Fréttablaðið - 17.12.2014, Síða 44

Fréttablaðið - 17.12.2014, Síða 44
17. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 36 Nýleg grein á fréttamiðlinum Mother Nature Network, sem leggur mikla áherslu á umhverfismál, fjallar um sókn bandarískra kvikmyndagerðar- manna til Íslands. Þar segir að Ísland sé kjörinn tökustaður af ýmsum ástæðum. Ein af þeim sé skatta- afslátturinn sem kvikmyndagerðar- menn fái. „Við erum ekki stödd í einum af dýrustu kjörnum heims. Við getum boðið upp á gott verð ofan á skattaafsláttinn,“ segir Daði Einars son í greininni, einn stofnenda framleiðslufyrirtækisins RVX. Hann segir að skrifræðið sé lítið hér og að hér séu engir valdapíramídar. Einnig sé það endurnýtanlega orkan sem umhverfisþenkjandi kvik- myndagerðarmenn sækist í. „Ísland er án efa að þróa ímynd sína sem framsækinn og skapandi staður með hreina orku,“ segir Daði. Þá megi ekki gleyma gagnavinnslunni sem geri lífið töluvert auðveldara fyrir kvikmyndagerðarmenn á Íslandi og til dæmis gerði RVX samning við Verne Global sem rekur stórt gagna- ver í Reykjanesbæ. - þij Gagnaverin, skatturinn og náttúran Fjallað er um Ísland sem þægilegan tökustað í grein Mother Nature Network. LÍTIÐ SKRIFRÆÐI Daði segir að hér séu engir valdapíramídar. Framleiðendur James Bond hafa undirritað auglýsingasamning við Belvedere Vodka sem þýðir að Daniel Craig getur byrjað aftur að panta uppáhalds martini-drykkinn sinn í nýju Bond-myndinni, Spectre. Hann getur því eins og svo oft áður óskað eftir „hristum en ekki hrærð- um“ martini. Vangaveltur voru uppi um að Bond myndi halda áfram að drekka bjór í stað martinis, eins og hann gerði í síðustu mynd, sérstak- lega eftir að auglýsingasamningur við Heineken var endurnýjaður. Margir aðdáendur voru óánægðir með breytinguna á drykkjarvenjum kappans og geta því tekið gleði sína á ný, miðað við þessi nýju tíðindi. Hristur, ekki hrærður James Bond pantar aft ur uppáhaldsdrykkinn sinn. DANIEL CRAIG OG MEÐLEIKARAR Craig og meðleikarar hans í Bond- myndinni Spectre. NORDICPHOTOS/GETTY Úttektin Google’s Year in Search var sú fjórtánda sem stórfyrir- tækið Google hefur látið gera en þar koma fram alls kyns upplýs- ingar um það sem heimurinn hefur verið að leita að á Google á árinu. Þar kemur margt áhugavert fram, meðal annars að Kim Kardashian hafi ekki náð að brjóta veraldarvef- inn eins og hún sagðist ætla að gera, heldur var það Robin Williams sem mest var „gúglaður“ á árinu. Í til- efni af líðandi ári tekur Fréttablaðið hér saman nokkra lista yfir það sem mest var leitað að á árinu. Google-leitir ársins Google tekur saman að hverju alheimurinn leitaði á netinu fj órtánda árið í röð. ✥ ROBIN WILLIAMS ✥ WORLD CUP ✥ EBOLA ✥ MALAYSIA AIRLINES ✥ ALS ICE BUCKET CHALLENGE ✥ FLAPPY BIRD ✥ CONCHITA WURST ✥ ISIS ✥ FROZEN ✥ SOCHI OLYMPICS ➜ Það sem mest var leitað að: ➜ Fólkið sem mest var leitað að: 1. JENNIFER LAWRENCE 2. KIM KARDASHIAN 3. JULIE GAYET 4. TRACY MORGAN 5. RENE ZELLWEGER 6. JARED LETO 7. LORDE 8. MATTHEW MCCONAUGHEY 9. AMAL ALAMUDDIN 10. DONALD STERLING ➜ Íþróttamennirnir sem mest var leitað að: 1. JAMES RODRIGUEZ 2. MICHAEL SCHUMACHER 3. RAY RICE 4. LUIS SUAREZ 5. NEYMAR DA SILVA SANTOS 6. MARIO GOTZE 7. JULES BIANCHI 8. FRANCISCO GUILLERMO OCHOA MAGAÑA 9. MICHAEL PHELPS 10. RICHARD SHERMAN ➜ Þeir sem létust á árinu sem mest var leitað að: 1. ROBIN WILLIAMS 2. PHILIP SEYMOUR HOFFMAN 3. PEACHES GELDOF 4. SHIRLEY TEMPLE 5. MAYA ANGELOU 6. JOAN RIVERS 7. GABRIEL GARCIA MARQUEZ 8. LAUREN BACALL 9. JAMES AVERY 10. HAROLD RAMIS ➜ Alheimsfréttirnar sem mest var leitað að: 1. EBÓLA 2. ISIS 3. FLUGLEIÐIR MALASÍU 4. KRÍMSKAGI/ÚKRAÍNA 5. FERGUSON 6. GAZA OG ÍSRAEL 7. SJÁLFSTÆÐISKOSNINGAR SKOTA 8. RÉTTARHÖLD OSCARS PISTORIUSAR ➜ Raftækin sem mest var leitað að: 1. IPHONE 6 2. SAMSUNG GALAXY S5 3. NEXUS 6 4. MOTO G 5. SAMSUNG NOTE 4 6. LG G3 7. XBOX ONE 8. APPLE WATCH 9. NOKIA X 10. IPAD AIR ➜ HM-leikir sem mest var leitað að: 1. BRASILÍA GEGN ÞÝSKALANDI 2. ÞÝSKALAND GEGN ARGENTÍNU 3. BRASILÍA GEGN SÍLE 4. ARGENTÍNA GEGN BELGÍU 5. BRASILÍA GEGN KRÓATÍU 6. BRASILÍA GEGN HOLLANDI 7. HOLLAND GEGN MEXÍKÓ 8. ÞÝSKALAND GEGN PORTÚGAL 9. BRASILÍA GEGN MEXÍKÓ 10. BANDARÍKIN GEGN ÞÝSKALANDI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.