræði. Ég er búinn að
vera svolítið heitur út í þá í þessum
kulda. Maður er svolítið undrandi
á að þetta skuli geta gerst á Íslandi
þar sem eru náttúruauðlindir úti
um allt.“
Hann kveðst hafa fengið vil-
yrði hjá Orkuveitunni til að ná í
vatn úr lind í Akrafjalli næstkom-
andi vor. „Það verður ekki hægt að
fara að vinna í því fyrr en það fer
að birta og veðrið lagast. Ég hef
líka farið fram á að sveitarfélagið
útvegi stóran tank á meðan á þess-
um vandræðum stendur en því var
hafnað. Slökkviliðið hefur boðist til
að koma með vatn ef ég hefði stór-
an tank.“
Skúli Þórðarson, sveitarstjóri í
Hvalfjarðarsveit, segir Herdísar-
holt vera hefðbundið lögbýli í sveit.
„Sveitarfélagið hefur enga aðkomu
að því að leggja vatnslagnir á heim-
ili í dreifbýli. Við værum að skapa
slíkt fordæmi að það væri óvinn-
andi vegur fyrir okkur. Því miður
er staðan þannig að það er erfitt
með vatnsmál víðar í sveitinni en
hjá þessum en þetta er ekki mál-
efni sveitarfélagsins og getur ekki
verið það.“
Guðjón Bragason, sviðsstjóri
lögfræði- og velferðarsviðs Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga,
segir að sveitarfélögum sé ekki
skylt að starfrækja vatnsveitu í
dreifbýli samkvæmt lögum um
vatnsveitu sveitarfélaga nr. 32 frá
2004. „Í dreifbýli er sveitarstjórn
hins vegar heimilt að reka vatns-
veitu og leggja í framkvæmdir við
gerð hennar enda sýni rannsóknir
og kostnaðaráætlanir að hagkvæmt
sé að leggja veituna og reka hana.“
Gunnar bendir á að í Hval-
fjarðar sveit sé vatnsveita sem þjóni
Grundartanga og Hagamelshverfi.
Eðlilegt sé að hún sé útfærð svo að
hún geti þjónað fleirum.
ibs@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
SVEITARSTJÓRNARMÁL Gunnar Tyrf-
ingsson í Herdísarholti í Hvalfjarð-
arsveit er heitur af reiði í kuldan-
um þessa dagana. Undanfarna níu
mánuði hefur hann þurft að ferðast
með eitt þúsund lítra tank á kerru
til Akraness til þess að ná í vatn,
eina til tvær ferðir á dag en til
Akraness eru 6 km frá Herdísar-
holti.
„Hér var gam-
a lt vat nsból
en vatnið í því
þraut. Ég bor-
aði þá eftir vatni
en í þá holu kom
saltur sjór þann-
ig að ég þurfti að
bora aðra. Vatnið
í þeirri holu er nú
þrotið. Ég sendi
sveitarfélaginu bréf í júní í gegn-
um lögfræðing þar sem ég lýsti
ástandinu og bað um að lögð yrði
vatnsleiðsla eins og eðlilegt er að
þeir geri en þar bera menn fyrir sig
jafnræðisreglunni. Þeir segja að sé
eitthvað gert fyrir einn bæ þurfi að
gera það sama fyrir aðra líka.“
Gunnar, sem rekur sambýli fyrir
fjóra fatlaða einstaklinga ásamt
konu sinni, Unni Ingólfsdóttur,
segir ástandið hafa verið erfitt. „Í
fyrstu sótti ég vatn á bílaþvottaplan
á Akranesi en eftir að tók að frysta
hefur það ekki verið hægt. Félags-
málayfirvöld komu því í kring að
ég gæti sótt vatn til Slökkviliðsins
á Akranesi og þangað hef ég farið
undanfarna daga. Svo hafa vinir
og kunningjar leyft okkur að koma
með tankinn til sín til að fá vatn.
Það er ekki alltaf fært til Akraness
til að sækja vatn þangað,“ greinir
Gunnar frá.
Frostið að undanförnu hefur
gert honum lífið leitt. „Vatnið frýs
Sambýli í Hvalfjarðarsveit
vatnslaust í níu mánuði
Ók með tank á kerru til að sækja vatn á bílaþvottaplan á Akranesi. Eftir að fór að frysta er vatnið sótt til
slökkviliðsins. Sveitarstjórinn segir sveitarfélagið ekki hafa aðkomu að því að leggja vatnslagnir í dreifbýli.
VANDRÆÐI Gunnar þarf að fara tvær
vatnsferðir á dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SKÚLI
ÞÓRÐARSON
VATNSLAUS Gunn-
ar Tyrfingsson og
Unnur Ingólfsdóttir
í Herdísarholti eru
ósátt við að fá ekki
vatnsveitu. Þau aka
með tank til Akra-
ness á hverjum degi
til að sækja vatn.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
15.000 Íslendingar, eða um 20%
þjóðarinnar, fóru vestur um haf
á tímabilinu 1870-1914 og sneru
ekki aftur.
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
LÆGIR AUSTANLANDS í kvöld en undir hádegi á morgun verður komið suðaustan
hvassviðri eða stormur með suðurströndinni og allra vestast vegna skila sem ganga
norðaustur yfir landið. Talsverð úrkoma fylgir skilunum mest í formi snævar.
-7°
7
m/s
-6°
6
m/s
-6°
6
m/s
-3°
12
m/s
Hvasst
eða
stormur
með S- og
V-strönd.
Strekkingur
eða
hvasst á
V-fj örðum
og allra
syðst.
Gildistími korta er um hádegi
7°
22°
4°
6°
12°
4°
10°
6°
6°
21°
9°
16°
15°
15°
9°
5°
6°
6°
-8°
12
m/s
-3°
25
m/s
-6°
16
m/s
-3°
18
m/s
-5°
12
m/s
-4°
12
m/s
-12°
12
m/s
1°
-1°
-4°
-1°
-1°
-3°
-4°
-4°
-6°
-3°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
MIÐVIKUDAGUR
Á MORGUN
AUSTUR-KONGÓ, AP Yfirvöld í Afr-
íkulandinu Austur-Kongó telja
að 129 manns, hið minnsta, hafi
farist þegar farþegaskip fór á
hliðina á Tanganyika-vatni í suð-
austur hluta landsins á föstudag.
Alls hefur 232 farþegum skips-
ins MV Mutambala verið bjargað.
Skipið var í eigu fyrirtækis sem
selur ferðir á milli bæja í héruð-
unum Katanga og Suður-Kívú.
Talið er að sterkir vindar og sú
staðreynd að skipið var yfirhlaðið
hafi valdið slysinu. Enn er leitað
að eftirlifendum og látnum á
svæðinu. - hg
Farþegaskip fór á hliðina:
Mannskætt slys
í Austur-Kongó