Fréttablaðið - 15.12.2014, Síða 54
15. desember 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 38
„Þetta voru áhrifavaldar hjá
okkur, það er ekki spurning,“ segir
Ingó Geirdal, söngvari Dimmu, en
sveitin mun troða upp ásamt Bubba
Morthens í Hörpunni í mars og
flytja plöturnar Geislavirkir með
Utangarðsmönnum og Lily Marl-
ene með Das Kapital, gömlum
pönksveitum Bubba.
„Ég og Silli Geirdal, bróðir minn
og bassaleikari Dimmu, vorum
fremst á einum fyrstu tónleik-
um Egós á Lækjartorgi árið 1982
sem teknir voru upp fyrir Rokk í
Reykjavík. Ég náði aldrei að sjá
Utangarðsmenn á tónleikum en
ég sá Egó oft og Das Kapital líka.
Ég myndi segja að þetta hafi verið
fyrstu rokkhljómsveitir Íslands
sem manni fannst hættulegar,
menn voru reiðir og með meining-
ar. Textarnir voru sterkir og það
var kraftur í þeim,“ segir Ingó.
„Það var mikið talað um að fólk
vissi ekki við hverju maður mætti
búast á Utangarðsmanna-tónleik-
um, þeir jafnvel slógust á sviði.“
Þarna fær Bubbi líka einstakt
tækifæri til að syngja lög sem hann
hefur ekki sungið síðan á níunda
áratugnum en að sögn Ingós verð-
ur Dimmu-keimur yfir lögunum.
„Það var hugmynd Bubba að gera
það þannig,“ segir hann. - þij
Dimma og Bubbi spila pönk saman
Munu fl ytja plötur Utangarðsmanna og Das Kapital í Hörpunni á komandi ári.
BUBBI OG DIMMA Gamla pönktónlist
Bubba var mikill áhrifavaldur fyrir
sveitina. MYND/SPESSI
Ég myndi segja að
þetta hafi verið fyrstu
rokkhljómsveitir Íslands
sem manni fannst hættu-
legar, menn voru reiðir
og með meiningar.
„Mér var sagt að það væri mikið
mál að fá mynd birta þarna, svo
ég bara prófaði að senda hana inn.
Myndin var svo birt, sem er alveg
frekar merkilegt þar sem þetta er
Vogue,“ segir Viðar Logi Kristins-
son, 19 ára nemi í Menntaskólanum
á Akureyri og áhugaljósmyndari.
„Áhuginn kviknaði þegar ég
fékk mér Photoshop í tölvuna
sem ég fékk við fermingu og fór
að fikta við að breyta myndum,
en gat alveg gleymt mér við það
tímunum saman. Svo safnaði ég
mér fyrir minni fyrstu myndavél,
Canon 500D, og þá varð ekki aftur
snúið,“ segir Viðar.
Það var svo þegar hann komst á
skrá hjá Eskimo models sem áhug-
inn á tískuljósmyndum kviknaði.
„Þá sá ég hvernig vinnan var fyrir
aftan myndavélina og ég varð gjör-
samlega heillaður,“ segir hann.
Viðar er uppalinn á Dalvík og
starfaði í fiskvinnslu í nokkur
sumur þegar hann var yngri. „Ég
er mjög þakklátur fyrir þessa
vinnu í dag. Þarna gat maður stað-
ið í færibandavinnu, hlustað á tón-
list og látið hugann reika og ég vil
meina að ég hafi fengið margar af
mínum bestu hugmyndum í fisk-
vinnslunni,“ segir hann og hlær.
Viðar lýsir stílnum sínum sem
smá goth-ískum, en þó litríkum.
„Mér leiðist hefðbundin ljósmynd-
un þar sem mér finnst hún ekki
sýna nóg. Það er skemmtilegast
að mynda fólk og fanga persónu-
leika þess og tilfinningar á mynd.
Ég reyni að sækja ekki innblást-
ur í verk annarra, heldur í tónlist,
liti og náttúruna,“ segir Viðar og
bætir við að fallega umhverfið sem
hann ólst upp í hafi haft hvað mest
áhrif á hann. „Það er ómetanlegt
að hafa fengið að alast upp þarna í
skapandi frelsi, öryggi og fallegu
umhverfi.“
Eftir menntaskóla hyggst Viðar
fara út og læra ljósmyndun. „Mig
Nítján ára með ljós-
mynd í ítalska Vogue
Viðar Logi Kristinsson, nítján ára áhugaljósmyndari frá Dalvík, fékk mynd eft ir
sig birta á síðu tískutímaritinu Vogue á Ítalíu. Þakklátur að hafa unnið í fi ski.
„O, Come All Ye Faithful með King’s
College Choir.“
Atli Bollason fjöllistamaður
JÓLAPLATAN
HÆFILEIKARÍKUR
Viðar Logi á svo
sannar lega framtíðina
fyrir sér.
MYND/VIÐAR LOGI KRISTINSSON
ANNAÐ SJÓNARHORN Skemmtilegt og
öðruvísi sjónarhorn í þessari mynd.
MYND/VIÐAR LOGI KRISTINSSON
Áhuginn
kviknaði
þegar ég fékk
mér Photo-
shop í tölvuna
sem ég fékk
við fermingu
og fór að fikta við að
breyta myndum.
„Ég hef verið að gera þetta síðustu ár í lokaðri
grúppu með félaga mínum. Hann var svo upptekinn
núna þannig ég fór bara sjálfur eitthvað að dandal-
ast með þetta,“ segir Kári Martinsson Regal, sem í
desember teiknar eina mynd á dag í formi jóladaga-
tals.
Á myndum Kára eru dagsetningar hvers dags sett-
ar í jólabúning og tölustafirnir meðal annars færðir
í búning kerta, jólastafa, kaffikönnu og seglskútu.
Kári starfar sem grafískur hönnuður hjá PORTi
hönnun og segir dagatalið kjörna leið til þess að
kalla fram bros og halda sér í æfingu.
Myndirnar teiknar Kári yfir sjónvarpinu með
börnunum sínum þremur. „Ég ákvað þegar ég byrj-
aði að teikna allar myndirnar á eitt A3-blað. Ég er
farinn að hafa smá áhyggjur af plássleysi en það
þýðir líka að ég má ekki gera mörg mistök.“ Daga-
talið verður vafalaust tilkomumikið í lok aðventunn-
ar en þetta er í fyrsta skipti sem Kári teiknar allar
myndirnar á eitt blað.
Hann segir börnin hafa gaman af uppátæki föður
síns. „Börnin hafa mjög gaman af þessu og bekkjar-
systkini dóttur minnar líka. Maður finnur alveg
að það er komin smá svona pressa á mann þannig
maður reynir að vera búinn að setja þetta inn fyrir
svona níu, tíu á morgnana,“ segir Kári, sem birtir
myndirnar á Instagram-síðu sinni. - gló
Ein mynd á dag fram að jólum
Kári Martinson Regal teiknar fyrir framan sjónvarpið með börnunum.
DAGATALIÐ Freyja, Kári, Arngrímur og Snæbjörn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
langar að einbeita mér að tísku-
ljósmyndun. Ég hef gert nokkra
tískuþætti fyrir stór tímarit hér
heima, ásamt einu stærra verkefni
úti sem ég get því miður ekki sagt
meira um. En þetta er það sem ég
vil gera,“ segir hann.
adda@frettabladid.is
Laugavegi 176 Glerártorgi lindesign.is
Birki rúmföt
Verð 9.990 kr
Jólatilboð
Áður 13.490 kr
Opið mánudag til föstudaga frá kl. 9:00 - 18:00
Lau. frá kl. 11:00 - 17:00 og sun. frá kl. 13:00 - 17:00
Vesturlandsvegur
H
öf
ða
b
ak
ki
Komið og gerið frábær jólainnkaup!
Höfðabakki 9
500,- 1.500,- 2.000,- 4.900,-
Margir litir og stærðir
500,-
Margir litir og stærðir
Margir litir og stærðir Margir litir og stærðir Margir litir og stærðir
2.000,-1.500,-1.000,-
Herra, dömu, stutterma
og síðermaMargir litir og stærðir Margir litir og stærðir