Nesfréttir - 01.01.2006, Page 9

Nesfréttir - 01.01.2006, Page 9
NES FRÉTTIR 9 TAKTU NÆSTA SKREF F í t o n / S Í A F I 0 1 5 1 2 8 VEXTIR FRJÁLS ÍBÚ‹ALÁN Frjáls íbú›alán eru ver›trygg› fasteignalán me› föstum 4,35% vöxtum sem eru endursko›a›ir á fimm ára fresti. fiú hagar ö›rum bankavi›skiptum eins og flér s‡nist og kaupir n‡tt húsnæ›i e›a endurskipuleggur fjár- haginn. Komdu til okkar í Lágmúla 6, hringdu í síma 540 5000 e›a sendu okkur póst á frjalsi@frjalsi.is. DÆMI UM MÁNA‹ARLEGA GREI‹SLUBYR‹I AF 1.000.000 kr.* Lánstími 5 ár 25 ár 40 ár 4,35% vextir 18.575 kr. 5.474 kr. 4.400 kr. *Lán me› jafngrei›slua›fer› án ver›bóta 4,35% Ég hef oft hugsað um það þegar R-listinn, sem ráðið hefur höfuðborg- inni um árabil en er nú allur, hvernig flokkspólitík á Nesinu hefur þróast eftir að N-listinn, sem er einskonar hræðslubandalag minnihlutans, hefur leikið flokkastarfið í bænum grátt. Þegar ég flutti á Nesið í upphafi áttunda áratugarins voru starfandi fjórir flokkar með líflegt flokksstarf og blaðaútgáfu. Flokkarnir voru Sjálf- stæðisflokkurinn, Alþýðuflokkurinn, Framsókn og Alþýðubandalagið. Þetta voru skemmtilegir og líflegir tímar í bæjarpólitíkinni. Á þessum árum var fimm manna hreppsnefnd og áttu bæði kratar og framsókn sinn fulltrúann hvor í minni- hlutanum. Njáll heitinn Ingjaldsson var leiðtogi krata og Njáll Þorsteins- son sat fyrir framsókn. Fulltrúi alla- balla var í þriðja sæti sem varamað- ur. Meirihlutann skipuðu þá Sigurgeir Sigurðsson, Karl B. Guðmundsson, Snæbjörn Ásgeirsson og Kristinn Michelsen. Flokkarnir boðuðu reglulega fundi um bæjarpótíkina og oft var umræð- an mjög fjörug á þessum árum. Tek- ist var á um menn og málefni. Flokks- blöð komu út öðru hvoru en fyrir kosningar fjölgaði tölublöðum hratt. Kratarnir áttu hér drjúgt og ágætlega sterkt fylgi. Framsókn var m.a. sterk í nokkrum rótgrónum Nesfjöskyldum og átti sinn mann í hreppsnefnd og síðan bæjarstjórn. Alþýðubandalag- ið á Nesinu naut óformlegrar forystu þeirra Ólafs Ragnars Grímssonar og Guðrúnar heitinnar Þorbergsdóttur konu hans og bar talsvert á flokknum á þeim tíma. Sjálfstæðisflokkurinn var þá eins og nú, öflugasti flokkurinn og stóð fyrir reglulegum fundum um bæj- armálin; auk þess sem Seltirningur kom reglulega út. Íbúum fjölgaði hratt. Seltjarnars- nes varð kaupstaður árið 1974 og bæjarfulltrúar urðu sjö. Í bæjarstjórn- arkosningum sama ár fékk minnihlut- inn þá flugu í höfuðið að ef flokkarnir þrír og óflokksbundnir sameinuðust um N-lista gætu þeir velt D-listanum úr sessi. Auðvitað tókst það ekki. N- listinn lifir enn sem minnihlutahópur ólíkra pólitískra sjónarmiða og flokks- brota, sem stöðugt þarf að samhæfa með málamiðlunum. Fyrst var Guð- rún Þorbergsdóttir oddviti listans og sat í fjögur kjörtímabil eða 16 ár, en þá tók Siv Friðleifsdóttir, Framsókn, við forystunni sem framsóknarmenn hafa haldið síðan af einhverjum ástæðum. Það sem gerst hefur hér á liðnum kjörtímabilum er það sama og gerðist hjá R-listanum í Reykjavík. Flokksmeð- vitund fylgismanna flokkanna þriggja hefur dofnað og jafnvel horfið. Flokks- starf er nánast ekki til hjá Framsókn, Samfylkingu eða Vinstri grænum. Ef það er eitthvað þá sést það ekki. Enginn veit hversu veikt eða sterkt fylgi þessara flokka er á Nesinu. Senni- lega er Samfylkingin næst fjölmenn- asti flokkurinn hér. Það undarlega er að sá flokkur lætur sér nægja annað sætið á lista minnihlutans, meðan Samfylkingin í Reykjavík hefur farið með forystuhlutverkið. Framsókn fær fyrsta sætið óáreitt í hverjum kosning- unum á fætur öðrum þótt að fylgið sé eflaust rétt eins og í borginni. Nánast gufað upp. Það má vel vera að sameiginleg flokkaframboð eigi rétt á sér stöku sinnum. Eitt er víst að ef slíkt sam- starf tórir lengi, þá hverfur flokksmeð- vitund fylgisins, sem er öllum flokk- um afar hættulegt. Flokkur sem ekki hefur sterkan kjarna stuðningsmanna deyr. Það verður þess vegna mjög fróðlegt að sjá hvernig R-listaflokkarn- ir í borginni koma út úr kosningunum í vor hver í sínu lagi. Spurningin er hvort allir þeirra lifi kosningarnar af? Jón Hákon Magnússon, fyrrv. bæjarfulltrúi. Einu sinni var Veislan Veitingaeldhús óskar eftir lítilli íbúð á Seltjarnarnesi eða nærliggjandi hverfum fyrir norska konu (kokkur) sem var að flytja til landsins og starfar í Veislunni. Ábyrg og snyrtileg. Skilvísum greiðslum heitið. Vinsamlega hafið samband við Árný í síma 821-1031 eða arny@veislan.is Íbú› óskast

x

Nesfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.