Víkurfréttir - 27.12.2012, Síða 16
fimmtudagurinn 27. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR16
Dagskráin var með hefðbundnu
sniði. Kristján Ásmundsson skóla-
meistari afhenti prófskírteini og
flutti ávarp og Guðlaug Pálsdóttir
aðstoðarskólameistari flutti yfirlit
yfir störf annarinnar. Gunnhildur
Gunnarsdóttir nýstúdent flutti
ávarp fyrir hönd brautskráðra og
Rósa Sigurðardóttir kennari flutti
útskriftarnemendum kveðjuræðu
starfsfólks. Nemendur Tónlistar-
skóla Reykjanesbæjar fluttu tónlist
en Bjöllukór Tónlistarskólans lék
við upphaf athafnarinnar undir
stjórn Karenar Sturlaugsson.
Ragnheiður Eir Magnúsdóttir ný-
stúdent lék á flautu og Þórarna
Salóme Brynjólfsdóttir nýstúdent á
baritonhorn ásamt Bjöllukórnum.
Steinunn Björg Ólafsdóttir nýstúd-
ent söng en með henni lék Karen
Sturlaugsson á píanó.
Við athöf nina vor u ve it t ar
v iðurkenningar f yr ir góðan
námsárangur. Gunnhildur Gunn-
arsdóttir fékk viðurkenningu fyrir
störf í þágu nemenda, Telma Rún
Rúnarsdóttir fékk verðlaun fyrir
góðan árangur í sálar- og uppeldis-
fræði og Petra Rut Rúnarsdóttir
og Lilja María Stefánsdóttir fyrir
spænsku. Eyþór Ingi Júlíusson
fékk viðurkenningar fyrir góðan
árangur í eðlis- og efnafræði og í
þýsku. Andri Þór Skúlason fékk
áritaða bók frá Páli Kr. Pálssyni
fyrir góðan árangur í viðskipta-
greinum og hann fékk einnig verð-
laun fyrir árangur sinn í spænsku.
Birna Helga Jóhannesdóttir fékk
verðlaun frá skólanum fyrir ár-
angur sinn í stærðfræði, spænsku,
ensku og í viðskipta- og hagfræði-
greinum. Hún fékk einnig gjafir
frá Íslenska stærðfræðifélaginu og
Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir
góðan árangur í stærðfræði og frá
danska sendiráðinu fyrir árangur
sinn í dönsku. Soffía Klemenzdóttir
fékk viðurkenningar fyrir góðan
árangur í ensku, spænsku, eðlis-
fræði, efnafræði og stærðfræði og
hún fékk einnig gjafir frá Íslenska
stærðfræðifélaginu og Verkfræði-
stofu Suðurnesja fyrir árangur sinn
í stærðfræði og frá danska sendi-
ráðinu fyrir árangur í dönsku. Aðal-
heiður Gunnarsdóttir fékk einnig
gjafir frá Íslenska stærðfræðifélag-
inu og Verkfræðistofu Suðurnesja
fyrir árangur sinn í stærðfræði en
auk þess fékk hún viðurkenningar
frá skólanum fyrir góðan árangur
í spænsku, raungreinum, efnafræði
og stærðfræði.
Ragnheiður Gunnarsdóttir afhenti
við athöfnina styrki úr styrktar-
sjóði Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Sjóðurinn var stofnaður af Kaup-
félagi Suðurnesja og Gunnari
Sveinssyni, fyrrverandi kaupfélags-
stjóra og fyrsta formanni skóla-
nefndar Fjölbrautaskóla Suður-
nesja. Tilgangur sjóðsins er að efla
og auka veg skólans með því að
styrkja nemendur skólans til náms,
að styðja við starfsemi sem eflir
og styrkir félagsþroska nemenda
og að veita útskriftarnemendum
viðurkenningar fyrir frábæran
árangur í námi og starfi. Að þessu
sinni fengu Alexandra Sæmunds-
dóttir, Bertmari Ýr Bergmanns-
dóttir, Sigurlaug Herdís Friðriks-
dóttir og Sigríður Guðbrandsdóttir
allar 20.000 kr.- styrk fyrir góða
frammistöðu í lífsleikni og ræðu-
mennsku.
Landsbankinn veitti nemendum
viðurkenningar f yr ir góðan
námsárangur og afhenti Björn
Kristinsson þær fyrir hönd bank-
ans. Birna Helga Jóhannesdóttir
fékk verðlaun fyrir bestan árangur
í íslensku og hún fékk einnig
verðlaun fyrir bestan árangur í
erlendum tungumálum. Þær Aðal-
heiður Gunnarsdóttir og Soffía
Klemenzdóttir fengu báðar verð-
laun fyrir árangur í stærðfræði
og raungreinum. Birna Helga Jó-
hannesdóttir fékk síðan verðlaun
fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi
en þess má geta að hún lauk stúd-
entsprófinu á aðeins tveimur og
hálfu ári. Að lokum sleit Kristján
Ásmundsson aðstoðarskólameist-
ari haustönn 2012.
Birna Helga Jóhannesdóttir, 18 ára stúlka úr Keflavík, útskrifaðist
með hæstu einkunn úr Fjölbrautaskóla
Suðurnesja í útskrift skólans sem fram
fór í síðustu viku. Meðaleinkunn hennar
er 9,61 sem er frábær árangur og lauk
hún einnig námi við skólann á tveimur
og hálfu ári. Birna Helga hlaut 35 tíur í
námi sínu af um 50 áföngum sem hún
lauk við skólann. Öðrum áföngum lauk
hún með einkunninni níu. Birna segist
í viðtali við Víkurfréttir vera mjög sátt
með árangur sinn í skólanum.
„Ég er auðvitað mjög sátt og get verið stolt
af þessari einkunn. Ég hef alltaf átt mjög
auðvelt með nám og hef mikinn metnað,“
segir Birna Helga. „Ef ég fæ ekki háa ein-
kunn þá verð ég mjög svekkt út í sjálfa mig
og það hefur haldið mér við efnið. Ég er
þrátt fyrir það ekki að læra meira en næsti
maður við hliðina á mér. Ég legg samt alltaf
mikið á mig til að standa mig vel.“
Stóð ekki til að
útskrifast svona fljótt
Það er ekki á hvers manns færi að ljúka
framhaldsskólanámi á tveimur og hálfu ári
og hvað þá að ljúka námi með hæstu ein-
kunn. Birna viðurkennir að hún hafi ekki
áformað að ljúka námi á svo skömmum
tíma – námið hafi einfaldlega gengið betur
en hún átti von á.
„Ég tók 29 einingar á síðustu vorönn og
eftir þá önn þá gat ég klárað í haust,“ segir
Birna Helga. „Það hjálpaði líka að áður en
ég hóf nám í FS þá var ég búin með tvo
áfanga í stærðfræði og tvo í ensku. Það var
ekki planið að klára skólann svona fljótt
þegar ég byrjaði en eftir að ég ræddi við
Ægi Karl (Ægisson), áfangastjóra, þá sá ég
að ég gæti náð að klára skólann á tveimur
og hálfu ári. Það er boðið upp á hraðferð í
FS þar sem nemendur bæta við sig auka-
áfanga á hverri önn. Ég gerði það og náði
að ljúka náminu fyrr.“
Fékk tíu í öllum
stærðfræðiáföngunum
Birna Helga fékk fjölda verðlauna við út-
skriftina í síðustu viku. Hún fékk alls tíu
verðlaun, þar af þrenn fyrir stærðfræði
sem er hennar eftirlætis námsgrein. „Ég
hef alltaf verið best í stærðfræði. Ég tók tíu
áfanga í stærðfræði og fékk tíu í einkunn í
þeim öllum. Ég á mjög auðvelt með að læra
stærðfræði – sú grein er mér eðlislæg. Ég
hef einnig mjög gaman af tungumálum og
viðskiptafræði og hefur gengið vel.“ Birna
hlaut verðlaun fyrir árangur í viðskipta-
og hagfræðigreinum, íslensku, spænsku,
dönsku, ensku og stærðfræði.
Fer í lögfræði í haust
Birna Helga er nú þegar búin að ákveða
hvað hún ætlar að gera í framtíðinni. Hún
ætlar að vinna næstu mánuði en næsta
haust mun hún hefja nám við Háskóla Ís-
lands. „Ég stefni að því að fara í lögfræði
við Háskóla Íslands næsta haust. Ég held að
sú grein eigi vel við mig. Það gæti auðvitað
breyst og ef ég skipti um skoðun þá fer ég
eflaust í viðskipta- eða hagfræði,“ segir
Birna Helga en hvað gerir hún í frítíma
sínum frá námsbókunum?
„Ég eyði frítímanum með vinum og kærast-
anum mínum. Ég hef líka alltaf æft íþróttir,
bæði dans og fótbolta og er dugleg að fara
í ræktina. Ég fer rosalega mikið í bíó og hef
mjög gaman af því að horfa á bíómyndir,“
segir hin bráðklára Birna Helga að lokum.
n Fjölbrautaskóli Suðurnesja:
73 nemendur
útskrifast
Dúxaði í FS á tveimur og hálfu ári
n Birna Helga Jóhannesdóttir hlaut hæstu einkunn í útskrift Fjölbrautaskóla Suðurnesja:
Skólaslit haustannar og brautskráning Fjölbrautaskóla Suðurnesja fór fram miðvikudaginn 19. desember. Að þessu sinni útskrifuðust
73 nemendur; 60 stúdentar, tveir sjúkraliðar, níu úr verknámi og tveir
úr starfsnámi. Konur voru 49 og karlar 24. Alls komu 49 úr Reykja-
nesbæ, 7 úr Grindavík, 6 úr Vogum og þrír komu úr Garði og Sand-
gerði. Auk þess kom einn frá Höfn í Hornafirði, einn úr Hafnarfirði,
einn frá Ísafirði og einn úr Hrútafirði.
ÁRAMÓTABLAÐIÐ
Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur.
Hvítir kollar við útskrift frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja í síðustu viku. VF-myndir: Jón Júlíus Karlsson
Ragnheiður Gunnarsdóttir afhenti við athöfnina styrki úr styrktarsjóði
Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Sjóðurinn var stofnaður af Kaupfélagi
Suðurnesja og Gunnari Sveinssyni, fyrrverandi kaupfélagsstjóra og
fyrsta formanni skólanefndar Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Útskrift