Nesfréttir - 01.01.2006, Qupperneq 8
8 NES FRÉTTIR
Hinn 4. febrúar nk. verður haldið
prófkjör á vegum Sjálfstæðisflokksins
í aðdraganda sveitarstjórnarkosinga.
Margir hæfir einstaklingar gefa kost á
sér í kjörinu, þar með talið fólk sem
átt hefur ríkan þátt í velgengni flokks-
ins á Seltjarnarnesi og verkefnum á
þessu kjörtímabili. Einnig er ánægju-
legt að sjá nýja frambjóðendur stíga
fram á sjónarsviðið og skapa þannig
möguleika á endurnýjun og breidd
sem hverju stjórnmálaafli er nauð-
synleg. Prófkjör hefur um langt skeið
verið háttur okkar sjálfstæðismanna
á að velja fulltrúa í bæjarstjórn og ég
er þess fullviss að nú sem fyrr verði til
sigurstranglegur listi sem líklegur er
til afreka fyrir hönd bæjarbúa á næsta
kjörtímabili. Eftir fjögur viðburðarík
ár sem oddviti og átta ár í bæjarstjórn
óska ég sjálfur eftir áframhaldandi
stuðningi í fyrsta sæti listans. Með því
leita ég eftir umboði til að leiða lista
Sjálfstæðisflokksins til sigurs í kosning-
unum í vor og til áframhaldandi starfa
fyrir bæjarbúa á næsta kjörtímabili.
Metnaður og ábyrgð hafa verið lyk-
ilhugtök sem ég tel að einkenna eigi
þjónustu Seltjarnarnesbæjar við íbúa.
Metnaðurinn felst í því að lífsgæði
Seltirninga verði efld sem kostur er.
Ábyrgðin í því að standa vörð um fjár-
hag bæjarins og þar með sjálfstæði
hans til framtíðar litið.
Ábyrg fjárstjórn - lægri
skattar
Verkefni Sjálfstæðisflokksins í bæj-
arstjórn er að treysta enn frekar þann
stöðugleika og ráðdeild sem einkenna
fjármál Seltjarnarnesbæjar. Góður
árangur í rekstri bæjarins hefur skilað
sér í lægri sköttum á íbúa og hófleg-
um þjónustugjöldum og mun gera það
áfram. Góð samstaða hefur verið um
þessar áherslur í bæjarmálahópi okkar
sjálfstæðismanna á kjörtímabilinu sem
hefur látið verkin tala með lækkun fast-
eignagjalda og útsvars ásamt varkárni
á gjaldtöku fyrir þjónustu bæjarins
við íbúa. Það er mér sérstakt metn-
aðarmál að Seltirningar búi áfram við
bestu skilyrði á höfuðborgarsvæðinu
og því tel ég það verkefni bæjarstjórn-
ar á næsta kjörtímabili að gera enn
betur að þessu leyti en tryggja um leið
góða þjónustu. Á bæjarfulltrúum hvílir
sú skylda að nýta skattfé okkar með
ábyrgum og árangursríkum hætti.
Seltjarnarnes er eitt eftirsóttasta
bæjarfélag landsins til að búa í og það
er brýnt að því jákvæða orðspori verði
viðhaldið, ekki síst með tilliti til eigna-
verðs sem oft á tíðum endurspeglar
drjúgan hluta af sparnaði fólks. Á
næsta kjörbili er þýðingarmikið að stig-
in verði enn frekari skref í að efla þjón-
ustu bæjarins við fjölskyldur, börn og
fullorðna, unga jafnt sem aldna. Snyrti-
legur og vel skipulagður bær ásamt efl-
ingu skólastarfs, íþrótta og þjónustu
við aldraða eru meðal veigamestu
þátta í þjónustu bæjarins á komandi
árum.
Áræðni frumkvöðulsins
Ef vikið er að einstökum verkefn-
um er brýnt að við látum ekki staðar
numið í skólamálum, heldur gerum
enn betur. Seltjarnarnes hefur lengi ver-
ið í fararbroddi á þessu sviði og sýnt
áræðni frumkvöðulsins í verki. Nú
rennur um helmingur af tekjum bæjar-
ins til fræðslumála og mörg dæmi eru
um að fólk flytji um langan veg á Nesið
til að koma börnum sínum í leikskóla
okkar og grunnskóla. Sem bæjarfull-
trúa finnst mér vilji til góðra verka og
árangur einkenna skólastarf á Seltjarn-
arnesi og sem faðir fjögurra barna
gleðst ég yfir sýnilegri viðleitni stjórn-
enda og starfsfólks skólanna til að
gera vel. Eftir áralanga dvöl við nám
og störf erlendis er ég þeirrar skoðun-
ar að það felist forskot í því fyrir börn
að njóta menntunar á Íslandi - og alveg
sérstaklega á Seltjarnarnarnesi
Ánægja er með skólastarf á Sel-
tjarnarnesi. Sem dæmi má nefna að í
nýlegri og viðamikilli þjónustukönnun
á vegum IMG Gallup reynist yfirgnæf-
andi meirihluti aðspurðra eða um 92%
ánægð með þjónustu grunnskólans
og rúm 95% segja hið sama um starf á
leikskólum bæjarins. Við Seltirningar
getum fyllst stolti í ljósi þessarar niður-
stöðu fyrir hönd starfsfólks skólanna
jafnt sem nemenda. Um leið ættum
við að líta á þessar upplýsingar sem
áskorun til að gera enn betur, sníða af
agnúa er ætíð fyrirfinnast, halda á lofti
góðum verkum og stefna að enn frek-
ari umbótum.
Tryggja verður að fjármagn skili sér
með áhrifaríkum hætti til nemenda.
Þannig stuðlum við að árangri. Bæj-
aryfirvöld eiga að skapa skilyrði fyrir
fyrsta flokks skólastarf en þurfa jafn-
framt að sýna festu, samstarfsvilja og
tryggja að skólastarf byggi á ábyrgð og
metnaðarfullum markmiðum.
Öflugt íþróttalíf og heilsu-
efling allra aldurshópa
Útivist, íþróttaiðkun og almenn
heilsuefling eru veigamiklir þættir í
nútíma samfélagi og því er brýnt að
skilyrði séu fyrir hendi til að slíkra lífs-
gæða verði notið af hálfu bæjarbúa á
öllum aldri. Íþróttastarf og aðstaða til
íþróttaiðkunar á Seltjarnesi hefur ver-
ið eflt verulega í tíð núverandi bæjar-
stjórnar sem komið hefur að uppbygg-
ingu öflugrar íþróttamiðstöðvar, hrint
af stokkunum miklu endurbótaátaki
við Sundlaug Seltjarnarness og gerð
fullkomins keppnisvallar með gervi-
grasi ásamt minni sparkvöllum. Fjöl-
margir bæjarbúar, börn og fullorðnir
njóta góðs af öfl-
ugu starfi Gróttu,
golfíþróttin nýtur
ört vaxandi vin-
sælda á meðal
ungra sem ald-
inna Seltirninga
og bæjarstjórn
hefur stuðlað
að heilsueflingu
íbúa og útivistar í
náttúru Seltjarnarness með lagningu
göngustíga, skipulagningu opinna
útivistarsvæða og fegrun og frágangi
opinna svæða sem og varðveislu á
þeim náttúruperlum sem bæjarfélagið
státar af. Sérstaða Seltjarnarness felst
ekki síst í möguleikum á útivist í fal-
legri náttúru og fjölbreyttri aðstöðu til
heilsueflingar eða ástundun íþrótta.
Bætt lífsgæði eldri borgara
er næsta stórverkefni
Næsta stórverkefni okkar er að hlúa
vel að eldra fólki á Seltjarnarnesi. Mik-
ilvægt er að elstu bæjarbúarnir, sem
mikið hafa lagt af mörkum til samfé-
lagsins, fái góða þjónustu hvort sem
þeir kjósa að búa áfram á heimilum sín-
um eða annarsstaðar. Ekkert stendur í
vegi fyrir því að Seltjarnarnes geti orð-
ið öðrum sveitarfélögum fyrirmynd í
þessum efnum og efli nýopnaða dag-
vist aldraðra til muna, reisi nýtt og
glæsilegt hjúkrunarheimil á Lýsislóð,
sem loks hillir undir fyrir frumkvæði
Seltjarnarnesbæjar. Þá er nauðsynlegt
stígin verði markviss skref í þá átt að
rjúfa einangrun sem of margir aldraðir
búa við og tryggi öryggi og umönnun
eldri Seltirninga á heimilum sínum.
Öflugur listi tryggir sigur
í vor
Eins og sjá má hér að framan er af
mörgu að taka enda er í sveitarstjórn-
um fengist við flest svið mannlífsins.
Á forystumönnum framboðslista
eða bæjarfélaga hvílir þess vegna sú
skylda að vera talsmenn allra bæjar-
búa og allra brýnna verkefna. Um leið
verða þeir að geta greint á milli mikil-
vægis einstakra mála og hafa hæfni til
að forgangsraða verkefnum með heill
allra umbjóðenda sinna og bæjarsjóðs
að leiðarljósi.
Þá verður að hafa í huga að hlutverk
forystumanns er einnig að takast á við
pólitíska andstæðinga og leiða sam-
verkafólk sitt til sigurs í kosningum.
Traust staða Sjálfstæðisflokksins á
Seltjarnarnesi er ekki sjálfgefin, heldur
afrakstur af öflugu starfi fólks sem skil-
ur og bregst við tækifærum og vanda í
málefnum bæjarins og íbúanna. Það
er of djarft að reikna sér sigur áður en
í orrustuna er komið. Sigur okkar sjálf-
stæðismanna mun sem endranær að
byggjast á dómi kjósenda um frammi-
stöðu okkar í bæjarstjórn og barátt-
unni í aðdraganda kosninga.
Ég hvet alla Seltirninga til þátttöku
í prófkjöri okkar sjálfstæðismanna og
nýta þar með gott tækifæri til að hafa
áhrif á framtíð okkar allra.
Jónmundur Guðmarsson,
bæjarstjóri.
Stillum upp sigurlista
Jónmundur
Guðmarsson.
Metaðsókní
Seltjarnarneskirkju
Kirkjusókn á aðventu, um jólin
og nýárið hefur aldrei verið meiri
í Seltjarnarneskirkju en í þetta
sinn, að sögn séra Sigurðar Grétars
Helgasonar, sóknarprests. Í desem-
ber mánuði, með aðventukvöldi
meðtöldu sóttu 1650 manns guðs-
þjónustur á móti 1164 á sama tíma
í fyrra. Það er afar ánægjulegt að sjá
hve mikil aukning er í kirkjusókn á
Nesinu að mati séra Sigurðar, sem
segir: „Það er samdóma álit okkar
hér í kirkjunni að við munum ekki
eftir svona góðri messusókn í jóla-
mánuðinum.”
Á aðventukvöldi komu 300
manns til kirkju miðað við tæplega
200 í fyrra. Afar vel var vandað til
dagskrár og á vakti tónlistin mikla
hrifningu kirkjugesta. Tónlistarstjóri
kirkjunnar, Viera Manasek, stjórn-
aði bæði barnakór, kammerkórnum
og hljómsveitinni svo eftir var tek-
ið. Frú Vígdís Finnbogadóttir, fyrrv.
Foresti Íslands, sagði ávarpi sínu:
„Þetta er listviðburður á heimsmæli-
kvarða í túnfæti Reykjavíkur.”
Kirkjustarfið er að aukast dag
frá degi alla vikuna. Um þetta segir
sóknarpresturinn: „Leikskólabörn
komu í jólastundir í kirkjuna sem
og allir nemendur úr Mýrarhúsa-
og Valhúsaskóla ásamt starfsfólki.
Kyrrðarstundirnar á miðvikudögum
hafa einnig tekið verulega við sér og
þörfin fyrir slíka þjónustu er sannar-
lega brýn.”
Samverustundir eldri borgara
hafa verið afar vel sóttar í vetur og
voru um 85 manns í jólasamverunni
fyrir jól. Þá fjölgar mjög bókunum
fyrir afnot af kirkjunni og safnaðar-
heimilinu fyrir tónleika, æfingar,
afmæli, skírnar- og fermingaveislur.
Það er ljóst að Seltjarnarneskirkja
er ekki einvörðungu guðshús, held-
ur og menningarmiðstöð bæjarfé-
lagsins.