Fréttablaðið - 15.12.2014, Síða 50

Fréttablaðið - 15.12.2014, Síða 50
15. desember 2014 MÁNUDAGUR| SPORT | 34 David er frábær markvörður, hann er góður að verja skot auk þess sem hann kemur boltanum vel frá sér. Brendan Rodgers, stjóri Liverpool. visir.is Meira um leiki gærkvöldsins www.postur.is PAKKINN ÞINN Komdu jólapökkunum til okkar og við komum þeim í réttar hendur hratt og örugglega. er í traustum höndum H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 1 4 – 2 4 9 8 ÚRSLIT ENSKA ÚRVALSDEILDIN CHELSEA - HULL 2-0 1-0 Eden Hazard (7.), 2-0 Diego Costa (68.). BURNLEY - SOUTHAMPTON 1-0 1-0 Ashley Barnes (73.). CRYSTAL PALACE - STOKE 1-1 1-0 James McArthur (11.), 1-1 Peter Crouch (13.). LEICESTER - MANCHESTER CITY 0-1 0-1 Frank Lampard (40.). SUNDERLAND - WEST HAM 1-1 1-0 J. Gomez, víti (22.), 1-1 Stewart Downing (29.). WEST BROM - ASTON VILLA 1-0 1-0 Craig Gardner (72.). ARSENAL - NEWCASTLE 4-1 1-0 Olivier Giroud (15.), 2-0 Santi Cazorla (54.), 3-0 Olivier Giroud (58.), 3-1 Ayoza Pérez Gutiérrez (63.), 4-1 Santi Cazorla, víti (89.). MANCHESTER UNITED - LIVERPOOL 3-0 1-0 Wayne Rooney (12.), 2-0 Juan Mata (40.), 3-0 Robin van Persie (71.). SWANSEA - TOTTENHAM 1-2 0-1 Harry Kane (4.), 1-1 Wilfried Bony (48.), 1-2 Christian Eriksen (89.). STAÐAN Chelsea 16 12 3 1 36-13 39 Man. City 16 11 3 2 33-14 36 Man. United 16 9 4 3 29-17 31 West Ham 16 8 4 4 27-19 28 Southampton 16 8 2 6 25-13 26 Arsenal 16 7 5 4 28-19 26 Tottenham 16 7 3 6 20-22 24 Newcastle 16 6 5 5 18-22 23 Swansea 16 6 4 6 21-19 22 Liverpool 16 6 3 7 19-22 21 Stoke City 16 5 4 7 18-21 19 Aston Villa 16 5 4 7 10-20 19 Everton 15 4 6 5 24-23 18 West Brom 16 4 5 7 15-20 17 Sunderland 16 2 10 4 14-24 16 Crystal Palace 16 3 6 7 19-24 15 Burnley 16 3 6 7 11-24 15 QPR 15 4 2 9 16-27 14 Hull 16 2 7 7 15-23 13 Leicester 16 2 4 10 15-27 10 Í KVÖLD 20.00 Everton - QPR Sport 2 HD FÓTBOLTI Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea máttu sætta sig við 2-1 tap fyrir Tottenham, gamla félaginu hans Gylfa, í leik liðanna á Liberty-leikvanginum í Wales í gær. Daninn Christian Eriksen skoraði sigurmarkið undir lok leiksins. Swansea var þó síst lak- ari aðilinn í leiknum. „Við gáfum þeim ódýrt mark í upphafi leiksins en byrjuðum að skapa okkur færi eftir það. Þetta leit svo út fyrir að vera einstefna eftir að við jöfnuðum en svo feng- um við blauta tusku í andlitið. Það áttum við ekki skilið,“ sagði Garry Monk, stjóri Swansea, en sóknar- maðurinn Wilfried Bony komst nokkrum sinnum nálægt því að skora í leiknum. Tottenham komst upp úr tíunda sætinu í það sjöunda með sigrin- um og er nú aðeins fjórum stigum frá West Ham, sem er í fjórða sæti með 28 stig eftir 1-1 jafntefli gegn Sunderland á útivelli. Efstu þrjú liðin unnu öll sína leiki í deildinni. Chelsea, Man- chester City og Manchester Uni- ted hafa verið á góðum skriði og virðast með sama áframhaldi lík- leg til að stinga af. „Við erum ekki að hugsa um titilinn,“ sagði Louis van Gaal, stjóri United, eftir 3-0 sigur á Liverpool í gær. „Ég er ánægður með sigurinn en það er þó enn heilmargt sem við getum bætt í okkar leik. Nú hugsum við bara um næsta leik.“ Frank Lampard var hetja Man- chester City gegn Leicester og tryggði sínu liði 1-0 sigur. Mark- ið var hans 175 í ensku úrvals- deildinni og jafnaði hann þar með árangur Thierry Henry. Aðeins Alan Shearer (260 mörk), Andy Cole (187) og Wayne Rooney (179) hafa skorað fleiri. Arsenal hefur nú unnið þrjá af síðustu fjórum deildarleikjum en liðið hafði betur í mikilvægum leik gegn Newcastle, 4-1. Það hefur á ýmsu gengið hjá Arsene Wenger, stjóra Arsenal, og gagnrýnin á hann oft mikil. En í gær sungu stuðningsmenn félagsins nafn hans ítrekað. „Okkar hlutverk er að vinna fótboltaleiki og ég skil vel að fólk sé óánægt þegar okkur tekst það ekki. 99,9 prósent stuðningsmann- anna sýna manni virðingu þó þeir séu óánægðir en ég get tekist á við hitt 0,1 prósentið.“ - esá Mjakast upp töfl una Tottenham hafði betur gegn Gylfa Þór og félögum. DANSKT SIGURMARK Christian Eriksen skoraði sigurmark Tottenham seint í leikn- um gegn Swansea í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FÓTBOLTI Þrjú-núll gefur ekki alveg rétta mynd af gangi leiks Manchester United og Liverpool á Old Trafford í gær. Gestirnir byrj- uðu leikinn af krafti og sköpuðu sér í heildina fleiri færi en heima- menn. En David de Gea, mark- vörður United, reyndist Liverpool- mönnum óþægur ljár í þúfu í gær. Þessi 24 ára gamli Spánverji varði alls átta skot í leiknum, mörg hver úr upplögðum færum og átti að öðrum ólöstuðum stærstan þátt í sigri United, sem var sá sjötti í röð í deildinni. Raheem Sterling komst til að mynda þrisvar einn gegn de Gea í leiknum, en alltaf varði Spánverjinn. Hann varði einnig í þrígang frá Mario Balot- elli í seinni hálfleik. Lofaður í hástert af Rodgers Leikmenn United voru öllu beitt- ari fyrir framan markið en erki- fjendur þeirra. Wayne Rooney, Juan Mata og Robin van Persie skoruðu mörk United, en sá síð- astnefndi hrósaði de Gea í hástert eftir leikinn: „David var magnaður. Hann var stórkostlegur – það er ekki oft sem lið vinnur 3-0 og markvörður þess er maður leiksins,“ sagði hollenski framherjinn. Brendan Rodgers, knattspyrnu- stjóri Liverpool, jós De Gea einn- ig lofi: „Við sköpuðum svo mörg færi, en David de Gea var maður leiksins. Hann hefur átt 4-5 svona leiki á tímabilinu. David er frá- bær markvörður, hann er góður að verja skot, auk þess sem hann kemur boltanum vel frá sér.“ Eins og Rodgers sagði var þetta ekki fyrsti stórleikur de Gea á tímabilinu. Spánverjinn, sem kom frá Atletico Madrid sumarið 2011, hefur stundum verið gagnrýndur fyrir að „vinna“ ekki nógu marga leiki fyrir sitt lið, en hann hefur svarað þeim gagnrýnisröddum með glæsibrag í vetur. De Gea hefur haldið United á floti á löngum köflum og hefur tryggt sínu liði ófá stigin. Skemmst er að minnast frammistöðu hans gegn Everton, Arsenal, Stoke og nú síðast Liverpool, en í öllum þessum leikjum varði Spánverjinn frábær- lega á mikilvægum augnablikum. Aldrei með sömu varnarlínuna Frammistaða de Gea á tímabilinu er aðdáunarverð, sérstaklega í ljósi þess að hann stendur fyrir aftan nýja varnarlínu í hverjum leik. Meiðsladraugurinn hefur ásótt United í vetur, og þá sérstak- lega varnarmenn liðsins. Til marks um óstöðugleik- ann hefur Louis van Gaal, knatt- spyrnustjóri United, notað 20 mismunandi samsetningar af mið- vörðum í vetur. Það er af sem áður var þegar Rio Ferdinand og Nem- anja Vidic stóðu jafnan vaktina í miðri vörn United fyrir framan Edwin van der Saar. De Gea á talsvert í land með að komast á sama stall og United-goð- sagnir á borð við Peter Schmeichel og van der Saar, en hann er allt- af að verða betri og það eru fáir markverðir sem standa honum framar í dag. De Gea er auk þess aðeins 24 ára og ætti því að eiga mörg góð ár framundan. ingvithor@365.is Spánverjinn lokaði búrinu David de Gea átti frábæran leik í marki Manchester United þegar liðið vann Liverpool 3-0 í ensku úrvals- deildinni í gær. Spánverjinn hefur þaggað niður í gagnrýnisröddum með frammistöðu sinni á tímabilinu. SÁTTUR David de Gea mátti vera ánægður með frammistöðu sína gegn Liverpool á Old Trafford í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.