Fréttablaðið - 01.06.2015, Page 11
MÁNUDAGUR 1. júní 2015 | FRÉTTIR | 11
Nýjar uppþvottavélar frá Siemens með Zeolith®-þurrkun sem er afburðagóð og árangursrík þurrkun og
byggist á að láta hið náttúrulega steinefni seólít soga í sig raka og gefa frá sér hita. Orkuflokkur A+++.
Þurrkhæfni A. 13 manna. Fimm kerfi. Sérlega hljóðlátar: 44 dB (re 1 pW). Barnalæsing. „aquaStop“-
flæðivörn. Stytta má vinnslutímann á öllum kerfum vélanna. Eitt sjálfvirkt kerfi. Siemens
uppþvottavélar hafa lent í fyrsta sæti hjá virtum neytendasamtökum í Evrópu undanfarin ár.
-allt svo glitrandi og þurrt!
Kynningarverð: 109.900 kr.
Uppþvottavél, SN45M208SK (hvít)
Uppþvottavél, SN45M508SK (stál)
Kynningarverð: 122.900 kr.
Við leggjum áherslu á hágæða vörur
og fyrsta flokks þjónustu á góðu verði.
„All in 1“ uppþvotta-
töflurnar frá Finish
fylgja með öllum
Siemens uppþvottavélum.
SAMFÉLAG Nær tvö hundruð gjafa-
kort Hjálparstarfs kirkjunnar
hafa selst í verslunum Hagkaups
nú í maímánuði. Ágóðanum af sölu
gjafakortsins „Gleðilegt sumar“,
sem kostar 1.200 krónur, verð-
ur varið til að styrkja efnaminni
barnafjölskyldur í sumar.
„Um nokkur hundruð börn hafa
notið góðs af styrkjum frá okkur
á sumrin og fjöldinn verður svip-
aður nú,“ segir Vilborg Oddsdóttir
félagsráðgjafi.
Stuðningurinn er margþættur, að
því er hún greinir frá. „Við kaup-
um árskort í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinn og miða í útileikhús-
ið. Við gefum auk þess gjafakort
svo að fjölskyldan geti keypt ís og
hamborgara svo eitthvað sé nefnt.
Markmiðið er að fjölskyldan geti
gert eitthvað skemmtilegt saman.“
Verkefnið Samvera og góðar
minningar er skipulagt sumarfrí
fyrir barnafjölskyldur í sumar-
búðum skáta við Úlfljótsvatn 8.-12.
júní. Í sumarbúðunum verða 20
fullorðnir og 50 börn. Áætlað er að
um helmingur þátttakenda verði
fjölskyldur af erlendu bergi brotn-
ar.
Í sumar er jafnframt á dagskrá
tilraunaverkefni sem heitir Að
rækta garðinn sinn, en það er mat-
jurtarækt og námskeið um rækt-
un, næringargildi, matreiðslu og
geymslu grænmetis. Því er ætlað
að stuðla að samveru fjölskyld-
unnar, útivist, hreyfingu, góðri
næringu, verkkunnáttu og bættri
sjálfsmynd barna jafnt sem for-
eldra. - ibs
Hjálparstarf kirkjunnar selur gjafakort til stuðnings barnafjölskyldum sem standa höllum fæti:
Hundruð barna njóta styrkja í sumar
Í SUMARBÚÐUM Hjálparstarf kirkjunn-
ar býður barnafjölskyldum í sumarbúðir
við Úlfljótsvatn.
MYND/HJÁLPARSTARF KIRKJUNNAR
HAGSTOFAN Verðmæti afla upp úr
sjó nam tæpum 16,2 milljörðum
í febrúar eða 41,7 prósent hærra
en í febrúar 2014. Frá þessu
greinir Hagstofa Íslands.
Vegur þar þyngst aflaverðmæti
loðnu sem nam tæpum 6 milljörð-
um og jókst um um 4 milljarða
samanborið við febrúar 2014.
Aflaverðmæti þorskaflans nam
6,2 milljörðum í febrúar sem er
ríflega 24% aukning miðað við
sama mánuð 2014.
Aflaverðmæti á tólf mánaða
tímabili frá mars 2014 til febrúar
2014 nam 142,6 milljörðum. - ngy
42 prósent hækkun í febrúar:
Aflaverðmæti
eykst milli ára
MENNINGARMÁL Minjastofnun
Íslands hefur veitt 10 milljóna
króna styrk úr húsafriðunar-
sjóði vegna hins 167 ára gamla
Faktorshúss á Djúpavogi. Sveitar-
stjórn þar segir styrkinn mjög
mikilvægt skref í áframhaldandi
uppbyggingu við húsið.
Fara á í samfellda vinnu við
fyrsta áfanga við Faktorshúsið,
það er frágang lóðar og 1. hæð, og
ljúka þeim áfanga á næsta ári að
því er segir á vef hreppsins. Sam-
hliða á að halda áfram að leita
stuðnings við verkefnið. - gar
Styrkur úr húsfriðunarsjóði:
Fá tíu milljónir
í Faktorshúsið
DJÚPIVOGUR Faktorshúsið er gráa
húsið fremst. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
REYKJAVÍKURBORG „Mikils ósam-
ræmis gætir í aksturssamning-
um hjá borginni annars vegar
og fyrirtækjum í meirihlutaeigu
borgarinnar hins vegar,“ segir í
bókun sjálfstæðismanna í borgar-
ráði. Þeir vilja vita um áhrif upp-
sagna á aksturssamningum 432
borgarstarfsmanna fyrir hálfu
ári. BHM krefjist að uppsagnirnar
verði dregnar til baka því þær séu
kjaraskerðing.
„Hver er sparnaðurinn af upp-
sögnum aksturssamninga? Hefur
notkun leigubíla eða bílaleigubíla
aukist eða útgjöld aukist af öðrum
ástæðum?“ er meðal annars spurt.
- gar
Spurt um aksturssamninga:
Vilja vita hvað
hefur sparast
JAFNRÉTTI Orkuveita Reykjavíkur
hlaut Hvatningarverðlaun jafn-
réttismála árið 2015.
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
afhenti Bjarna Bjarnasyni, for-
stjóra Orkuveitunnar, viðurkenn-
inguna í gær. Orkuveitan hefur
markvisst tekið skref til jafnréttis
og að jafna stöðu kynjanna. Fyrir-
tækið hefur unnið að því að breyta
vinnuumhverfinu þannig að það
henti betur báðum kynjum.
Verðlaunin eru veitt í annað
sinn en í fyrra fóru þau til Rio
Tinto Alcan. - srs
Jafnréttisverðlaun til OR:
Vinnan henti
báðum kynjum
VIÐURKENNING Rio Tinto Alcan fékk
verðlaunin í fyrra. MYND/FESTA
2
7
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
D
5
-C
5
6
C
1
7
D
5
-C
4
3
0
1
7
D
5
-C
2
F
4
1
7
D
5
-C
1
B
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
5
6
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K