Fréttablaðið - 15.12.2014, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 15.12.2014, Blaðsíða 8
15. desember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8 því að framkvæmdum við nýtt vatnsból verði flýtt en HS veit- ur segja það ekki á dagskrá og ekki rúmast í fjárfestingaráætl- un fyrirtækisins. Kostnaðurinn mun hlaupa á hundruðum millj- óna króna. Rætt er um að geisla vatnið í Vogavík í varúðarskyni áður en því er hleypt inn á veitukerfi sveit- arfélagsins. „Við höfum velt upp öllum flöt- um á málinu. Þetta er þá hugsað sem forvörn. Það sem einu sinni hefur gerst getur gerst aftur,“ segir Ásgeir. „Ef svo ólíklega vill til að það komi aftur upp bakteríu- mengun við dæluna þá myndi geislunin í raun og veru vinna á henni.“ Að sögn Ásgeirs er geislun þekkt aðferð sem notuð er annars staðar. „Þetta er ekki flókið ferli og hefur engin áhrif á vatnið en er fyrst og fremst varúðarráðstöfun.“ gar@frettabladid.is UMHVERFISMÁL „Það veit enginn hvers vegna mengunin barst í vatnsbólið,“ segir Ásgeir Eiríks- son, bæjarstjóri Voga, um bakt- eríumengun sem uppgötvaðist í neysluvatni sveitarfélagsins í byrj- un september. Um var að ræða coli-gerlameng- un sem kom fram við reglu- bundna skoðun heilbrigðiseftir- litsins í grunnskólanum í Vogum. Mengunin var rakin til vatnsbóls HS veitna í Vogavík. Í framhald- inu var íbúum ráðlagt að sjóða allt neysluvatn. Nokkrum dögum síðar hvarf mengunin og tilmælunum var þá fljótlega aflétt. „Dagana á undan rigndi hressi- lega og líklegasta skýringin að mati heilbrigðiseftirlitsins er að jörðin hafi ekki haft undan að taka við vatninu og þá hafi húsdýra- áburður eins og hrossatað blandast vatni sem síðan seig niður í grunn- vatnið. En það er ekki nokkur ein- asta leið að finna út úr því,“ segir bæjarstjórinn. Engum varð meint af mengaða vatninu í september. Ásgeir segir að núverandi borhola í vatnsbóli HS veitna í Vogavík hafi verið tekin í notkun árið 2008. Hann viti ekki til þess að viðlíka meng- un hafi komið upp áður. Samkvæmt aðalskipulagi Voga er gert ráð fyrir að nýtt vatnsból verði tekið í notkun eftir árið 2018. Í öryggisskyni verði það í heiðinni ofan Reykjanesbrautar en ekki niðri við sjó eins og núverandi bor- hola sem er í Vogavík á athafna- svæði fiskvinnslufyrirtækisins Stofnfisks. Sveitarfélagið hefur óskað eftir Íhuga að geisla vatnið eftir bakteríumengun Sveitarstjórn Voga vill að HS veitur flýti gerð nýs vatnsbóls eftir að E.coli-bakteríur fundust í núverandi vatnsbóli. HS veitur segja nýtt vatnsból ekki á dagskrá í bili. Rætt er um að geisla vatnið til að hindra að mengun berist að nýju í veitukerfið. Það sem einu sinni hefur gerst getur gerst aftur. Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri Voga. VOGAR Vatnsból Vogabúa er í Vogavík sem er hægra megin við byggðina á mynd- inni. MYND/VOGAR-ODDGEIR KARLSSON ALÞINGI Umræðum um fjárlaga- frumvarpið fyrir árið 2015 lauk í fjárlaganefnd á laugardaginn var og er það því tilbúið til þriðju umræðu sem mun hefjast á morg- un. Athygli vekur að millifærsla upp á 50 milljónir frá lögregluumdæm- inu á Austurlandi til lögregluum- dæmisins á Suðurlandi er enn inni í frumvarpinu þrátt fyrir reglugerð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar um að halda lögreglunni á Horna- firði á Austurlandi. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður VG og nefndarmaður í fjárlaganefnd, telur þessi vinnu- brögð mjög und- arleg. „Maður er gátt- aður á þessum vinnubrögðum. Þarna sést viðspyrna við hugmynd- ir forsætisráðherra um að flytja lögregluna á Hornafirði, nokkrum mínútum áður en hann skilaði lykl- unum að dómsmálaráðuneytinu, á Austurland. Ég mun benda á þetta við þriðju umræðu,“ segir Bjarkey. Ólöf Nordal innanríkisráðherra er á öðru máli og taldi óþarfa að hringla með þetta áður en loka- ákvörðun verður tekin um staðsetn- ingu lögreglunnar á Hornafirði. „Ég er að viða að mér upplýs- ingum og mun líklega taka loka- ákvörðun um staðsetninguna í þessari viku. Á meðan ég hef ekki tekið þá ákvörðun er ekki tímabært að breyta fjárlögum. Það er síðan hægt að millifæra féð hvar svo sem lögregluembættið verður staðsett,“ segir Ólöf Nordal innanríkisráð- herra. - sa Maður er gáttaður á þessum vinnu- brögðum. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður VG. Fjárlaganefnd lauk vinnu sinni á laugardaginn varðandi fjárlagafrumvarpið sem er tilbúið í 3. umræðu: Lögreglan flutt austur en fjármagnið suður ÓLÖF NORDAL LÖGREGLUFRÉTTIR Engin verðmæti í bílum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar eigendur og umráðamenn ökutækja við því að skila verðmæti eftir í bílum. Nokkuð hefur verið um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu þar sem jafnvel jólagjöfum hefur verið stolið. Annars eru það einkum símar, tölvur og myndavélar sem freista þjófanna. Lögreglan segir að sé óhjákvæmilegt að skilja eftir verðmæti í bíl sé mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn. ORKUFRÉTTIR Heitavatnslaust á Akranesi Starfsmenn Orkuveitunnar luku í gær við viðgerð á tveimur bilunum, sem urðu í aðveitu Deildartungu- æðar á laugardagskvöld og aðfaranótt sunnudags. Þannig fór heitt vatn að streyma til Akraness á ný en vart var við lægri þrýsting á svæðinu í gær. Starfsfólk Orkuveitunnar baðst afsök- unar á óþægindunum sem þetta olli. Nýr heitavatnsgeymir á Akranesi verður tekinn í notkun á næstu vikum. HEILBRIGÐISMÁL Heilsugæsla höf- uðborgarsvæðis hefur ekki enn tekið í notkun heilbrigðisgáttina VERU eins og stefnt var að í lok nóvembermánaðar. Heilsugæslustöðin í Glæsibæ er enn eina stöðin sem notar gátt- ina sem veitir einstaklingum sem þar fá þjónustu rafrænan aðgang að margvíslegum upplýsingum um eigið heilsufar. Stefnt er að því að innleiða þjónustuna í öllum heilbrigðisumdæmum landsins snemma á næsta ári. - kbg Seinagangur í borginni: Heilbrigðisgátt ekki í gagnið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.