Nesfréttir - 01.01.2006, Blaðsíða 4

Nesfréttir - 01.01.2006, Blaðsíða 4
4 NES FRÉTTIR Fjárhagsáætlun 2006 Fjárhagsáætlun Seltjarnarness fyrir árið 2006 var samþykkt við seinni umræðu á fundi bæjarstjórn- ar Seltjarnarness miðvikudaginn 14. desember s.l. Í henni kemur m.a. fram að þrátt fyrir að áfram verði gætt aðhalds í rekstri og skattar lækkaðir verði framkvæmd- ir á árinu 2006 í sögulegu hámarki. Áætlaður rekstrarhagnaður A- hluta bæjarsjóðs mun nema um 230 milljónum króna og nemur rekstrarhlutfall aðalsjóðs 85,4% af skatttekjum. Rekstrarafgangur sam- stæðunnar hækkar um 6,7% á milli ára. Ekki er gert ráð fyrir að ný lán verði tekin á árinu. Peningaleg staða Seltjarnarnesbæjar er þannig með því besta sem gerist á meðal sveit- arfélaga og skuldir á hvern íbúa þær lægstu á meðal stærri sveitarfélaga, hvort sem litið er til A-hluta bæj- arsjóðs eða samstæðu. Áætlað er að langtímaskuldir bæjarins verði áfram greiddar niður en sé miðað við veltufé frá rekstri getur Seltjarn- arnesbær greitt upp allar sínar skuldir á um 1,4 árum, sé miðað við óbreytta afkomu bæjarsjóðs. Áfram umtalsverður rekstrarhagnaður af bæjarsjóði Orkuveita Reykjavíkur (OR) vinnur þessa dagana við að tengja heimili á Seltjarnarnesi við ljósleið- arakerfi sitt. Nú eru tugir verktaka að störfum víðsvegar á þessum svæðum við að grafa og tengja ljós- leiðara. Fyrstu heimilin voru tengd í haust og fjölgar tengingunum í samræmi við gang verksins. OR selur enga þjónustu um kerfi sitt heldur leggur til burðarnet sem gerir heimilum mögulegt að kaupa þjónustu í frá þeim þjónustuaðil- um. Þegar hefur verið samið við fjölmörg fyrirtæki og verða samn- ingar við fleiri kynntir á næstu mán- uðum. Í fyrstu er boðið er upp á sjónvarps-, síma- og internetþjón- ustu. Tekjur Orkuveitunnar af starfs- seminni myndast annars vegar með tengi- eða áskriftargjaldi heimila og hins vegar af tekjuhlutdeild í seldri þjónustu á netinu. Gjald til heimila vegna þjónustunnar er 1.990 kr. á mánuði og eru tenging við kerfið ásamt netaðgangstæki og myndlykli innifalið í því gjaldi. Þau heimili sem nýta munu ljósleiðaratenginguna til þjónustukaupa geta í mörgum til- fellum sparað sér tengigjald af síma- línu þar sem sama eða sambærileg þjónusta og nú er oftast flutt með koparlínum verður í boði á ljósleið- aranum. Í byrjun desember hóf verktaki framkvæmdir við 2. áfanga ljósleið- aratengingar heimila á Seltjarnar- nesi. Við lagningu ljósleiðarans verður m.a. notuð bortækni sem er nýjung í lagnavinnu sem þess- ari. Miklar vonir eru bundnar við bortæknina og að með henni muni reynast unnt að lágmarka rask á lóð- um íbúa og umhverfis þær. Byrjunin lofar góðu en undanfarið hefur ver- ið unnið við að leggja rör að húsum við Hrólfsskálamel. Fleiri heimili tengjast ljósleiðaraneti OR Engar hækkanir eru áformað- ar á þjónustugjöldum stofnana Seltjarnarnesbæjar í fjárhagsáætl- un ársins 2006. Allar gjaldskrár lækka því að raungildi á árinu þar sem þær munu ekki fylgja verðlagsþróun. Einnig eru dæmi um beinar krónu- tölulækkanir. Þannig lækkaði gjald fyrir skólamáltíðir í Mýrarhúsa- skóla um tæplega 12% um áramót- in þegar verð á hverri máltíð fór úr 265 krónum í 235 krónur. Mötuneyti nemenda í Mýrarhúsa- skóla hefur nú verið rekið í eitt og hálft ár og hefur þátttaka verið mjög góð. Um 85% nemenda eru nú í fastri mataráskrift sem gerir rekstr- areininguna hagstæða. Velgengn- ina mötuneytisins má að stærstum hluta þakka starfsmönnunum og þá sérstaklega matreiðslumeistaranum sem þykir framreiða sérlega góðan og hollan mat. Gjaldskrár standa í stað eða lækka Fjölskyldustefna Seltjarnarness Blaðamaður Nesfrétta leit inn á fund hjá starfshópi um mótun fjöl- skyldustefna og fékk að forvitnast aðeins um málið. Starfshópur um mótun fjölskyldu- stefnu fyrir Seltjarnarnes var skipað- ur þann 9. apríl 2003. Bæjarstjórnin skipaði í hópinn Guðrúnu B. Vil- hjálmsdóttur, Bjarna Torfa Álfþórs- son, Eddu Kjartansdóttur, Berglindi Brynjólfsdóttur og Styrmi Þór Braga- son. Guðrún hefur gegnt formennsku í hópnum. Sigrún Hv. Magnúsdóttir félagsráðgjafi hefur frá byrjun starf- að með hópnum. Einnig hafa Sigrún Edda Jónsdóttir, formaður félagsmála- ráðs, og Snorri Aðalsteinsson félags- málastjóri, tekið þátt í vinnu starfs- hópsins. Hópurinn hefur haldið fjölda funda og átt samstarf við fjölmarga aðila í bæjarfélaginu um mótun stefn- unnar. Allar nefndir og stofnanir á vegum bæjarins hafa komið að gerð hennar, svo og kirkjan, heilsugæslan og allir þeir sem eitthvað hafa með daglegt líf fjölskyldna á Seltjarnarnesi að gera. Óskað var eftir hugmyndum og tillögum frá íbúum og hafa margir lagt hönd á plóginn með ábendingum og tillögum. Markmiðið með fjölskyldustefnu er að efla fjölskyldur í okkar samfélagi og gera fjölskylduvænt bæjarfélag enn betra. Með mótun fjölskyldustefnu viljum við ramma inn það sem hefur verið gert fyrir fjölskyldur á Seltjarnar- nesi og einnig það sem við viljum efla og gera betur. Fjölskyldustefna tek- ur til allra sem búa á Seltjarnarnesi, óháð fjölskyldustærð. Fjölskyldan er hornsteinn hvers samfélags. Stefnan er að hlúa eins vel að fjöl- skyldunni og hægt er. Í fjölskyldustefn- unni eru sett fram markmið um hvern- ig stuðla skuli að fjölskylduvænu sam- félagi sem þjóni og taki mið af þörfum íbúanna auk þess að gefa þeim kost á að njóta sín sem einstaklingar eða heild. Í stefnunni er tekið fram hver staðan er í dag, lögð fram markmið um hvernig við viljum hafa hlutina og loks er skýrt frá leiðum að markinu. Fjölskyldustefnan verður lögð fyrir á fundi bæjarstjórnar í janúar og þeg- ar hún hefur hlotið samþykki, verður hún kynnt í framhaldinu f yrir öllum bæjarbúum. Frá vinstri fremst: Sigrún Edda Jónsdóttir, Jón Kristján Rögnvaldsson nemi í starfsþjálfun, Edda Kjartansdóttir, Snorri Aðalsteinsson, Berglind Brynjólfsdóttir, Guðrún B. Vilhjálmsdóttir, Sigrún Hv. Magnúsdóttir og Bjarni Torfi Álfþórsson

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.