Víkurfréttir - 29.10.2009, Blaðsíða 11
STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM 11VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 29. OKTÓBER 2009
Við trúum því að það sé sameiginlegt hlutverk okkar sem hér búum að stuðla að
hamingju og heilbrigði einstaklinganna, að þeir nái að þroska hæfileika sína, hafi
sterka sjálfsmynd og láti drauma sína rætast.
Mitt Reykjanes er rafræn íbúagátt þar sem íbúar geta
sent inn formleg erindi til afgreiðslu, tekið þátt í
umræðum, könnunum og sótt um ýmsa þjónustu. Einnig
getur Reykjanesbær sent samráðsmál á valinn hóp
notenda vegna sérstakra verkefna og þannig leitað álits
bæjarbúa. Þeir notendur sem eiga börn á grunnskó-
laaldri geta sótt upplýsingar frá skóla barnanna m.a. um
nám þeirra og skólasókn. Einnig geta íbúar skoðað
upplýsingar um greiðslustöðu sínahjá Reykjanesbæ s.s.
leikskólagjöld, fasteignagjöld, gatnagerðargjöld og fl.
Átt þú lykilorð?
Umsókn um nýtt lykilorð er afgreidd í síma 421 6700 eða
á rafrænu formi á mittreykjanes@reykjanesbaer.is
BÆRINN ÞINN
Á NETINU
30 KM HÁMARKSHRAÐI Í
ÍBÚÐAHVERFUM
Reykjanesbær minnir á 30 km hámarkshraða í íbúðahverfum.
Kynntu þér málið á reykjanesbaer.is
Umhverfis- og skipulagssvið
AKTU VARLEGA
30
SKESSAN Í HELLINUM
OPIÐ: Í vetur verður hellir
skessunnar opinn
á virkum dögum frá kl.
09:00 - 16:30 og um helgar
frá kl. 10:00 - 17:00.
VELKOMIN!
Nýja gönguleiðin meðfram strandlengjunni frá Gróf að Stapa
hefur fengið nafnið Strandleið.
Við þökkum öllum íbúum sem sendu inn tillögur og kusu á netinu
kærlega fyrir þátttökuna með þeirri von að Strandleið færi
okkur aukin tækifæri til útivistar og aukin tengsl við náttúru og
sögu bæjarins.
STRANDLEIÐ
ÞJÓNUSTUVER
TJARNARGÖTU 12
Verið velkomin í nýtt þjónustuver Reykjanesbæjar
- Símasvörun
- Almenn þjónusta við viðskiptavini
- Upplýsingagjöf um starfsemi bæjarins
Opið:
Mán - fim: 8:30 - 16:00
Fös: 8:30 - 15:00