Fréttablaðið - 15.12.2014, Side 48
15. desember 2014 MÁNUDAGUR| SPORT | 32
Maður fær bara
kjánahroll við það að
tala um þetta.
Dagur Sigurðsson,
Füchse Berlin og þýska landsliðinu.
visir.is
Meira um leiki
helgarinnar
VALUR – HAUKAR
Mfl. karla
Í Vodafonehöllinni
í kvöld kl. 19.30
Komdu að styðja strákana okkar!
Áfram Valur!
Demantar, safír og rúbín
Verð frá 158.000 kr.
SPORT
HANDBOLTI Síðustu mánuðir Dags
Sigurðssonar hafa verið anna-
samir en auk þess að stýra þýska
úrvalsdeildarfélaginu Füchse
Berlin, líkt og hann hefur gert
síðan 2009 með góðum árangri,
var hann þann 12. ágúst sl. ráð-
inn landsliðsþjálfari Þýskalands.
Þar er honum ætlað það verkefni
að koma Þýskalandi úr þeim öldu-
dal sem liðið hefur verið í síðustu
misserin.
Ráðningu Dags var vel tekið
á flestum vígstöðvum en þó var
ákvörðun þýska handboltasam-
bandsins að ráða þjálfara sem
væri enn starfandi í þýsku úrvals-
deildinni gagnrýnd. Það kom Degi
sjálfum ekki á óvart.
„Við buðum upp á umræðuna
með þessari ákvörðun,“ segir
Dagur við Fréttablaðið en hann
lætur af störfum sem þjálfari
Füchse Berlin í lok tímabilsins.
Erlingur Richardsson tekur við
starfinu en gengið var frá ráðn-
ingu hans í síðustu viku.
„En á meðan ég verð með bæði
liðin þá verður þessi umræða allt-
af lifandi. Þetta var þó ákvörðun
sem var tekin í sátt allra aðila –
Füchse Berlin, þýska sambandsins
og í raun deildarinnar líka – og því
hafa hin liðin í deildinni ekki gagn-
rýnt þetta.“
Maður hlýtur að lifa veturinn af
Hann segir að sér hafi gengið
ágætlega að sinna báðum verk-
efnum. „Við í landsliðinu fórum
ágætlega stað í okkar riðli [í
undan keppni EM 2016] en nú er
einbeitingin hjá Füchse Berlin
fram að áramótum. Eftir mótið í
Katar verða svo 3-4 mánuðir eftir
af tímabilinu og maður hlýtur að
lifa það af,“ segir hann í léttum
dúr.
Í júlí bárust þær fregnir að
Þýskaland, sem tapaði fyrir Pól-
landi í umspilskeppninni í júní,
færi þrátt fyrir allt á HM í Katar
eftir að keppnisréttur Eyjaálfu var
afturkallaður. Forráðamenn HSÍ
á Íslandi voru ósáttir enda hafði
Handknattleikssamband Evrópu,
EHF, tilgreint Ísland sem fyrstu
varaþjóð álfunnar. Þrátt fyrir
mikil mótmæli og kæru HSÍ varð
ákvörðun Alþjóðahandknattleiks-
sambandsins, IHF, ekki haggað.
Það var því mikið fagnað hér
á landi þegar IHF ákvað síðla í
nóvember að veita Íslandi sæti
í keppninni eftir að Barein og
Sameinuðu arabísku furstadæm-
in drógu sig úr keppni. Liðin ósk-
uðu reyndar svo eftir því að kom-
ast aftur inn en IHF vísaði því
umsvifalaust frá.
Ekkert svakalegt plott í gangi
„Ég er gríðarlega sáttur við að
Ísland verði með,“ segir Dagur.
„Þetta sýnir kannski að það var
ekkert svakalegt plott í gangi
þegar Þýskaland komst inn – enda
hefur nú komið í ljós að sjónvarps-
rétturinn í Þýskalandi er í upp-
námi,“ segir Dagur en samningar
náðust ekki á milli rétthafa keppn-
innar og þýsku ríkisstöðvanna
ZDF og ARD. Hefur það verið
harkalega gagnrýnt í Þýskalandi.
Ísland fór inn í C-riðil í stað
Barein og Þýskaland í D-riðil í
stað Ástralíu. Eins og gefur að
skilja eru riðlarnir því mun sterk-
ari fyrir vikið en liðin úr þessum
riðlum munu svo mætast í 16-liða
úrslitum keppninnar.
Geðþóttaákvarðanir teknar
„Menn taka geðþóttaákvarðanir
í þessum efnum og þessum liðum
sem komu inn er einfaldlega raðað
í riðla eftir hentisemi. Maður fær
bara kjánahroll við það að tala um
þetta,“ segir Dagur.
Næstu verkefni íslenska lands-
liðsins verða æfingaleikir gegn
Degi og lærisveinum hans í þýska
landsliðinu í Laugardalshöll dag-
ana 4. og 5. janúar. „Það er mjög
spennandi og verður örugglega
léttara yfir heimsókninni fyrst
bæði lið eru að fara til Katar.
Maður kemur þá ekki heim sem
Kem ekki heim sem svikari
Dagur Sigurðsson hefur farið vel af stað í starfi sínu sem þjálfari þýska landsliðsins þrátt fyrir miklar annir
en hann stendur einnig í ströngu sem þjálfari Füchse Berlin. Hann er spenntur fyrir Íslandsför landsliðsins.
EINBEITTUR Dagur Sigurðsson er í tvöföldu þjálfarahlutverki í vetur.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
HANDBOLTI Heiner Brand, fyrrum
landsliðsþjálfari og yfirmaður hjá
þýska handknattleikssambandinu,
segir að Dagur Sigurðsson verði ekki
undanskilinn gagnrýni þegar kemur
að frammistöðu þýska landsliðsins á
HM í Katar í janúar.
Dagur tók við landsliðsþjálfara-
starfinu í sumar eftir að Þýskaland
féll úr leik í undankeppni HM 2015.
Þýskaland komst svo óvænt inn í
keppnina eftir að þátttökuréttur
Ástralíu var afturkallaður.
„Allir þjálfarar verða dæmdir af
árangri sínum og í því tilliti þarf
að skoða árangur liðsins á mótinu
í Katar,“ sagði Brand við þýska fjöl-
miðla en hann gerði Þýskaland að
Evrópumeistara árið 2004 og heims-
meistara þremur árum síðar.
Hann telur að Þýskaland eigi að
stefna hátt þrátt fyrir óvenjulega leið
þess til Katar. „Þýska handknattleiks-
sambandað verður stærðar sinnar
vegna að setja sér háleit markmið,“
segir Brand sem segir að Þýska-
land eigi að stefna á að komast að
minnsta kosti í 8-liða úrslit keppninn-
ar. „Þrátt fyrir misjafnt gengi síðustu
ára getur þýska landsliðið unnið
hvaða andstæðing sem er á góðum
degi.“ - esá
Dagur verður dæmdur af árangrinum
KRAFA UM ÁRANGUR Heiner Brand
vill að Þýskaland nái langt á HM í Katar
í janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen spilaði sinn fyrsta
leik með Bolton í rúm fjórtán ár er hann kom inn á sem
varamaður í markalausu jafntefli gegn Ipswich á Macron-leik-
vanginum í Bolton.
„Mér fannst hann standa sig virkilega vel eftir að hann
kom inn á,“ sagði Neil Lennon, stjóri Bolton, en Eiður
Smári spilaði síðustu 30 mínútur leiksins eftir meiðsli
miðjumannsins Darren Pratley.
„Hann fékk meira að segja áminningu sem sýnir
að hann býr enn yfir hungri til að standa sig vel. Við
hlökkum virkilega mikið til þess að sjá hann og Lee
Chung-Yong spila saman þegar Eiður kemst í betra
form,“ sagði Lennon enn fremur.
Bolton er í átjánda sæti ensku B-deildarinnar með
23 stig að lokinni 21 umferð. Liðið mætir næst Millwall á
föstudagskvöld. - esá
Stjórinn ánægður með Eið Smára
ÚRSLIT
OLÍSDEILD KARLA
AKUREYRI - FRAM 31-24 (13-12)
STJARNAN - ÍBV 21-22 (13-7)
Í KVÖLD
Digranes: HK - FH kl. 19.30
N1-höllin: Afturelding - ÍR kl. 19.30
Vodafone-höllin: Valur - Haukar kl. 19.30
DOMINO’S-DEILD KVENNA
BREIÐABLIK - KR 72-75 (40-31, 60-60)
HAMAR - SNÆFELL 54-96 (34-44)
GRINDAVÍK - KEFLAVÍK 79-70 (44-41)
HAUKAR - VALUR 62-54 (34-20)
STAÐAN
Snæfell 13 12 1 1010-819 24
Keflavík 13 10 3 1102-855 20
Haukar 13 10 3 930-847 20
Valur 13 7 6 976-945 14
Grindavík 13 7 6 937-914 14
KR 13 3 10 789-932 6
Hamar 13 2 11 692-970 4
Breiðablik 13 1 12 807-961 2
KÖRFUBOLTI Tíundu umferð Dom-
ino’s-deildar karla lýkur í kvöld
þegar Stjarnan tekur á móti Njarð-
vík í Ásgarði í beinni útsendingu
á Stöð 2 Sport. Teitur Örlygsson,
aðstoðarþjálfari Njarðvíkur, snýr
aftur í Garðabæinn í fyrsta sinn
eftir að hann lét af störfum sem
þjálfari Stjörnunnar í sumar.
„Ég hlakka fyrst og fremst til að
hitta gott fólk,“ segir Teitur sem
hefur beðið lengi eftir þessum leik.
„Ég leitaði eftir þessum leik í dag-
skrá vetrarins og svo skemmir
ekki fyrir að þetta er sjónvarps-
leikur líka. Það gerir þetta allt
saman stærra,“ segir hann.
Teitur átti stóran þátt í þeim
mikla uppgangi sem verið hefur
í Stjörnunni síðustu árin. Stjarn-
an varð bikarmeistari í tvígang
undir stjórn Teits og komst tvíveg-
is í lokaúrslitin í úrslitakeppninni.
Liðið hafði aldrei leikið til úrslita
í bikarnum né komist í úrslita-
keppnina áður en Teitur tók við í
desember árið 2008, er liðið var í
fallsæti úrvalsdeildar karla.
Liðin eru bæði með tíu stig í
þéttum pakka um miðja deild og
því mikilvæg stig í boði í kvöld.
Stjörnumenn töpuðu fyrir toppliði
KR í síðustu umferð en hafa verið
á fínum skriði að undanförnu.
Njarðvíkingar eru hins vegar að
sleikja sárin eftir að hafa fallið
óvænt úr leik gegn Skallagrími í
16-liða úrslitum bikarkeppninnar.
„Þetta er heljarinnar pakki.
Það eru nú tveir leikir eftir þar til
að vetrarfríið hefst og getum við
allt eftir gengi okkar komist upp í
þriðja sætið eða fallið niður í það
níunda,“ segir Teitur en Njarðvík-
ingar leita sér nú að nýjum Banda-
ríkjamanni eftir að samningi
Dustins Salisbery var sagt upp.
Salisbery spilar þó með Njarðvík
fram að vetrarfríi.
„Það er óskandi að hann stígi
upp og láti okkur þjálfarana líta
illa út. Mér heyrist að hann vilji
gera það sjálfur,“ segir Teitur og
bætir við að samskiptin við Salis-
bery hafi verið góð. „Það voru
engin leiðindi í kringum þetta
enda algjör toppdrengur.“ - esá
Hlakka til að hitta gott fólk
Teitur Örlygsson, aðstoðarþjálfari Njarðvíkur, snýr aft ur í Garðabæinn í kvöld.
ÞJÁLFARARNIR Teitur er aðstoðar-
þjálfari Friðriks Inga Rúnarssonar hjá
Njarðvík. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI