Nesfréttir - 01.01.2006, Síða 2

Nesfréttir - 01.01.2006, Síða 2
ÚTGEFANDI: Borgarblö›, Vesturgötu 15, 101 RVK. S: 511 1188 • 561 1594 • 895 8298 RITSTJÓRI: Kristján Jóhannsson • ÁBYRG‹ARMA‹UR: Kristján Jóhannsson UMBROT: Valur Kristjánsson • NETFANG: borgarblod@simnet.is • HEIMASÍ‹A: borgarblod.is Nesfréttir er a›ili a› samtökum bæjar- og héra›sfréttabla›a Nesfréttir koma út mána›arlega og er dreift í hvert hús á Seltjarnarnesi 2 NES FRÉTTIR www.borgarblod.is Fasteignaálögur áfram lægstar á Seltjarnarnesi Samkvæmt nýrri fjárhagsáætlun Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2006 lækka álagningarstuðlar fasteigna- gjalda á Seltjarnarnesi annað árið í röð. Í desember var samþykkt að fasteignaskattur lækkuðu úr 0,32% í 0,30% og vatnsgjald úr 0,13% í 0,115%. Í útreikningum bæjarins við gerð fjárhagsáætlunar var meðal annars gengið út frá því að fasteigna- mat í sveitarfélaginu myndi hækka um 30% og voru álagningarstuðl- ar lækkaðir með tilliti til þess. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar í bæjar- stjórn hinn 14. desember síðastlið- in lét meirihluti Sjálfstæðisflokks jafnframt bóka að yrði fasteignamat verulega hærra er mat yfirfasteigna- matsnefndar lægi fyrir myndi meiri- hlutinn fara yfir málið að nýju til að fylgja eftir stefnu sinni um lágar álög- ur á bæjarbúa. Nú liggur fyrir að fasteignmat í bæjarfélaginu mun hækka um 35%. Því stefnir í að fasteignaskattar lækki enn frekar á Seltjarnarnesi. Með þessari aðgerð er ljóst að kostnaður fasteignaeignenda á Sel- tjarnarnesi verður fyrirsjáanlega hinn lægsti á höfuðborgarsvæðinu að teknu tilliti til fyrirliggjandi lækk- ana fasteignagjalda annarra sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu. Uppskerutími í skipulagsmálum framundan Það er óhætt að segja að mikilla tíðinda sé að vænta í skipulagsmál- um á Seltjarnarnesi á næstunni. Eins og kunnugt er hefur mikið verið unn- ið í aðal- og deiliskipulagsmálum á kjörtímabilinu og hefur sumt í þeim efnum gengið hægar en vonir stóðu til í upphafi. Nú er þó svo komið að framundan eru ákveðin vatnaskil þar sem það hillir undir að nýtt aðal- skipulag verði staðfest af umhverf- isráðuneyti. Einnig má búast við að deiliskipulagshugmyndir fyrir Hrólfs- skálamel verði kynntar í kjölfar stað- festingar aðalskipulags. „Ég held að það sé óhætt að segja að framundan séu gróskumiklir tím- ar hvað varðar skipulagsmál,” sagði Jónmundur Guðmarsson, bæjar- stjóri, þegar tíðindamaður Nesfrétta hitti hann á förnum vegi. „Það má búast við að við fáum að sjá nýjar hugmyndir um framtíðarskipulag miðbæjarins alveg á næstunni en þær hafa verið í vinnslu undanfarið í nánu samstarfi við fulltrúa versl- unar og þjónustu. Ég met það svo að sú vinna sé að komast á lokastig og það verði jafnvel hægt að kynna þessar hugmyndir fljótlega eftir mánaðarmót. Á næstunni ættum við einnig að sjá nýjar deiliskipu- lagshugmyndir fyrir Hrólfsskálamel með glæsilegu íbúðasvæði þar sem áhersla verðu lögð á vandað hús- næði.” Iðunarhúsinu breytt í íbúðarhúsnæði Á dögunum var húsið á horni Skerjabrautar og Nesvegar selt. Kaupandinn er Frjálsi Fjárfestingar- bankinn ásamt byggingaverktaka og er ætlunin að breyta húsnæð- inu í íbúðarhúsnæði. Heyrst hefur að annaðhvort eigi að rífa húsið og byggja nýtt, eða að innrétta húsið fyrir íbúðir, byggja við það og byggja eina hæð ofaná. Mikill skortur er á íbúðarhúsnæði á Nes- inu og margir hafa flutt burt vegna of lítils framboðs af húsnæði. Ágætu Seltirningar! Fyrir hönd ÆSÍS, Ásgerður Halldórsdóttir formaður. Kjör íþróttamanns og konu Seltjarnarness 2005 fer fram í febrúar n.k. Af því tilefni óskar Æskulýðs- og íþróttaráð Seltjarnarness eftir ábendingum frá ykkur um íþróttafólk sem skarað hefur framúr í sinni grein. Þetta kjör hefur verið árviss viðburður síðan 1993 í umsjón ÆSÍS sem vill með því vekja athygli á gildi íþrótta og stuðla enn frekar að öflugu íþróttalífi á Seltjarnarnesi. Athuga að viðkomandi íþróttamaður/kona þarf að hafa lögheimili á Seltjarnarnesi en ekki er nauðsynlegt að hann stundi íþrótt sína þar. Ábendingum skal skila fyrir 6. febrúar á tölvupóstfangið haukur@seltjarnarnes.is með upplýsingum um íþróttamanninn/konuna.

x

Nesfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.