Fréttablaðið - 17.12.2014, Qupperneq 54
17. desember 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 46
„Ég þurfti að fara í áheyrnarprufu
til að sækja um skólastyrk og var
einstaklega heppin og mér var
boðinn skólastyrkur fyrir áfram-
haldandi námi,“ segir Ragnheiður
Ragnars dóttir sundkona, sem stund-
ar nám í kvikmyndaleik við New
York Film Academy í Los Angeles.
Hún fluttist þangað í haust ásamt
eiginmanni sínum Atla Bjarnasyni
viðskiptafræðingi og syni þeirra
Breka, sem er að verða tveggja
ára. „Ég fékk fullt af skemmti-
legum verkefnum á meðan ég var
í skólanum í haust. Það er alltaf
gaman að geta unnið smá með skól-
anum og komið sér einnig á fram-
færi þannig,“ segir Ragnheiður, en
meðal verkefna sem hún tók að sér
var leikur í nokkrum stuttmyndum.
„Ég fór líka í nokkrar mynda-
tökur, meðal annars hjá ljósmynd-
ara sem heitir Mike Quain, en hann
hefur myndað einhverjar stjörnur.
Það var skemmtileg og öðruvísi
myndataka, svolítið avant garde og
ólíkt því sem ég hef gert áður,“ segir
Ragnheiður.
Fjölskyldan ætlar að koma heim
yfir jólin, en svo heldur hún aftur
út til Los Angeles eftir áramót.
„Þótt það sé æðislegt að vera úti,
þá hlakka ég mjög mikið til þess
að koma heim og detta í smá rútínu
og fara í Bláa lónið og alvöru rækt
í Hreyfingu og hlaða batteríin fyrir
næstu önn,“ segir Ragnheiður, en
þau stefna að því að fara aftur út í
janúar.
„Námið er mjög skemmtilegt og
mér gekk vel og fékk mjög góðar
einkunnir og umsagnir, enda lagði
ég mig líka alla fram við þetta,“
segir Ragnheiður og hlær. Hún
segir það hafa gengið vel að aðlagast
og þeim líði vel úti. „Breki elskar að
vera þarna. Við hittum alltaf ein-
hverja á róló sem voru tilbúnir að
spjalla og koma á „playdate“ þannig
að það var alltaf líf og fjör,“ segir
hún. Auk þess að vera á fullu í nám-
inu heldur Ragnheiður úti blogg-
inu www.rasdiner.com þar sem hún
deilir hollum og góðum uppskrift-
um og fróðleik um hreyfingu. „Ég
hugsa vel um heilsuna og er oft
beðin um uppskriftir og æfingaráð.
Þetta heldur mér líka við efnið að
borða hollt og hreyfa mig. Þannig
líður mér betur og mig langar bara
til að halda áfram að læra og vinna,“
segir Ragnheiður. adda@frettabladid.is
Fékk skólastyrk fyrir
námi í Los Angeles
Sundkonan Ragnheiður Ragnarsdóttir gerir það gott í borginni Los Angeles.
Á dögunum fékk hún skólastyrk fyrir áframhaldandi námi í kvikmyndaleik.
ÆTLAR AÐ NÁ LANGT Ragnheiður er staðráðin í að láta draumana rætast í Los Angeles. MYND/ MIKE QUAIN
Þótt það sé æðislegt
að vera úti, þá hlakka ég
mjög mikið til þess að
koma heim og detta í
smá rútínu og fara í Bláa
lónið og alvöru rækt.
Ragnheiður Ragnarsdóttir
„Þetta endaði sem betur fer vel
og var meira að segja nokkuð
fyndin saga að lokum,“ segir
Ilmur María Stefánsdóttir, móðir
ungu leikkonunnar Grímu Vals-
dóttur sem fer með hlutverk
Herra Níels í Línu Langsokk.
Á laugardag varð Gríma fyrir
því óhappi að renna og detta á
höfuðið rétt fyrir sýningu og gat
því miður ekki tekið þátt. „Sem
betur fer er sýningarstjórinn,
hún Ingibjörg, svo skelegg að hún
mældi hin börnin sem eru í sýn-
ingunni og fann út hver myndi
passa í apabúninginn,“ segir
Ilmur.
Úr varð að Bjarni Hrafnkels-
son, sem fer með hlutverk skóla-
drengs í sýningunni, stökk inn
og lék Níels fyrir hlé. Sýningar-
stjórinn fór svo í það að ná í föður
Mikaels, sem leikur Níels á móti
Grímu.
„Hún hringdi og fékk þær upp-
lýsingar að hann væri á fundi.
Eitthvað heyrði hún vitlaust og
fannst eins og hann væri í sundi
svo hún hringdi í allar sund-
laugar á höfuðborgarsvæðinu og
lét kalla upp pabba Herra Níels,“
segir Ilmur og hlær.
Allt fór vel að lokum og náð-
ist í aukaleikarann sem fór upp
á svið eftir hlé. Ilmur segir að
Gríma sé orðin hress og taki þátt
í næstu sýningu eins og ekkert
hafi í skorist.
„Það passar henni vel að leika
apann Níels þar sem hún er
algjör prílari og er eiginlega vön
að detta,“ segir hún. - asi
Náðu að bjarga Herra Níels
Gríma Valsdóttir sem leikur Herra Níels lenti í óhappi rétt fyrir sýningu.
FLOTT SEM NÍELS Hér er Gríma í hlut-
verki apans hennar Línu, Herra Níels.
„Mér leiðist svo rosa mikið að kaupa
mér föt – ég myndi helst vilja vera í
sama jólakjólnum á hverju ári.“
Heiðdís Helgadóttir teiknari.
JÓLAFÖTIN
JÓLATILBOÐ
69.900
KRÓNUR
JÓLATILBOÐ
99.900
KRÓNUR
„Þetta byrjaði allt á þessari hug-
mynd, hvað ef Anna Karenína væri
íslensk og uppi á okkar tíma,“ segir
Helga Björg Gylfadóttir, leikstjóri
og handritshöfundur stuttmyndar-
innar ANNA. Handritið var unnið
upp úr skáldsögunni Önnu Karenínu
eftir Leo Tolstoj sem gefin var út
1877. Í stuttmyndinni er sögu sviðið
fært til Reykjavíkur nútímans og
upplifir Anna álíka atburði og í
bókinni. „Þessi magnaði karakter
sem Tolstoj skapaði sat í mér frá
því ég var tuttugu og tveggja ára
og las bókina fyrst. Mér fannst
sterkt hvernig Anna þorir að fylgja
innsæi sínu,“ segir Helga Björg og
bætir við að sér hafi þótt áhugavert
að taka nítjándu aldar skáldsögu og
færa í íslenskan raunveruleika.
Í myndinni er Anna tvíkyn-
hneigð og gift Katrínu eða Kar-
enín, mennta- og menningarmála-
ráðherra, en Anna er ástfangin af
leikaranum Veturliða eða Vronsky.
„Mér fannst það bara vera ákveð-
in endurspeglun á íslenskum raun-
veruleika í dag,“ segir Helga Björg,
aðspurð af hverju persóna Önnu er
tvíkynhneigð.
ANNA verður sýnd í Bíói Paradís
á morgun klukkan sex. - gló
Tvíkynhneigð Anna Karenína
Stuttmynd byggð á skáldsögunni Önnu Karenínu sýnd í Bíói Paradís annað kvöld.
HELGA BJÖRG Leikstýrði og skrifaði
handritið að stuttmynd um Önnu
Karenínu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR