Fréttablaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 6
17. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Hver er höfundur spennusagnanna sem Sigurjón Sighvatsson hefur tryggt sér rétt á? 2. Hvað gerir Hagstofan ráð fyrir að Ís- lendingar verði margir eftir hálfa öld? 3. Hvað voru margir einstaklingar ætt- leiddir á Íslandi í fyrra? SVÖR: 1. Jón Óttar Ólafsson. 2. 446 þúsund. 3. 52 . UMFERÐ Þeim sem aka á mikið slitnum eða mjög mikið slitnum dekkjum hefur fjölgað um 15 pró- sent milli ára, eða úr 19 prósent- um í 22 prósent. Þetta sýna niður- stöður könnunar Brautarinnar – bindindisfélags ökumanna. Skoðaður var dekkjabúnaður 600 bíla í lok nóvember í Reykjavík. Flestir voru á vetrardekkjum án nagla eða 65 prósent. 26 pró- sent voru á nöglum en 7 prósent voru enn á sumardekkjum. Þeim sem aka á nöglum fækkar á milli ára um 19 prósent. - ibs Könnun Brautarinnar: Fleiri á slitnum hjólbörðum VIÐSKIPTI Marel hefur samið við færeyska laxaframleiðandann Bakkafrost um afhendingu á bún- aði í nýja laxavinnslu fyrirtækis- ins í Glyvrar í Færeyjum. Búnaðurinn verður í frum- vinnsluhluta húss Bakkafrosts. Hann sér um að flokka eftir vigt og dreifa heilum fiski sjálfvirkt í hin ýmsu ferli innan vinnslunnar auk þess að flokka og pakka heil- um laxi í fasta þyngd í kassa með hámarkssjálfvirkni. „Bakkafrost og Marel hafa um árabil átt afar gott samstarf og við erum ánægð með að hafa Marel með í þessu verkefni,“ segir Regin Jacobsen, forstjóri Bakkafrosts, í tilkynningu. - jhh Bakkafrost kaupir af Marel: Flokkunartæki selt til Færeyja SAMIÐ UM SÖLU Tækið sér um að flokka eftir vigt og dreifa heilum fiski. LÖGREGLUMÁL „Þeir koma bara og banka á hurðirnar klukkan sjö, hálf átta í morgun. Kona sem var að þrífa hleypti þeim inn og þá skiptu þeir um lása og eru bara búnir að yfir- taka húsið,“ segir José Garcia, eig- andi veitingastaðarins Caruso. José hefur verið í deilum við eig- anda húsnæðisins, en veitingastaður- inn stendur á horni Bankastrætis og Þingholtsstrætis og þar hefur José rekið Caruso síðustu fimmtán árin. Leigusamningur José rann út núna á mánudaginn 15. desember. Áður hafði viðræður um áframhald- andi leigu rekið í strand, en José vildi nýta sér forleiguréttarákvæði samningsins. Það hafði ekki geng- ið og rekur eigandi hússins nú út- burðar mál fyrir dómi og er fyrir- taka í því máli fyrirhuguð í dag. José og lögmaður hans segja að sáttavið- ræður standi yfir og hafi þeir til að mynda boðið fram þá málamiðlun að skila húsinu í lok febrúar og falla þá frá forleigurétti. Í gærmorgun mættu hins vegar fjórir menn á vegum eigendanna og tóku staðinn yfir. Þeir skiptu um lása þannig að José og annað starfsfólk staðarins komst ekki inn. Þá reistu þeir vegg í baksundi hússins þar sem starfsmannainngangur að staðn- um er til að varna þeim inngöngu. Caruso var lokaður í allan gærdag. „Þetta er skelfilegt. Það er allt inni í húsinu. Uppgjörið frá því á mánu- dag, tölvur, allt hráefni, persónu- legar eigur starfsmanna, bara allt. Ég veit ekkert hvað ég á að gera,“ segir José og bætir því við að borða- pantanabókin sé einnig föst inni á staðnum. „Við erum með rosalega mikið bókað fram að jólum og ég get ekki einu sinni hringt í fólk og látið það vita af ástandinu,“ segir José niður dreginn, hann hafi viljað fá frest til að geta sagt starfsfólki sínu upp og veita því sinn uppsagnarfrest. Steinbergur Finnbogason, lög- maður húseigendanna, Jóns Ragnars sonar, fyrrverandi rekstrar- aðila Hótels Valhallar og Hótels Arkar, og sonar hans, Valdimars Jónssonar, segir þá í fullum rétti. „Leigusamningi um þennan veit- ingastað lauk 15. desember. Hús- eigandi mætti á staðinn, hitti þarna starfsfólk og tók við húsnæðinu.“ Steinbergur segir að José og lög- maður hans hafi í gær fengið tölvu- póst þar sem óskað var eftir því að José gerði grein fyrir því hverjar „meintar eignir“ hans væru í hús- næðinu og þær yrðu síðan afhentar honum. Dómsmálið um útburð José var rekið fyrir hönd eigendanna af öðrum lögmanni en Steinbergi, sá sagði sig frá málinu í gær eftir að atvikið kom upp. Steinbergur mun því reka málið fyrir þá feðga héðan í frá. Ómar Örn Bjarnþórsson, lögmað- ur José, hefur lagt fram kæru fyrir hans hönd á hendur eigendunum. „Umbjóðandi minn hefur alla tíð staðið við sínar skuldbindingar sam- kvæmt leigusamningi. Leigusali hefur þrátt fyrir það ítrekað reynt að bola honum út og höfðaði dómsmál til að freista þess að fá það í gegn en tapaði því bæði fyrir héraðsdómi og Hæstarétti. Hann höfðaði svo annað mál sem nú er til meðferðar fyrir dómi. Svo fékk ég fregnir af því í morgun að leigusali hefði mætt með her manna, ruðst inn í húsið og sitji þar um eignir José og starfsfólks staðarins án nokkurrar heimildar. Það var því ekki um annað að ræða en að kæra þetta til lögreglu.“ fanney@frettabladid.is Veitingamaðurinn á Caruso læstur úti af húseigandanum José Garcia, veitingamaður á Caruso, læstur úti af staðnum af húseigandanum vegna deilna um leigusamning. Mikið af eignum inni á staðnum og veggur reistur til að varna starfsfólki inngöngu. Kærði atvikið til lögreglu. VARNAR- VEGGUR Hús- eigandinn reisti vegg í starfs- mannaporti til að varna þeim inngöngu í húsið. FRÉTTABLAÐI/GVA „Jafnvel þótt leigusamningur renni sitt skeið á enda eða leigusamningi sé rift af hálfu leigusala heldur leigjandi almennt umráðum hins leigða þar til hann skilar eigninni af sér eða leigusala eru fengin umráð eignarinnar með atbeina sýslumanns,“ segir Auður Björg Jónsdóttir, lögmaður og kennari í leigurétti við Háskóla Íslands. Auður segir leigusala ekki geta tekið lögin í sínar hendur og borið leigjanda sjálfur út heldur verði hann að fara þær leiðir sem löggjöf okkar býður upp á, það er að höfða útburðarmál eða viðurkenningarmál fyrir héraðsdómi og krefjast útburðar hjá sýslumanni í framhaldinu. „Fari leigusali óboðinn inn í hið leigða húsnæði á meðan það er í umráðum leigjanda getur hann talist hafa gerst sekur um refsivert athæfi, til dæmis húsbrot. Þetta er svipað og ef ég myndi fara heim til þín og læsa þig úti,“ segir Auður. Refsisvert að fara óboðinn í leiguhúsnæði TJÓN Vatn lak inn í tónlistar- og ráð- stefnuhúsið Hörpu í fyrrinótt. Við- vörunarkerfi hússins gaf lekann til kynna um miðja nótt og er slökkvi- liðsmenn mættu á staðinn kom í ljós að talsverður leki var á fjórðu hæð í salnum Silfurbergi. „Þetta fór öllu betur en á horfðist í fyrstu,“ segir Halldór Guðmunds- son, forstjóri Hörpu. Útlit sé fyrir að raflagnir og allur helsti búnað- ur hafi sloppið við vatns skemmdir. „Þetta leit alls ekki vel út hérna í nótt þegar menn komu á staðinn og það nánast rigndi úr loftræstikerf- inu,“ bætir Halldór við. Vatn hafi flætt um gólf á nokkur hundruð fermetra svæði en vel hafi gengið að hreinsa vætuna upp og koma í veg fyrir frekari leka. Öll viðbrögð starfsmanna og slökkviliðsins hafi verið snör og hárrétt. Ekki hefur enn verið metið hve mikið tjón varð en Halldór segir að það sé umtals- vert minna en óttast hafi verið í fyrstu. „Engin truflun verður á starfsemi hússins umfram þá sem stafar af veðrinu,“ segir Halldór. - jóe Forstjóri tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu segir að það megi tala um hellidembu í Silfurbergi: Betur fór en á horfðist er vatn lak í Hörpu SILFURBERG Slökkviliðs- menn sáu um að hreinsa upp vatnið sem lak inn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.