Fréttablaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 17.12.2014, Blaðsíða 38
17. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 30 London Philharmonic Orchestra mun koma fram á tvennum tón- leikum í Hörpu dagana 18. og 19. desember klukkan 19.30. Á efnisskrá verður Fantasían um Thom as Tallis eftir Vaughan Williams, Sinfónía nr. 1 í g-moll op. 13 eftir Tsjajkovskí og hinn vinsæli píanókonsert nr. 5 í Es- dúr op. 73, einnig nefndur Keis- arakonsertinn, eftir Beethoven. Stjórnandi verður Osmo Vänskä sem var um árabil aðal- stjórnandi Sinfóníu hljómsveitar Íslands. Osmo er tónlistarstjóri Minnesota Orch estra en sem gestastjórnandi hefur Osmo stjórnað öllum helstu hljómsveit- um í Evrópu og Norður- Ameríku. Einleikari verður norski píanó- leikarinn Leif Ove Andsnes sem nýlokið hefur við að hljóðrita alla píanókonserta meistarans. London Philharmonic Orc- hestra var stofnuð af Sir Tho- mas Beech am árið 1932 og er í dag ein fremsta sinfóníuhljóm- sveit heims. Meðal aðalhljóm- sveitarstjóra LPO frá stofnun eru Sir Adrian Boult, Bernard Hait- ink, Sir Georg Solti, Klaus Tenn- stedt og Kurt Masur. Árið 2007 tók Vladimir Jurowsky við stöðu aðalhljómsveitarstjóra og hefur verið það síðan. Andrés Orozco- Estrada mun taka við stöðu aðal- gestastjórnanda í september 2015. Frá því að Royal Festival Hall, salur Southbank Centre í Lond- on, var byggður árið 1951 hefur London Philharmonic Orchestra haft þar aðalaðsetur og leikur 40 tónleika í salnum á hverju tón- leikaári auk þess að koma reglu- lega fram bæði í Brighton og Eastbourne og fleiri stöðum á Bretlandseyjum. Á hverju ári er LPO í hlutverki óperuhljómsveit- ar á Glyndebourne Festival, þar sem hún hefur verið fastskipuð í yfir 50 ár. Hljómsveitin ferðast mikið um heiminn og á tónleika- árinu 2014-2015 fer hún víða um Evrópu, Bandaríkin og Kanada, auk Kína. - fsb Sinfóníuhljómsveit á heims- mælikvarða leikur í Hörpu London Philharmonic Orchestra heldur tvenna tónleika í Hörpu á næstu dögum. Stjórnandi er Osmo Vänskä og einleikari Leif Ove Andsnes píanóleikari sem leikur Keisarakonsertinn eft ir Beethoven. GÓÐIR GESTIR Í HÖRPU London Philharmonic Orchestra var stofnuð árið 1932 og er í dag ein fremsta sinfóníuhljómsveit heims. MYND/BENJAMIN EALOVEGA BÆKUR ★★★ ★★ Handan minninga Sally Magnusson. Þýðandi: Ragn- heiður Margrét Guðmundsdóttir SALKA Handan minninga eftir hina hálfíslensku Sally Magnusson er átakanlegur lestur. Þar segir hún sögu móður sinnar, Mamie Baird, sem var virt og vinsæl blaðakona og eftirsóttur ræðu- maður þegar Alzheimer-sjúk- dómurinn sótti hana heim og hún fór að tapa minni og sjálfsmynd smátt og smátt. Eiginmaður Mamie og faðir Sallyar var hinn ástsæli sjónvarpsmaður Magn- ús Magnusson en hann lést árið 2007 rétt í þann mund sem Alz- heimerinn var að ná yfirhöndinni í lífi eiginkonu hans. Í bókinni rekur Sally sögu móður sinnar frá barnæsku og fram á dánardægur árið 2012. Myndin sem hún dregur upp af þessari sjálfstæðu og duglegu konu er sterk og sannfærandi og ferðalagið inn í myrkur Alzheim- ersins virkilega hjartaskerandi lesning. Hlutskipti aðstandand- ans eru gerð góð skil, og Sally dregur ekkert undan í lýsing- um á eigin ráðvillu í átökunum við sjúkdóminn. Það er sárt að horfa upp á móður sína breytast í ókunna manneskju og missa smátt og smátt tökin á lífinu en verst af öllu er þó hversu lítið er til ráða og hve ósköp lítið er enn vitað um þennan sjúkdóm, orsak- ir hans og þróun. Hver einasti sjúklingur er í raun ný ráðgáta og ómögulegt að segja til um hvernig hans/henn- a r s j ú k- dómsferli verður. Það er því engin f u r ð a a ð aðstandend- ur leiti allra ráða til að afla sér upplýs - inga og reyna að finna skýr- ingar og Sally hefur greinilega varið ómældum tíma og kröft- um í að reyna að skilja það ferli sem móðir henn- ar gekk í gegnum. Töluvert púður fer í læknisfræðilegar upplýsingar í bók- inni og þótt auðvelt sé að skilja hvaða þýðingu slíkt hefur fyrir dóttur sjúklingsins verður að segjast að þeir kaflar draga töluvert úr læsileika bók- arinnar fyrir hinn almenna les- anda sem fyrst og fremst hefur áhuga á að fræðast um persónu- legar hliðar sögunnar. Bókin er, þrátt fyrir alvarlegt umfjöllunarefnið, skrifuð með húmor og hlýju að leiðarljósi og bráðskemmtileg á köflum. Það er líka erfitt að komast hjá því að tárast við lesturinn, svo nístandi sárar eru margar lýsing- arnar þótt hvergi sé verið að velta sér upp úr sársaukan- um og allt tilfinn- ingaklám sé víðs fjarri. Í heildina er bókin einstak- lega falleg og marghliða frá- sögn á tengslum móður og dóttur og því ferli sem dóttirin fer í gegnum þegar þau tengs l rofna vegna alveldis sjúk- dómsins. Þýðing Ragnheiðar Margrétar Guðmunds- dóttur er dálítið brokk- geng, talsvert er um að ensk orðaröð sé látin halda sér, sem truflar máltilfinningu lesandans, en á milli eru skínandi vel þýddir kaflar sem unun er að lesa. Friðrika Benónýsdóttir NIÐURSTAÐA: Falleg, hlý og grátleg frásögn af upplifun höfundar af Alzheimer-sjúkdómi móður sinnar. Þegar Alzheimer tekur völdin ➜ Meðal aðalhljómsveitar- stjóra LPO frá stofnun eru Sir Adrian Boult, Bernard Haitink, Sir Georg Solti, Klaus Tenn- stedt og Kurt Masur. Efnt verður til Listablands í Anarkíu í Kópavogi klukkan 20 í kvöld þar sem lesið verður úr fjórum nýjum bókum. Halldór Armand Ásgeirsson les úr skáldsögu sinni Drón, lesið verður úr ljóðabók Kristians Guttesen, Í landi hinni ófleygu fugla, Árni Óskarsson les úr þýð- ingu sinni á Lólítu eftir Nabokov og Jón Pálsson les úr skáldsögu sinni Dýrmundur og málið með veginn. Þá flytur Jóhanna V. Þór- hallsdóttir nokkur lög af diski sínum Söngvar á alvörutímum. Listasalurinn Anarkía í Kópa- vogi hefur nú verið starfræktur í hálft annað ár og á þegar að baki um þrjátíu myndlistarsýningar. Nú í desember efna listamenn- irnir sem standa að sýningarsaln- um til samsýningar undir yfir- skriftinni „Meinvill í Anarkíu“. Anarkía er til húsa í Hamraborg 3 í Kópavogi og sýningarsalur- inn er opinn alla virka daga nema mánudaga kl. 15-18 og um helgar kl. 14-18. Upplestur, söngur og myndlist í Anarkíu Lesið verður úr fj órum nýjum bókum á Listablandi Anarkíu í kvöld, fl utt tónlist og sýnd myndlist. EINN AF FJÓRUM Halldór Armand Ásgeirs- son les úr skáldsögu sinni Drón á Listablandi Anarkíu í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Vinir Dóra enda 25. afmælisárið með Jólablús á Rúbín annað kvöld klukkan 21 eins og hefðin býður. Vinirnir eru: Halldór Bragason gítarleikari og söngvari, Guð- mundur Pétursson gítarleikari, Ásgeir Óskarsson trommuleikari og Jón Ólafs- son bassaleik- ari. Um hljóð sér Jón Skuggi. Jólablús Vina Dóra á Rúbín HALLDÓR BRAGASON Diskurinn Umleikis með tónlist Unu Sveinbjarnardóttur er kom- inn út og útgáfutónleikar verða í Mengi, Óðinsgötu 2, í dag klukk- an 17. Öll verkin eru frumsamin af Unu sjálfri og voru tekin upp í Ísafjarðarkirkju sumarið 2012. Una er konsertmeistari Kammer sveitar Reykjavíkur og hefur verið gestakonsertmeistari Klassische Philharmonie Bonn, Trondheim Symfoni orkester, hljómsveitar Íslensku óperunnar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún kennir fiðluleik og kammer- tónlist við Tónlistarskólann í Reykjavík og Nýja tónlistar- skólann. Diskur hennar Fyrra- mál kom út árið 2007. Una leikur á Camillo Camilli-fiðlu smíðaða 1732 í Mantua. Útgáfutón- leikar Unu FAGNAR ÚTGÁFU Una Sveinbjarnar- dóttir heldur útgáfutónleika í Mengi í dag. MYND/ÁGÚST ATLASON 25% AF ÖLLUM SKÍÐAPÖKKUM OPIÐ MÁN-FÖS 10-18 LAU 11-15 ÁRMÚLI 40 | S: 517 4600 WWW.MARKID.IS Topp þjónusta í 30 ár Ekki gleyma að leika þér
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.