Fréttablaðið - 17.12.2014, Side 51
MIÐVIKUDAGUR 17. desember 2014 | SPORT | 43
UFC Það er risabardagakvöld fram
undan í UFC þar sem Írinn og
Íslandsvinurinn Conor McGregor
er aðalnúmerið. Keppnin fer fram
í Boston þann 18. janúar næstkom-
andi. Írar eru fjölmennir í Boston
og því búist við miklum látum í TD
Garden-höllinni.
McGregor er góðvinur Gunnars
Nelson en þeir æfa undir hand-
leiðslu sama þjálfara, Johns Kav-
anagh, og hafa æft mikið saman.
Meðal annars á Íslandi síðasta
sumar er æfingar fyrir bardaga-
kvöldið í Dublin fóru fram.
Að sögn Haraldar Nelson, föður
og umboðsmanns Gunnars, munu
þeir félagar ekki æfa saman fyrir
þennan bardaga en McGregor vill
þó hafa Gunnar nærri. Þess vegna
hefur hann beðið Gunnar um að
vera í horninu hjá sér í bardagan-
um gegn Dennis Siver.
„Það verður mjög skemmtilegt.
Gunni fer líklega út um viku fyrir
bardagann og tekur þátt í fjör-
inu,“ segir Haraldur en það verð-
ur væntanlega stemning í höll-
inni sem áhorfendur í Boston eru
ekki vanir enda eru Írarnir þekkt-
ir fyrir einstaklega líflega fram-
komu á íþróttaviðburðum. Þeir
slógu einmitt heimsmetið í hávaða
á UFC-viðburði í Dublin síðasta
sumar.
Ekki liggur fyrir hvenær
Gunnar berst næst en hann var
með auga á bardagakvöldi í Lond-
on í lok febrúar en búið er að fresta
því kvöldi um óákveðinn tíma.
„Það skýrist vonandi fljótlega
í janúar hvar Gunnar berst næst.
Þeir hjá UFC vissu að hann vildi
hvíla fram í miðjan febrúar,“ bætir
Haraldur við. - hbg
Verður í horninu hjá McGregor
Gunnar Nelson fer til Boston eft ir áramót og aðstoðar Conor McGregor.
FÉLAGAR Gunnar og Conor eru hér saman á góðri stund. Þeir hafa æft mikið
saman. MYND/HÖRÐUR
GOLF Rory McIlroy, besti kylfing-
ur heims í dag, vill að golf verði
spilað hraðar svo fleiri ungir
krakkar hafi áhuga á að æfa og
spila íþróttina. Fram kemur á vef
BBC að ungmennum á aldrinum
16-25 ára sem stunda golf fækk-
aði um helming frá 2010-2013.
„Það gerist allt svo hratt í dag
og fólk hefur ekki jafn mikinn
tíma og áður. Kannski væri best
að finna leið til að spila leikinn
hraðar,“ segir McIlroy sem vann
bæði opna breska meistaramótið
og PGA-meistaramótið á árinu.
„Fleiri horfa á golf en áður en
færri stundað það. Fólk hefur
gaman af því að horfa á leikinn
en þeir dagar eru liðnir þar sem
hægt var að eyða fimm til sex
klukkutímum á golfvellinum,“
segir Norður-Írinn.
Yfirvöld í golfinu hafa verið
treg til að kynna nýjungar og
breyta til, en það var síðast á
þessu ári sem Royal and Anci-
ent-golfklúbburinn, sem rekur
St. Andrews-völlinn í Skotlandi,
leyfði konum að gerast meðlimir.
Þær stóðu fyrir utan fyrstu 260
árin. - tom
Þarf að spila
golf hraðar
NÝJAR HUGMYNDIR Rory vill breyta
golfinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
SIGLINGAR Ef þú ert siglingakappi
og stefnir á ÓL í Ríó árið 2016 þá
þarftu kannski að fara að hugsa
þig tvisvar um.
Vísindamenn voru að birta
skýrslu um ástandið í sjónum
þar sem siglingakeppnin í Ríó fer
fram. Sjórinn er hreinn viðbjóður
og hreinlega hættulegur.
Samkvæmt AP-fréttastofunni
fara 70 prósent af skólpinu í Ríó
alveg óhreinsuð beint út í flóann
fyrir utan borgina. „Þetta er í
raun bara skólpflói,“ segir Leona
Deckelbaum umhverfisverndar-
sinni en hún hefur barist fyrir
því að flóinn verði hreinsaður.
Skipuleggjendur Ólympíuleik-
anna hafa lofað því að hreinsa
flóann fyrir leikana. - hbg
Siglt í skólpi