Víkurfréttir - 27.12.2012, Qupperneq 4
fimmtudagurinn 27. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR4
Hilmar Bragi Bárðarsonvf.is
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is
Jón Júlíus Karlsson, jjk@vf.is, GSM 849 0154
Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006
Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is
og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
Útgefandi:
afgreiðsla og ritstjórn:
ritstjóri og ábm.:
fréttastjóri:
blaðamenn:
auglýsingadeild:
umbrot og hönnun:
auglýsingagerð:
afgreiðsla:
Prentvinnsla:
uPPlag:
dreifing:
dagleg stafræn Útgáfa:
RITSTJÓRNARBRÉF
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir
kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka
smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á
þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá
færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á
vef Víkur-frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prent-
aðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það
birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
710183-0319
Það er langt frá því sjálfsagt að
að geta siglt rekstri fyrirtækja
í gegnum það efnahagslega
öldurót sem við öll þekkjum
og hefur verið síðustu fjögur
ár. Fyrirtæki, bæði stór og
smá, hafa fallið bæði vinstri
og hægri. Samtals hafa 107
fyrirtæki orðið gjaldþrota á
árunum 2009 til 2011 hér á
Suðurnesjum. Mörg fyrirtæki hætta
rekstri en önnur skipta um kennitölu
og halda áfram með hreint borð, eins
og sagt er. Það er því alltaf gaman að
sjá „gamlar“ kennitölur. Það eru alls
ekki mörg fyrirtæki á Suðurnesjum
sem státað geta af sömu kennitölunni í
áratugi. Þegar vika verður liðin af nýju
ári getur vinnuveitandi minn til 25 ára
fagnað 30 ára afmæli kennitölunnar
710183-0319. Víkurfréttir ehf. verða
30 ára þann 7. janúar nk. Blaðið sjálft
er þó aðeins eldra en Víkurfréttir hófu
göngu sína 14. ágúst árið 1980.
Frá því Víkurfréttir ehf. voru stofn-
aðar fyrir 30 árum hafa orðið gríðar-
legar breytingar í fjölmiðlun.
Frá því að blaðið var allt svart/
hvítt og það tók marga daga
að prenta það yfir í að allar
síður eru nú í lit og prentun
á blaðinu tekur innan við
klukkustund. Útgáfan hefur
líka breyst mikið frá því að
vera útgáfa á vikublaði yfir í
daglega útgáfu á vefmiðli sam-
hliða Víkurfréttum á fimmtudögum.
Frá svart/hvítum ljósmyndafilmum
yfir í stafræna tækni. Tveggja áratuga
samvinna við sjónvarpsstöðvar í frétta-
öflun og vinnslu hefur einnig orðið til
þess að vefur Víkurfrétta hefur nýtt
sér alla þá möguleika í framsetningu á
efni sem í boði eru , hvort sem er texta,
ljósmyndum eða hreyfimyndum.
Víkurfréttir voru í fararbroddi á net-
inu á sínum tíma. Það er staðreynd að
Víkurfréttir voru fyrsti fréttavefurinn
á Íslandi sem var með opinn aðgang
að fréttum. Víkurfréttir hafa farið í
útrás og gefið út á höfuðborgarsvæð-
inu. Víkurfréttir reyndu útgáfu tvisvar
í viku á Suðurnesjum um tíma. Við
gáfum einnig út helgarblað í nokkrar
vikur síðla árs 1999. Helgarblaðið
leiddi af sér Tímarit Víkurfrétta.
Víkurfréttir hafa þjónustað aðra fjöl-
miðla með myndefni í fjölda ára.
Þannig mynda Víkurfréttir talsvert
fyrir bæði RÚV og Stöð 2 á Suður-
nesjum. Morgunblaðið og mbl.is nýta
sér ljósmyndaþjónustu Víkurfrétta og
það sama má segja um Fréttablaðið og
Vísi.is. Það hafa verið sveiflur í þess-
ari starfsemi eins og öðru. Einn mán-
uðinn unnum við 35 sjónvarpsfréttir
frá Suðurnesjum. Þær eru hverfandi
í dag og örugglega efnahagsástandi
um að kenna. Öll þessi starfsemi hefur
verið á sömu kennitölunni, 710183-
0319.
Ég vil nota tækifærið og óska eigendum
Víkurfrétta ehf., Páli Hilmari Ketils-
syni og Ásdísi Björk Pálmadóttur, til
hamingju með 30 ára afmæli Víkur-
frétta ehf. þann 7. janúar 2013. Næsta
blað kemur svo út 10. janúar. Þangað
til verðum við daglega á vf.is.
ÁRAMÓTABLAÐIÐ
stuðningur upp
á líf og dauða!
n Flugeldamarkaðir björgunarsveitanna eru langmikilvægasta fjáröflun björgunarsveitanna.
Næstu dagar ráða því hvernig starfsemi björgunarsveitar-
innar í þínu bæjarfélagi verður
háttað á næsta ári. Í hönd fer
mikilvægasta fjáröflun björgunar-
sveitanna þegar flugeldamarkað-
irnir opna á morgun. Björgunar-
sveitirnar eru sjálfboðaliðasamtök
sem eru reknar fyrir söfnunarfé.
Þar skiptir flugeldasalan stærstu
máli.
Í Reykjanesbæ er stærsta björg-
unarsveitin á Suðurnesjum, Björg-
unarsveitin Suðurnes. Þar er Kári
Viðar Rúnarsson formaður. Hann
var ásamt sínu fólki að stækka eina
sölustað björgunarsveitarinnar
í Reykjanesbæ að Holtsgötu 51.
Þegar Víkurfréttir tóku hús á Kára
og félögum í Björgunarsveitinni
Suðurnes hafði björgunarsveitar-
fólkið verið að fá þau tíðindi að
umsókn sveitarinnar um húsnæði
fyrir sölustað við Brekkustíg hafi
verið hafnað. Húsnæðið hafði stað-
ist allar þær kröfur sem gerðar voru
til sölustaða flugelda en á efri hæð
hússins væru geymd viðkvæm skjöl
sem óttast væri um ef mikill eldur
kæmi upp. Því voru góð ráð dýr og
því ekki um neitt annað að ræða
en að stækka sölustaðinn á Holts-
götu og vonast til að þangað verði
straumur fólks að kaupa flugelda
þetta árið. Björgunarsveitin Suður-
nes hefur undanfarin ár einnig
verið með sölustað í söluskúr við
Reykjaneshöll. Það var ekki hægt í
ár þar sem leiga á aðstöðu var of dýr
fyrir björgunarsveitina.
Kári Viðar fer ekki leynt með
áhyggjur sínar af því að í Reykja-
nesbæ fjölgar einkaaðilum ár frá
ári sem taka til sín dágóða sneið af
þessari mikilvægu fjáröflun björg-
unarsveitarinnar. Síðustu fjögur
kreppuár hafa verið björgunar-
sveitinni erfið, enda staða margra
fyrirtækja þannig að ekki hefur
verið mikið aflögufært þegar sam-
tök eins og björgunarsveitirnar eru
í fjáröflun. Það hefur því þurft að
herða ólina hjá björgunarsveitinni
og endurnýjun á búnaði hefur
verið slegið á frest í einhverjum
tilvikum.
Flugeldamarkaðurinn sem opinn
er í fjóra daga fyrir áramót hefur
verið að standa undir um 60% af
árlegum rekstri Björgunarsveitar-
innar Suðurnes. Því sem uppá
hefur vantað hefur verið aflað með
öðrum hætti og með útsjónarsemi
hefur verið hægt að reka björg-
unarsveitina í Reykjanesbæ.
Starfið hefur ekkert minnkað þrátt
fyrir kreppu. Björgunarsveitin
Suðurnes hefur eins og svo margar
aðrar sveitir tekið þátt í umfangs-
miklu starfi þegar náttúruvá hefur
verið. Björgunarsveitin Suðurnes
og allar hinar björgunarsveitirnar
á Suðurnesjum tóku mikinn þátt í
björgunarstarfi þegar eldgos urðu á
Fimmvörðuhálsi, í Eyjafjallajökli og
í Grímsvötnum. Tvö síðast nefndu
gosin röskuðu lífi fólks á Suðurlandi
og sveitirnar af Suðurnesjum tóku
virkan þátt í björgunarstarfinu. Þá
var Suðurnes einnig að Fjallabaki
sl. sumar þegar þjóðvegur 1 rofnaði
þegar brú tók af austan Víkur. Þar
aðstoðaði sveitin ferðamenn sem
voru mjög misjafnlega útbúnir.
Kári segir að útköll vegna ferða-
manna hafi aukist mikið hér á
Reykjanesskaganum með auknum
ferðamannastraumi. Ferðamenn
séu að lenda í vanda um allan
skaga.
Á síðustu árum hafa óvenju mörg
vond veður hér á Suðurnesjum
orðið til þess að björgunarsveitir
hafa verið að störfum nótt sem dag
við óveðursaðstoð. Nú í desember
hafa björgunarsveitirnar á Suður-
nesjum fengið tvö úköll á stuttum
tíma þar sem lögreglan hefur óskað
eftir aðstoð við að leita af týndum
einstaklingum. Þá fóru einnig
flokkar björgunarsveitarmanna
frá Suðurnesjum austur að Litla-
Hrauni til að leita af storkufanga.
Áhuginn á björgunarsveitarstarf-
inu hefur ekkert minnkað og hjá
Björgunarsveitinni Suðurnes eru
tugir verkra og vel þjálfaðra björg-
unarsveitarmanna- og kvenna. Það
hefur hins vegar reynst mörgum
erfiðara síðustu misseri að fá sig
lausa úr vinnu þegar útköll hafa
borist. Þar er um að kenna ótryggu
atvinnuástandi. Þá hafa björgunar-
sveitirnar fengið mörg verkefni
sem staðið hafa yfir dögum saman,
s.s. í eldgosum síðustu ára.
Á komandi ári ætla björgunarsveit-
irnar á Suðurnesjum að efla sam-
starf sitt enn frekar og sagði Kári
Viðar að framundan séu spennandi
tímar hjá björgunarsveitunum.
Starfið byggist þó alfarið á því að
fjáröflun til starfsins gangi vel og
því sé mikilvægt að íbúar Suður-
nesja hugsi til björgunarsveitanna
nú þegar keyptir eru flugeldar.
stærsti flugeldamarkaður suðurnesja oPnar í hÚsi björgunarsveitarinnar suðurnes við holtsgötu í narðvík á morgun.
Áramót