Fréttablaðið - 01.06.2015, Síða 13
MÁNUDAGUR 1. júní 2015 | SKOÐUN | 13
Það vita það nær allir að
álagið á heilbrigðisþjón-
ustuna er gífurlegt. Marg-
ir finna það á eigin skinni
sem notendur, aðrir heyra
af því og enn aðrir reyna
að standa undir því. Tökum
heilbrigðisþjónustuna á
Suðurlandi sem dæmi, það
er stórt þjónustusvæði með
fyrir fram ákveðin fjár-
framlög.
„Heildarframlag ti l
HSU á fjárlögum 2015 er
um 3,6 milljarðar króna
og hjá stofnuninni starfa ríflega
500 manns. Fjöldi íbúa í umdæm-
inu eru um 26.000 manns.“ (Heil-
brigðisstofnun Suðurlands. (e.d.).
Almennar upplýsingar.)
Miðað við þær tölur eru reikn-
aðar um 138.462 kr. á notanda á ári
EÐA 7.200.000 kr. í laun á starfs-
mann á ári, sem eru að meðaltali
600.000 kr. á mánuði (mismunandi
launaflokkar eru vitaskuld í jafn
stórri stofnun og þessari). Þá er
eftir allt sem heitir rekstrarkostn-
aður og viðhald, ferðakostnaður
um umdæmið, óvænt útgjöld, þró-
unarstarf vegna þjónustu, endur-
menntun og starfsþróun.
Umdæmið nær frá Þor-
lákshöfn austur til Hafn-
ar. Það segir sig sjálft að
þjónustan hlýtur að bíða
skaða á mörgum þessara
staða. Þjónusta sem er ein
af grunnþjónustum ríkis
sem vill hafa starfhæft
samfélag.
Á Selfossi er starfrækt
stærsta þjónustumiðstöð
umdæmisins og eru flest-
ir starfsmenn með megin-
part starfsemi sinnar
þar. Margir sinna starf-
seminni á öðrum stöðum í hluta-
störfum að auki og nokkrir í fullu
starfi. Það er starfrækt læknavakt
á heilbrigðisstofnuninni á Selfossi
alla daga frá 16-18 og um helg-
ar frá 10-12 (auk þess sem alltaf
er bráðavakt til staðar eða í við-
bragðsstöðu). Oft eru tveir læknar
á vaktinni en oftar en ekki þarf
annar þeirra líka að sinna bráða-
vaktinni auk hjúkrunarfræðinga.
Hvernig finnst ykkur dæmið
ganga upp fram að þessu?
Margir heimilislæknar eru
hættir að taka við tímapöntunum
frá notendum nema þeir séu skráð-
ir heimilislæknar þeirra. Margir
heimilislæknar eru einnig komnir
með mjög miklar takmarkanir á
hvenær megi panta tíma hjá þeim
og þá eingöngu ákveðið marga
daga fram í tímann. Ef notandi
ætlar að panta tíma hjá sérfræð-
ingi er honum oft bent á að panta
frekar á starfsstöð hans í Reykja-
vík, þar sé minni bið.
Ofurálag
Þetta þekkja mjög margir. Þeir
sem þurfa sérstaka aðstoð, sumir
eldri borgarar, fólk með miklar
sérþarfir, börn í áhættuhópum,
fólk með astma, fatlaðir og jafn-
vel óléttar konur neyðast til að
sækja þjónustu oft og tíðum utan
þjónustusvæðis ef það þolir litla
bið. Aðrir, þeir sem hafa haft
flensu með háan hita í marga erf-
iða daga, þeir sem hafa haft niður-
drepandi niðurgang eða uppköst,
þeir sem hafa haft mikil óþægindi
af stoðkerfisvanda, svefnvanda,
húðvanda, greftri í stóru tá, þvag-
færasýkingu eða vægu brunasári
sem ætlar ekki að gróa t.d., þeir
þurfa að fara á vaktina ef einkenni
þeirra trufla þá í daglegu starfi og
lífi.
Vegna þess ofurálags sem er á
starfseminni þá hafa æ fleiri nýtt
sér vaktina til að fá svör við van-
líðan eða kvillum almennt. Vaktin
sem á að standa frá 16-18 er farin
að vera umsetin töluvert fyrir 16
og suma daga jafnvel lengur en
19-20+. Einstaka daga þarf notandi
bara að bíða í 40-60 mín, aðra tölu-
vert lengur, bara á almennu vakt-
inni sem er ætlað að taka álagið
af tímapöntunum heimilislækna
og svara minna áríðandi köll-
um. Bráðavaktin er enn eftir auk
útkalla. Það þýðir ekki að segja
að annars staðar sé þetta verra
því eitt rangt réttlætir ekki annað
rangt. Kannski var vaktinni ætlað
að skapa meiri innkomu í rekstrar-
umhverfið á kostnað þjónustunn-
ar?
Þetta er grunnþjónusta í rekstri
samfélaga. Sparnaðurinn við að
draga úr starfsemi getur haft
margföldunaráhrif í kostnaði
vegna notanda. Margir notendur
leita þangað vegna tímabundinna
vankanta (sem þó draga úr virkni)
sem er hægt að leysa á einfaldan
og ódýran hátt, bæði fyrir notand-
ann og samfélagið. Margir not-
endur kosta þó samfélagið mun
meira en hefði þurft vegna tafa,
biða og álags í kerfinu. Vankant-
ar sem hefðu getað verið leystir
með snöggri íhlutun vinda upp á
sig án meðferðar eða úrræða og
verða að alvarlegri vanköntum,
jafnvel krónískum. Það kostar svo
aftur samfélagið í endurhæfingu,
örorku, tapi á starfsgetu, íhlutun
Tryggingastofnunar og svo fram-
vegis. Fyrir utan andlegu hliðina
sem kostar samfélagið mun meira
en bara fjárhagslega. Sparnaður-
inn skilar sér því í auknum kostn-
aði neytanda, auknu álagi á kerfið
sem um ræðir og auknum kostn-
aði þess sem rekur kerfið. Dæmið
hreinlega gengur ekki upp.
Við í Bjartri framtíð í Árborg
viljum skora á ríkið að vinna
betur með notendum sínum, not-
endum þeirrar grunnþjónustu
sem ríkinu er skylt að veita í laga-
legum og siðferðislegum skilningi.
Dæmið verður að ganga upp, ann-
ars endum við öll á bólakafi.
Heilbrigðisþjónustan á kafi í bið …
HEILBRIGÐIS-
MÁL
Eyrún Björg
Magnúsdóttir
2. sæti hjá Bjartri
framtíð í Árborg
Ég brá mér í Safnahúsið við
Hverfisgötu. Á leiðinni ók ég
framhjá Perlunni sem var
umkomulaus að sjá og undraðist
enn hvers vegna ekkert miðar í
því að koma Náttúrugripasafn-
inu upp þar – er þar um að kenna
dáðleysi menntamálaráðherrans
eða telur ríkisstjórnin sig vera
búna að leysa málið nú þegar
búið er að koma geirfuglinum
fyrir í kústaskáp í Safnahúsinu?
Margt sem vaknar
En sem sé: brá mér í Safnahúsið
og skoðaði sýninguna Sjónar-
horn sem Markús Andrésson
hefur sett upp í því skyni að sýna
okkur hitt og þetta úr íslenskum
myndheimi – og hugmyndaheimi
– í aldanna rás og frá ýmsum
sjónarhornum, eins og þetta
dásamlega rangalahús býður svo
sannarlega upp á.
Það var gaman skoða sýn-
inguna; hún er falleg. Það
má jafnvel nota um hana það
margþvælda orðalag, að þar
sé „skemmtilega unnið með
rýmið“. Þau viðhorf hafa sést að
sýningin vitni um að sýningar-
stjórarnir séu að verða of fyrir-
ferðarmiklir í veröld safna og
myndlistar en erfitt er að koma
auga á það vandamál hér. Vissu-
lega skynjar maður hugsun og
þráð í sýningunni, en það er
ekki til vansa. Hlutum er skipað
saman af hugkvæmni og hæfi-
legum húmor - en líka alúð – og
margt sem vaknar í menningar-
minninu þegar maður röltir
þarna um, margt sem gleður
augað og vekur hugann; hvort
heldur það eru hlutir úr litla
heiminum umhverfis mann eða
úr hinu opinbera rými. Gömul
plötuumslög, kort, hannyrð-
ir, húsgögn, Kjarvalsmálverk,
útskurður: sýningarstjórinn er
nokkurs konar menningarlegur
DJ á fullu við að búa ný og ný
remix menningarsögunnar og
blöndur sem virka – eða virka
ekki. Og ýmislegt sem verður
útundan. Ég saknaði lausavís-
unnar, þó að hún sé bara orð og
hugarmyndir – eða kannski ein-
mitt þess vegna – og ég saknaði
módernistanna sem höfðu svo
ótrúlega sterk áhrif á þjóðlífið
um miðja síðustu öld, svo að eitt-
hvað sé nefnt.
Jónsbókarhandritum er sér-
lega fallega stillt upp og listfengi
þeirra skrifara sem þau gerðu
stillt upp andspænis þeim Sölva
Helgasyni og Bjarna Þórarins-
syni (arftaka Sölva í vissum
skilningi) sem báðir nota þétt-
skrifaðan texta til að skrá sín
eigin lög og prívatheim (grafó-
manían!) en á vegg þar hjá er
Ragnar Kjartansson að syngja
og spila á gítar í þögulli mynd;
eins og til að ítreka að þessi
handrit séu ekki fyrst og fremst
texti heldur kallist á við gjörn-
ingameistara nútímans.
Hús andanna
Ríkjandi sjónarmið í menningar-
sögu Íslendinga og sjálfsmynd
hefur fram á síðustu ár verið
að líta á þessa fortíð okkar sem
nokkurs konar texta. Handritin
eru samkvæmt þessum skilningi
þjóðargersemar sem gáfu Íslend-
ingum sinn þegnrétt í samfélagi
þjóðanna. Og vissulega var rit-
ræpa Íslendinga slík gegnum ald-
irnar að þeir voru sennilega um
hríð ritóðasta þjóð Evrópu, mætti
jafnvel rökstyðja að þjóðar-
sjúkdómar Íslendinga hafi verið
tveir, alkóhólismi og grafómanía.
Það eimir eftir af þessari áráttu
í sjálfsævisagnagerð Íslend-
inga sem fram á síðustu ár var
útbreiddari iðja en víðast hvar;
og vitnar um þörf fyrir að skynja
ævi sína og störf sem texta. Að
ógleymdum minningargrein-
unum í Mogganum sem nú eru
komnar fram yfir mitt blað.
Alltof mikið var einblínt á
sögur og handrit í íslenskri
menningarsögu allt fram á síð-
ustu ár: Jón Helgason og Árni
Magnússon voru báðir gersam-
lega áhugalausir um þau nótna-
handrit sem á vegi þeirra urðu
– Árni hreinlega skar þau niður
í ræmur og notaði í bókband og
Jón lét sem hann sæi þau ekki
– svo að eyður eru í vitneskju
okkar um tónlistarsöguna sem
ýmislegt bendir til að hafi ekki
verið alveg jafn fáskrúðug og
okkur hefur verið talin trú um.
Myndefnið sem við eigum frá
fyrri öldum er með sanni ósköp
lítilfjörlegt og bendir til allsherj-
ar og furðu útbreiddrar vankunn-
áttu í öllu sem viðkom mynd-
list. Þar með er ekki sagt að við
getum ekki nálgast íslenskan
veruleika fyrri alda á sjónræn-
an hátt. Þessi sýning leiðir það
meðal annars í ljós.
Þessi endurskoðun opnar vídd-
ir í sjálfsvitund þjóðarinnar. En
það má samt ekki alveg gleyma
því að Íslendingar voru og eru
þrátt fyrir allt bókmenntaþjóð.
Þeim arfi má alveg halda á lofti.
Og af því að öll íslensk menn-
ingar umræða endar alltaf í
því að tala um hús: þegar þessi
sýning rennur sitt skeið á enda
í Safnahúsinu – mætti þá ekki
hugleiða að gera það að húsi bók-
menntanna? Við eigum ýmsa
ágæta sýningarsali en ekkert
hús bókmenntanna er til. Andi
bóka og grúsks svífur þarna enn
um sali og þegar skyggja tekur
fara áreiðanlega á kreik gamlir
og rallhálfir bókmenntadraug-
ar. Þarna gæti verið sýning á
handritunum og reynt að opna
heimsmynd þeirra; og þau þá
jafnframt sýnd sem þau handrit
sem þau eru en ekki sem partur
af verkum nútímamyndlistar-
manna eins og farið er að tíðkast.
Þarna gæti verið ýmis starfsemi
tengd bókmenntunum, skrif-
stofur bókmenntamiðstöðva og
rithöfunda; upplestrar, sýningar,
uppákomur og innsetningar, ætt-
fræðiþing og afbyggingarmót,
vísnagleði og rappara-rimmur;
frábært bókasafn og værukærir
bókaverðir. Og í lessalnum sætu
skáldin hljóð og skrifuðu við ym
aldanna úr öllum þeim annál-
um og kirkjubókum sem þarna
hafa legið og tækju flugið í upp-
streyminu frá öllum þeim hugs-
unum sem þarna hafa svifið frá
einu heilabúi til annars.
Hús andanna
Í DAG
Guðmundur Andri
Thorsson
rithöfundur
Þessi endurskoðun
opnar víddir í sjálfs-
vitund þjóðarinnar. En það
má samt ekki alveg gleyma
því að Íslendingar voru
og eru þrátt fyrir allt bók-
menntaþjóð. Þeim arfi má
alveg halda á lofti.
➜ Oft eru tveir læknar á
vaktinni en oftar en ekki
þarf annar þeirra líka að
sinna bráðavaktinni auk
hjúkrunarfræðinga. 27
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:3
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
D
5
-3
B
2
C
1
7
D
5
-3
9
F
0
1
7
D
5
-3
8
B
4
1
7
D
5
-3
7
7
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
5
6
s
_
3
1
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K