Fréttablaðið - 15.12.2014, Page 20

Fréttablaðið - 15.12.2014, Page 20
15. desember 2014 MÁNUDAGUR| SKOÐUN | 20 Árið er 1966, hjarn yfir öllu og stjörnubjart. Afi og amma sitja hugfang- in við útvarpstækið og hlusta á ítalska óperu- söng va ra n n C a r uso syngja. Amma þurrkar tár af hvarmi og þó ég sé bara fimm ára gæti ég þess vel að trufla þau ekki. Stundin er mögnuð. Mínar fyrstu minning- ar hverfast flestar um útvarp enda ætlaði ég að verða Ingibjörg Þorbergs þegar ég yrði stór. Ingibjörg sá um barnatímann og var mín helsta fyrirmynd utan fjölskyldunnar. Amma og afi höfðu ekki tæki- færi til langrar skólagöngu en fáum hef ég kynnst sem hafa verið betur menntaðir. Þeirra háskóli var Rás 1 og síðar Sjón- varpið. Nutu menningar, lærðu um nýjustu undur í heimi vís- inda og afi æpti og sló sér á lær í hita leiksins yfir fótboltalýsing- um. Þau voru stolt framsóknar- fólk og ég veit að þau yrðu sorg- mædd yfir aðgerðum núverandi stjórnvalda. Þau skildu hlutverk almannaútvarps og vissu hve mikilvægt það er þegar kemur að sjálfsmynd þjóðar. Hartnær hálfri öld síðar bý ég í London, vinn sem verktaki fyrir RÚV og fæ fyrir tilstilli Sambíóanna einstakt tækifæri til að taka sjónvarpsviðtöl fyrir Djöflaeyjuna við frægustu kvik- myndaleikara heims. Á gömlu og virðulegu hóteli sit ég innan um sjónvarpsfólk víðsvegar að úr heiminum og eins og gengur berum við saman bækur okkar. Þeim finnst magnað að frá jafn fámennri þjóð og Íslandi komi heimsfrægir lista- menn og spyrja mikið út í menningu landsins. Meðan á spjallinu stend- ur komumst við að því að kollegar mínir eru á allt að nífalt hærri laun- um fyrir þennan dag. Sama hvort þau koma frá Sviss, Írlandi, Ísra- el eða Noregi. Ég er sú eina sem borga ferða- kostnað úr eigin vasa, er ekki með síma á vegum vinnustaðarins né nokkur önnur hlunnindi. Ástæðan fyrir því að ég segi frá þessu er að nú þegar ég er ekki lengur fastráðinn starfs- maður hef ég þörf fyrir að benda á að hjá RÚV starfar vinnulúið fólk fyrir afskaplega lág laun. Í nóvember árið 2008 var öllum gert að skrifa undir plagg þar sem viðkomandi sam- þykkti strípuð laun án greiðslu fyrir yfirvinnu þó vinnuálagið myndi aukast. Ef starfsmenn skrifuðu ekki undir var litið á það sem uppsögn. Næstu ár gerðum við okkar besta til að hlustendur yrðu sem minnst varir við breytingar. Nokkuð er síðan aftur var farið að greiða fyrir yfirvinnu en síðan hefur starfsmönnum fækkað mikið. Ég er full aðdáunar á fyrrum samstarfsmönnum mínum sem reyna af veikum mætti að halda dagskrá RÚV í horfinu, búa til frábæra þætti þó sífellt þurfi að skila meiri vinnu og það sé nán- ast orðið ógerlegt að vanda sig jafn mikið og nauðsynlegt er. Afdrifaríkar afleiðingar Það er ekki hægt að skera meira niður án þess að breytingarnar hafi afdrifaríkar afleiðingar. Eins og komið hefur fram borga Íslendingar nú þegar lægra útvarpsgjald en nágrannaþjóð- ir, auk þess sem RÚV fær aðeins hluta útvarpsgjaldsins. Lista- menn á borð við Mugison og Skálmöld hafa bent á mikilvægi almannaútvarps; að þeir hefðu einfaldlega ekki náð eyrum þjóðarinnar án þess. Í framhaldi af því vil ég benda á menning- arverðmæti í safni útvarpsins sem eru í mikilli hættu núna. Ef ekki væri fyrir RÚV þykir mér ólíklegt að til væru viðtöl við Björk og Sigur Rós að taka sín fyrstu skref. Nærtækasta dæmið er Jóhann Jóhannsson sem nú er tilnefndur til hinna virtu Golden Globe-verðlauna fyrir kvikmyndatónlist. Í safni RÚV má finna fjölmörg viðtöl við hann sem hafa verið tekin gegnum tíðina. Viðtöl frá því áður en hann varð þekktur. Ég efast um að aðrir ljósvakamiðlar búi yfir slíkum fjársjóði. Fjár- sjóði sem er í eigu þjóðarinnar. Kæru þingmenn! Mikið myndi það gleðja mig ef þið, allir sem einn, mynduð skoða hvernig hefur farið fyrir þjóðum sem ekki eiga almannaútvarp, hafa aldrei átt eða glatað því. Ég ætla ekki að nefna þessar þjóðir, þið finnið út úr þessu. Jólaóskin mín er sú að RÚV fái að halda reisn sinni sem almannaútvarp svo allir hafi sama tækifæri til að njóta menntunar þess og menning- ar og við höldum áfram að eiga listamenn sem bera þjóðinni okkar fagurt vitni jafnt heima fyrir sem á erlendri grundu. Eitt eilífðar smáblóm RÚV Sigríður Pétursdóttir kvikmynda- fræðingur Þann 8. desember síðastliðinn gerði ég ásamt 200 íslenskum læknanemum stjórnvöldum grein fyrir því að við munum ekki koma til starfa á heil- brigðisstofnunum landsins fyrr en gengið hefur verið frá kjarasamningum við Lækna- félag Íslands. Um er að ræða nema á 4.-6. námsári sem að öllu jöfnu hefja störf á sumrin sem kandidatar og aðstoðar- læknar og gegna veigamiklu hlutverki innan heilbrigðiskerfisins. Til dæmis má nefna að 40% stöðu- gilda almennra lækna (lesist: Allt nema sérfræðilæknar) á Landspítala Háskólasjúkrahúsi sumarið 2013 voru mönnuð af kandidötum og aðstoðar- læknum. Brotthvarf þessa hóps mun því ekki fara fram hjá neinum ef til þess kemur. Kjarabarátta lækna er nefnilega líka barátta okkar sem erum á leið út á vinnumarkaðinn og launaþró- unin hefur verið verðandi kollegum okkar óhagstæð. Grunnlaun kandi- dats (sá sem hefur lokið 6 ára lækn- isnámi í háskóla) sem hóf störf 2006 voru 256.691 kr. en grunnlaun kandi- dats sem hefur störf 2014 eru 340.734 kr. Í fljótu bragði mætti ætla að þró- unin seinustu átta ár væri jákvæð, að kjör unglækna færu batnandi sem nemur 33%. Þegar betur er að gáð kemur hins vegar í ljós að verðbólga á sama tímabili er 70%. Kaupmáttur nýútskrifaðra lækna hefur því rýrnað verulega seinustu átta ár. Nú gæti efasemdarfólk rámað í að hér varð hrun og spurt sig hvort þetta eigi ekki við um flestar aðrar stéttir. Til að svara því má benda á að launavísitala Hagstofu Íslands hefur hækkað um 73% frá 2006, með öðrum orðum, almennur kaupmáttur er svip- aður nú og fyrir átta árum. Ófyrirséðar afleiðingar Af ofangreindu er ljóst að laun kandidata hafa hækkað mun minna en önnur laun á vinnumarkaði. Sömu sögu er að segja af deildarlækn- um, sérfræðingum og yfir- læknum. Það er því ofsögum sagt að læknar krefjist launa- hækkana umfram aðra. Að halda því fram er í besta falli misskilningur, í versta falli svívirðileg tilraun til að rjúfa samstöðu vinnandi fólks og hindra baráttu þess fyrir betri lífskjörum. Réttara væri að tala um sanngjarna leiðréttingu launa. Fullyrðingar stjórnmálamanna um að kjarabót til lækna muni koma niður á almennum kjarasamningum ætti ekki að draga úr verkalýðshreyfingunni heldur efla forystumenn hennar til að berjast enn harðar fyrir mannsæmandi kjörum launþega í landinu. Hér hefur verið rekið öflugt heil- brigðiskerfi seinustu áratugina. Um það vitnar nýleg skýrsla OECD þar sem fram kemur að Íslendingar eru meðal langlífustu þjóða heims. Þetta langlífi gerir að verkum að fjöldi Íslendinga á eftirlaunaaldri mun nærri tvöfaldast næstu tuttugu árin gangi mannfjöldaspá Hagstofunnar eftir. Þessir einstaklingar munu ekki síður þurfa læknishjálp en þeir eftir- launaþegar sem nú þegar er stærsti neytendahópur heilbrigðisþjónust- unnar. Ef fram fer sem horfir munu sífellt færri læknar sinna sífellt fleiri sjúk- lingum með ófyrirséðum afleiðingum á heilsufar landsmanna. Viðspyrna lækna nú er tilraun til að snúa þessari þróun við. Hún mun vissulega koma niður á sjúklingum til skemmri tíma litið en er háð með langtímahagsmuni þeirra í huga. Fyrir átta árum KJARAMÁL Stefán Þórsson 5. árs læknanemi við Háskóla Íslands. CÉBÉ BIONIC JR Skíðagleraugu. Litir: Bleik, blá. Barnastærðir. INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA / SÍMI 585 7220 / OPIÐ: MÁN. - FIM. 10 - 18. FÖS. 10 - 19. LAU. 11 - 18. SUN. 13 - 17. INTERSPORT AKUREYRI / SÍMI 460 4891 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16. INTERSPORT SELFOSSI / SÍMI 480 4611 / OPIÐ: MÁN. - FÖS. 10 - 18. LAU. 10 - 16. CÉBÉ PLUMA Skíðahjálmur. Litir: Bleikur, svartur. Barnastærðir. 9.990 Ö ll ve rð e ru b ir t m eð fy ri rv ar a um p re nt vi llu r og /e ða m yn da br en gl . * 25 % a fs lá tt ur gi ld ir e f k ey pt e ru s kí ði /b re tt i, bi nd in ga r og s kó r. Ti lb oð in g ild a til 2 4. d es . 2 01 4. 17.990 STIGA STÝRISSLEÐI Stýrissleði með bremsum sem læsast ekki. Litur: Svartur. TECHNOPRO SUSANNE Listskautar. Litur: Hvítir. Stærðir: 31-35 og 38-42. 8.990 3.990 25% AFSLÁTTUR AF SKÍÐA- OG BRETTA- PÖKKUM* MIKIÐ ÚRVAL AF GLERAUGUM OG HJÁLMUM Í INTERSPORT BÍLDSHÖFÐA, AKUREYRI OG SELFOSSI ÞÚ FÆRÐ GÓÐAR JÓLAGJAFIR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.